Vikan


Vikan - 25.06.1998, Blaðsíða 40

Vikan - 25.06.1998, Blaðsíða 40
Sviðsett mynd. Vikan þakkar fyrirsætunni aðstoðina. Grein: Þórunn Stefánsdóttir Mynd: Hreinn Hreinsson Láttu hann ekki sleppa þú kemur auga á drauma- prinsinn á bílastæðinu, legg- ðu rauða rós og nafnspjaldið þitt undir þurrkurnar á bíln- um hans. Ef þú er nálægt bókaverslun getur þú skotist inn, keypt sniðugt kort og rétt hinum ókunna herra- manni. Ef þú aftur á móti veist einhver deili á honum getur þú sent honum í pósti úrklippur úr blöðunum; leikhúsgagnrýni, eða auglýs- ingar um tónleika og leik- sýningar með spurningunni: „Eigum við að skella okk- ur?“ Ágætt er að hafa tilbú- in nafnspjöld í töskunni með hentugum athugasemdum. Þú gætir rekist á drauma- prinsinn á veitingahúsi og þá er upplagt að rétta honum nafnspjald um leið og þú gengur út. Á því gæti til dæmis staðið: „Þú hefur fal- legt bros. Hringdu í mig!“ Mörgum mönnum finnst svona framganga heillandi og kitlandi - öðrum finnst hún ógnvænleg og óþægileg. Ekki bíða eftir viðbrögðun- Mikilvœgar setningar Nauðsynlegt er að hafa nokkrar góðar setningar á takteinum þegar þú ferð út á lífið; í samkvæmi, á fundi, alls staðar þar sem þú kemst í kynni við ókunnuga. Ef þér tekst vel upp getur þú auð- veldlega opnað augu draumaprinsins fyrir því hversu líf hans yrði nú miklu skemmtilegra ef þú værir hluti af því. Vingjarnlegar setningar gefa ekkert kynferðislegt til kynna, aðeins áhuga þinn á að kynnast honum betur. „Hvernig fannst þér fyrir- lesturinn?“ Svo má fikra sig áfram með því að spyrja: „Þig vantar ef til vill fleiri í vinahópinn?“ Fyndnar setningar eru ein- faldastar, þær gleðja um leið og þær eru svolítið kitlandi. Hvað með til dæmis: „Fyrir- gefðu, ég er búin að týna lyklunum af Jagúarnum mínum, má ég leita undir borðinu þínu?“ Eða ganga að flottasta manninum í salnum og spyrja: „Má ég setjast hér?“ Ef hann svarar játandi getur þú sest í fangið á honum! Ef þér dettur ekk- ert sniðugt í hug sem hentar aðstæðunum getur þú bjarg- að þér með því að segja: „Mér dettur ekkert í hug til að segja við þig. Dettur þér sjálfum eitthvað í hug?“ Tælandi setningar eiga að vera lostafullar, alls ekki um, láttu áhrifin síast inn og láttu hann eiga næsta leik. Hvað gerir þú ef þú allt f einu kemur auga á draumaprinsinn? Þú getur verið stödd hvar sem er; á bílastæðinu, veit- ingahúsinu eða í biðröðinni. Gallinn er bara sá að þú þekkir hvorki haus né sporð á manninum. Bandaríski sál- fræðingurinn Sharyn Wolf segir þig hafa um tvær leiðir að velja. Að láta hann ganga þér úr greipum eða setja í gang svolítinn skæruhernað. Wolf segir konur verða að gleyma goðsögninni um ör- lögin; að líf okkar sé fyrir- fram ákveðið. Við eigum að vera okkar eigin gæfu smiðir og nota frumkvæði, kjark og ímyndunaraflið til að kynn- ast draumaprinsinum. Hún gefur okkur nokkur góð ráð. Feimna konan Ef þú rekst á draumaprins- inn á götunni getur þú látið sem þú sért ókunnug í hverf- inu og spurt hann til vegar. Aðalatriðið er að gæta þess að þið stefnið í sömu áttina. Þannig getur þú gengið sam- ferða honum og spjallað við hann á leiðinni. I verslunum getur þú „óvart“ rutt niður úr hillunni sem hann stend- ur við eða „misst“ peninga á gólfið. Auðvitað býðst hann til að hjálpa þér. Ef þú hittir hann í biðröð getur þú spurt hann hvað klukkan sé, þú sért hrædd um að klukkan þín seinki sér. Biðraðir eru tilvalinn staður til að kynn- ast fólki. Þessi nálgun gefur okkur tækifæri til að komast í kynni við ókunnuga menn án þess að eiga á hættu að vera hafnað. Jafnvel þótt hann viti og þú vitir að hann viti að í raun og veru langi þig að kynnast honum er kosturinn sá, að bæði látist þið ekki vita það. Þú ert alls ekki að koma óheiðarlega fram, aðeins að reyna að koma af stað samræðum við mann, sem annars hyrfi úr lífi þínu fyrir fullt og allt. Frakka konan Gakktu beint við verks. Ef 40
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.