Vikan - 25.06.1998, Blaðsíða 30
heimili
Ernilía Björg: „ Þær eru orðnar margar lopapeys-
urnar sem hafa farið í gegnum hendurnar á okkur. Ála-
foss gaf út prjónablað fyrir þremur árum, mikinn
doðrant, og saumaklúbburinn er búinn að prjóna sig í
gegnum hann margoft. Þegar ég tilkynni í sauma-
klúbbnum að ég sé byrjuð á nýrri lopapeysu spyrja þær
gjarnan hvaða uppskrift ég ætli að nota. Ef ég segi
þessa númer fjórtán eru þær um leið með á nótunum.
Eg var stödd í verslun nýlega og sá að það er komin út
ný prjónabók frá Álafossi. Það er mikill hvalreki fyrir
saumaklúbbinn."
Auður: „Að sitja og horfa á sjónvarp finnst mér
mikil tímasóun, ég verð að hafa eitthvað í höndunum
á meðan og þá liggur handavinnan vel fyrir. Stundum
þegar ég horfi á gamla mynd í sjónvarpinu hugsa ég:
Þessa hef ég séð áður, það var þegar ég var að prjóna
bláu peysuna, eða eitthvað því um líkt.“
„Hugmyndirnar að bútasaumstepp-
unum fáum við úr blöðum og bæklingum. Svo auðvitað
breytum við þeim, það er svo gaman að blanda saman alls konar efnum
og litum. Við notum alla búta sem til falla, rífum niður gamlar skyrtur og klipp-
um tölur af gömlum flíkum og notum þær. Dúkkurnar klæðum við í sokka sem eru
orðnir lúnir og götóttir. Bútasaumskona, sem tekur hlutverk sitt alvarlega og hitt-
ir aðra konu í boði segir ekki hvað hún sé í fallegum kjól, heldur segir hún: „Mik-
ið er fallegt efnið í kjólnum þínum."
„Af Öllu því, sem ég hef glatað um æv-
ina, sakna ég heilans allra mest“, stend-
ur skrifað á svuntu þessarar langþreyttu
konu. Á ermina er festur tossalistinn
yfir öll verkefnin sem hún þarf að leysa
af hendi þennan daginn.
Erla: „Þessa dagana er ég að gera risastórt búta-
saumsrúmteppi. Þegar kemur að því að sauma bút-
ana saman þá ætla ég að raða því á gólfið og fá
saumaklúbbsstelpurnar til að setjast í hringinn í
kringum það og hjálpa mér að sauma það saman. Við
gerum alltaf meira og meira af því að búa til búta-
saumsteppi, -dúka, -veggteppi. Þetta er skemmtilegt
og ekki eins mikil handavinna og margir halda. Þetta
er mikið til unnið í saumavél."
Þær gerast nú ekki miklu
skemmtilegri dúkkurnar, en þær sem
systurnar hafa búið til. Iðna hús-