Vikan


Vikan - 01.03.1999, Blaðsíða 51

Vikan - 01.03.1999, Blaðsíða 51
lána þér svarta silkikjólinn minn, sagði vinkonan. Ég er viss að hann klæðir þig. Nei, Birgitta vildi ekki fá kjólinn lánaðan. Hún neitaði að sigla undir fölsku flaggi. Hún vildi heldur ekki fá lánaða perlufestina hjá Móniku frænku, þessa sem hún hafði keypt eftir að hinni var stolið. Hún væri alveg nógu fín í svarta pils- inu og toppnum sem hún hafði keypt á flóamarkaðn- um. Hún vildi sýna sig í réttu ljósi. Mónika, sem auðvitað vissi ekkert um gifta mann- inn né arftaka hans, talaði eins og Patric væri fyrsti maðurinn í lífi Birgittu og brúðkaupið væri handan hornsins. Birgitta sagði ekk- ert en hugsaði með sér að það væri hræðilegt ef hún yrði ástfangin af Patric Baker og ætti eftir að ganga í gegnum nýja ástarsorg þegar hann að lokum þakk- aði pent fyrir sig. Hún sá andlit hans fyrir sér, sterka andlitsdrættina, tjáningarfull augun, þykkt hárið og sólbrúna húðina. Hún gat heldur ekki varist því að hugsa um vöðvastælt- an líkamann og grannar, sterklegar hendurnar. Hjart- að tók kipp í brjóstinu þeg- ar löngu gleymdar ástríður skutust upp á yfirborðið og komu henni til að skjálfa eitt augnablik. Veitingahúsið var hvorki dýrt né fínt. Það var eins gott, þar sem Patric upp- götvaði eftir matinn að hann hafði gleymt ávísa- heftinu heima og Birgitta varð að borga með pening- unum sem Mónika hafði gefið henni fyrir nýjum kjól. Hann var henni mjög þakk- látur og kyssti hana í súlna- göngunum við innganginn í veitingahúsið. Þau tóku leigubíl heim til hans. Hann bjó í huggulegri íbúð á efstu hæð með útsýni yfir skemmtigarðinn. Birgittu leið undarlega, eins og hún stæði til hliðar og horfði á sjálfa sig. Hún vildi njóta hans, hann var svo fallegur. Hún vildi fá hann og ljúka því af. Hann var ekki henn- ar manngerð. En hann stóð henni til boða og hvers vegna ekki að slá til? Henni leið ekkert of vel. Þegar öllu var á botninn hvolft, liði henni betur heima með tebolla og góða bók. Hún hafði heldur ekki í hyggju að deila peningum Móniku með öðrum þegar að því kæmi. Hún ætlaði að eignast risíbúð í West End, kaupa antíkstólinn í búðarglugganum og sitja í honum á kvöldin við arineld og fylla fataskápinn göml- um, sérkennilegum, blúndu- skreyttum silkifötum. Hún var drukkin þegar hún fór heim með Patric. Ekki svo drukkinn að hún vissi ekki hvað hún væri að gera, en nógu drukkin til þess að standa á sama og nógu drukkin til að sleppa öllum hömlum, en nógu allsgáð til að vita um höml- urnar og að þær mundu láta á sér kræla seinna. Hún smaug í fang hans, ákveðin í að njóta þessa manns; legg- ja í ferð sem allir þurfa að upplifa einu sinni á ævinni. Það var öðruvísi að njóta ásta með honum en nokkrum öðrum. Það hafði hún vitað fyrirfram og þess vegna var hún hér. Um nóttina bilaði hitakerfið í íbúðinni. Inni var ískalt, en Birgitta tók ekkert eftir því í hlýjum faðmi Patrics. Hún var þyrst þegar hún vaknaði. Hún lá í heitu rúminu og naut þess að horfa á Patric þar sem hann svaf. Hún hugsaði um þessa yndislegu nótt sem þau höfðu átt saman, ákvað að nú væri komið nóg og hún ætlaði aldrei að hitta hann aftur. Það væri að bjóða hættunni heim og hún hafði ekki efni á því að taka þá áhættu. Hún flýtti sér fram úr rúminu. Patric var vakn- aður, brosti letilega og teygði sig eftir henni. Hún sagðist ætla að hita te handa þeim. Patric yppti öxlum, skreið undir sængina og kvartaði undan kuldanum. Hitakerf- ið hérna er bara alltaf í ólagi. Ekki láta þér verða kalt, sagði hann syfjulega. Finndu eitthvað hlýtt í fata- skápnum. Birgittu mundi aldrei dreyma um að ganga nakin í annarra manna íbúð, jafn- vel þótt hún væri í miðju hitabeltinu. Hún leit í kring- um sig meðan vatnið var að hitna. Patric var greinilega ekki mikið fyrir tiltektir. Lé- leg plaköt huldu veggina. Hann átti ekki margar bæk- ur og flestar voru þær vís- indaskáldsögur. Hún varð því undrandi þegar hún rak augun í listaverkabók eftir Vasaris. Það fór hrollur um hana. Var henni svolítið kalt eftir allt saman? Hún færði Patric tebolla, en lét hann á náttborðið, þar sem Patric hafði sofnað aftur. Skjálf- hent opnaði hún fataskáp- inn. Hann átti ótrúlega mikið af fötum. Galla- buxnajakkinn með fiðr- ildamyndinni birtist skyndilega fyrir augun- um á henni. Allt lagðist á eitt til að gera hann áberandi. Meira að segja sólin skein inn í fataskáp- inn. Birgitta starði á jakk- ann. Hún virti fyrir sér fiðrildin, fjólublá, grænblá, kóngablá og bleik, sem flögruðu í kringum tvær út- sprungnar, gular liljur. Hún tók jakkann af herðatrénu og fór í hann. Hann var yndislegur. Nákvæmlega eins og hún hafði ímyndað sér. Hún horfði á Patric og velti því fyrir sér hvort hún ætti að kyssa hann að skiln- aði. Nei, það var best að láta það eiga sig. Hún lædd- ist út og vissi að þau myndu aldrei hittast aftur. Létt í lundu hljóp hún niður stig- ana út í tært morgunloftið. Hún fann ekki fyrir kuldan- um í jakkanum með fallegu fiðrildunum. Jakkanum, sem með réttu var hennar. Vikan 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.