Vikan


Vikan - 01.03.1999, Blaðsíða 62

Vikan - 01.03.1999, Blaðsíða 62
MECCA SPA ...fallegu gjafakortunum í MECCA SPA - Musteri heilsunnar í Kópavogi. Þegar gefa á tækifærisgjöf er gjafakort t.d. í handsnyrtingu, fótsnyrtingu, lúxus andlitsbað eða slakandi spameðferð alveg tilvalin gjöf og miklu skemmtilegra heldur en vínflaska eða stytta sem endar hátt uppi í skáp. ...Kvikmyndaþættinum „Bak við tjöldin með Völu Matt“. Á skjá einum er nýhaf- inn íslenskur kvikmyndaþáttur þar sem Vala fylgist með því helsta sem er að gerast í kvikmyndagerð hér á landi og úti í hinum stóra heimi. Myndbönd koma líka við sögu og þekkt fólk mælir með áhugaverðustu myndunum á myndbandaleigunum. Þáttur- inn er sýndur á fimmtudagskvöldum kl. 22 og endurtekinn á laugardagseftirmiðdögum kl. 14. Skjár 1 er íslensk sjónvarpsstöð sem rekin er fyrir auglýsingatekjur og er ókeypis skjár^, ...handhæga upplýsingabæklingnum „Áning 1999. Gististaðir á íslandi“. Þar er að finna aðgengilegar upplýsingar um helstu gististaði á landsbyggðinni. Það er ekki nóg að panta sólarlanda- ferðir í tíma. Ferðir innanlands þarf ekki síður að skipuleggja svo þær verði sem skemmtilegastar og komi sem best út fjárhagslega. Bæk- lingurinn liggur frammi á öllum upplýsingastöðum ferðamálaráðs, í sund- laugum, einstaka bókabúðum og víðar. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið! ...sunnudagsmorgnum á Rás 1 kl. 10.15. Þovuntl Vuldimursdóttir sér um þáttinn „Horfinn heimur - Aldamótin 1900“ Á sama tíma og flestir leiða hugann að komandi aldamótum hefur Þórunn verið að skoða aldamótin 1900. Horfinn heimur er skoðaður með aðstoð landsmálablaðanna t.d. Þjóðviljans, Fjallkonunnar, ísafoldar og Þjóðólfs. Leitast er við að láta aldamótamann- inn og samtímamanninn hittast, þar sem samtímamaðurinn fær að skyggnast inn í þjóðfélagið með því að skoða framfarir í læknavísindum á þeim tíma, fylgjast með innlendum fréttaskotum, slysum, dánarfregnum, samhjálp og fleira. Sannarlega skemmtileg tilbreyting frá öllu 2000-fárinu. ...bókinni Tantra - Listin að elska meðvitað. Orðið Tantra vitnar í leyndar bækur hindúa sem lýsa sérstökum helgiat- höfnurn kynlífsins, aga og hugleiðslu. Hjónin Charles og Maroline Muir, sem skrifa bókina, segja Tantra mikilvægt tæki fyrir pör nútímans sem vilja við- halda ást og kynlífsástríðum til fram- búðar. Þau segja kynlíf Tantra ekki lofa tafarlausum árangri, það sé ekki nein „einnar mínútu“ uppskrift til kynlífs- afreka. En munið að æfingin skapar meistarann! Ekki missa af...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.