Vikan - 25.06.1998, Blaðsíða 42
ERT ÞU OF KREFJANDI?
krefst
mikils, þarf mikla athygli
og er stundum nálægt því
að gera sína nánustu brjál-
aða með sífelldum kröfum
um stuðning og dekur. Við
könnumst flest við lýsing-
una. Sumir myndu kalla
þessa konu „prímadonnu“.
En fáir myndu nokkurn
tíma viðurkenna að þeir
séu prímadonnur. Þeir eru
lítið skárri, þessir sem eru
hinum megin á skalanum -
þeir sem láta allt og alla
yfir sig ganga þegjandi og
hljóðalaust. Svo eru það
þeir sem kunna að feta
hinn gullna meðalveg; vita
hvenær þeir eiga að standa
á sínu og hvenær er best
að láta lítið fyrir sér fara.
Hverjum þessara hópa til-
heyrir þú? Er hægt að læra
að halda yfirganginum
(eða lufsuhættinum) í
skefjum? Svaraðu eftirfar-
andi spurningum sam-
viskulega:
Þýtt og endursagt úr Mademoiselle: Lízella
1. Vinahópurinn ákveð-
ur að bregða sér saman
á skíði. Þú...:
a) stingur upp á því að þið
gerið þetta almennilega og
farið til Austurríkis - það
hefur alltaf verið draumur
þinn að fara þangað.
b) segir vinum þínum að
Austurríki sé eini staðurinn
sem eitthvað vit er í. Ef þau
vilja ekki fara þangað þá
fara þau í skíðaferðina án
þín.
c) hlustar á tillögur hinna
og samþykkir þegjandi og
hljóðalaust.
2. Gerðu x við það sem
við á:
Hefur þú...
a) ákveðið að karlmaður í
hallærislegum skóm eigi
ekki séns í þig - og staðið
við það?
b) sett á þig farða þegar þú
42
ert í sólbaði?
c) talað um sjálfa þig í
lengur en hálftíma?
3. Veislan sem þú varst
í síðastliðið föstudags-
kvöld var frábær vegna
þess að...
a) þú varst manneskja
kvöldsins. Gestirnir veltust
um af hlátri yfir sögunum
þínum allt kvöldið.
b) þú hittir manneskju sem
þú kunnir strax vel við og
talaðir við allt kvöldið
c) þú hittir karlmann sem
þú talaðir við allt kvöldið -
um starfið hans, áhugamálin
og nýju aðferðina við að
nota tannþráð sem tann-
læknirinn hans, sem hann
var einmitt hjá deginum
áður, var að kenna honum.
4. Vinkona þín er nýtrú-
lofuð draumaprinsin-
um. Þegar hún tilkynnir
þér það segir þú:
a) „Til hamingju!“ og
meinar það af öllu hjarta.
b) „Til hamingju!“ Þú get-
ur alveg eins samglaðst
henni - það er hvort sem er
ekkert spennandi að gerast í
þínu lífi.
c) „Það er frábært. Sam-
bandið hjá okkur Kalla er
líka alvarlegt og ég býst við
því að hann biðji mín fljót-
lega. Ég er m.a.s. byrjuð að
velta því fyrir mér hvernig
hann muni fara að því;
hvernig hringurinn verður
og...“
5. Erfiður dagur er að
kvöidi kominn. Kunn-
ingjakona þín hringir
og spyr hvernig þú haf-
ir það. Þú...:
a) segir „Ofsalega gott!“
b) verð tuttugu mínútum í
að lýsa þessum ömurlega
degi í smáatriðum fyrir
henni.
c) segir henni að þetta hafi
verið annasamur dagur og
þú sért fegin að vera komin
heim og geta slappað af. Svo
spyrðu hvernig hún hafi
það.
6. Yfirmaður þinn segir
að skýrslan, sem þú
hafir unnið að sé á
góðri leið en hún
þarfnist annarrar yfir-
ferðar. Þú...:
a) eyðir hálftíma í að ræða
hugmyndir hennar varðandi
skýrsluna og byrjar svo að
vinna að henni með breyt-
ingarnar til hliðsjónar.
b) ferð beint í símann um
leið og yfirmaðurinn er
horfinn úr augsýn, hringir í
vinkonurnar til að segja
þeim að þú hafir verið tekin