Vikan


Vikan - 01.03.1999, Side 2

Vikan - 01.03.1999, Side 2
Texti: Þórunn Stefánsdóttir Myndir: Gunnar Gunnarsson I>að fcr ckkcrl á inilli inála að þarna cr daina á fcrðinni. Stoll nióðir nicð litlu diimunu scm fyrst var talin vcra strákur! _ ins þegar fram líða stundir. Svala segir óþolinmæði systkinanna ekki koma að sök, þau séu bæði hraustir krakkar. „Enda hefur verið vel fylgst með þeim, ung- barnaeftirlit hér á íslandi er til fyrirmyndar og á fæðing- ardeildinni er yndislegt starfsfólk sem veitir sængur- konunum frábæra þjón- ustu.“ Áður en þau Svala og Arthúr Björvin eignuðust börnin tvö dvöldu þau í hálft ár í Grikklandi við skriftir. „Við bjuggum sunn- arlega á meginlandinu. Við vorum þarna að vetri til og hitinn var notalegur, yfir- leitt um tuttugu stig. Við bjuggum í húsi sem grísk kona lét byggja á sínum tíma. Það er ósvikin grísk stemning í þessu húsi; stein- flísar á gólfum og stór eld- stæði úr höggnu grjóti. Hús- ið stendur í fallegu rjóðri og það var ekki amalegt að sitja úti á veröndinni og borða morgunmatinn. Við stefnum að því að fara aftur til Grikklands þegar börnin eru orðin eldri, þarna er gott mannlíf og það er gott fyrir börn að upplifa fegurð- ina og hlýjuna í Grikk- landi.“ Vikan óskar Svölu og Arthúri Björgvin til ham- ingju með fjölgunina og við vitum að Svala verður fljótt nógu hress til þess að fara aftur að gagnrýna leiksýn- ingar fyrir Vikuna. IFjölskyldan samankomin í stofunni heima. Þau Svala Arnardótt- ir og Arthúr Björgvin Boilason eignuðust soninn ívar Má fyrir 18 mánuðum. Þau létu ekki þar við sitja og nú fyrir stuttu eignaðist ívar Már litla systur. Þau systkinin eiga það sameiginlegt að vera forvitin og hvorugt þeirra sá ástæðu til þess að bíða þolin- Imóð þá níu mánuði sem ætlast er til að nýir ríkisborgarar þrauki í móðurkviði. _ fcrf EÍTfErípÆ \rrrr r;rf [æa e g fékk meðgöngu- eitrun meðan ég ^gekk með ívar Má,“ segir Svala, sem er alsæl með börnin sín tvö. „Hann fæddist einum og hálfum mánuði fyrir tímann og hann var þrjár vikur á vöku- deildinni. Þegar þrjár vikur voru eftir af meðgöngu litlu döm- unnar missti ég vatnið. Hún var ekki búin að snúa sér þannig að það þurfti að taka hana með keisara- skurði. Hún var tíu merkur og hraust og hress“. Svala segist hafa verið viss um, þegar hún gekk með ívar Má, að hún gengi með strák. „Þegar ég varð ófrísk aftur var ég aftur nokkuð viss um að þetta væri annar strákur og þess vegna kom mér ekki á óvart þegar ég heyrði lækninn til- kynna eftir keisaraskurðinn að fæddur væri strákur. Ég varð því mjög hissa þegar stuttu seinna heyrðist konu- rödd sem sagði: „Hvaða vit- leysa, þetta er stelpa! Þannig að í örfá andartök stóðum við Arthúr Björgvin í þeirri trú að við værum foreldrar tveggja stráka.“ Það fer ekkert á milli mála að þarna er dama á ferðinni. Hún er kvenleik- inn holdi klæddur og á ör- ugglega eftir að vekja ómældan áhuga hins kyns- 2 Vikan

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.