Vikan - 01.03.1999, Blaðsíða 42
Fermingarveislan
kurlinu. Hellið brædda
súkkulaðinu saman við og
síðan er þeytta rjómanum
blandað varlega saman við.
Bleytið tertubotnana með
ananassafa og setjið fylling-
una á milli.
Hjúpur og skraut:
3 dl rjómi, þeyttur
u.þ.b. 300 g marsipan,
útflatt (fœst tilbúið í
Nýkaup)
4-6 stk. jarðarber,
skorin til helminga
100 g suðusúkkulaði
Kakan er smurð ofan á og í
hliðunum með hluta af
þeytta rjómanum. Þá er út-
flatta marsipanið mótað eft-
ir kökunni og lagt ofan á.
Skreytið með rjóma og jarð-
arberjum (sjá mynd bls. 41).
Suðusúkkulaðið, brætt yfir
vatnsbaði. Takið smjör-
pappír og penslið súkkulað-
inu á hann þannig að úr
verði stórar súkkulaðiflögur,
1 - 2 strokur á hverja flögu
(sjá mynd bls. 41). Látið
kólna, takið varlega af
pappírnum og raðið á hliðar
kökunnar og brjótið nokkr-
ar niður og setjið í miðjuna
(sjá mynd).
Marsipanterta
2 stk. tertubotnar:
150 g smjör
150g sykur
3 stk. egg
150 g hveiti
1 msk. kartöflumjöl
1 tsk. lyftiduft
Aðferð: Hrærið smjör og
sykur þar til hræran verður
létt og ljós. Bætið eggjunum
út í, einu í senn, og hrærið
vel á milli. Blandið saman
hveiti, kartöflumjöli og lyfti-
dufti og setjið varlega saman
við smjörhræruna. Setjið
deigið í 2 smurð, lausbotna
tertuform og bakið í 200°C
heitum ofni í u.þ.b. 10 mín-
útur, eða þar til botnarnir
eru bakaðir.
Makkarónu- og
ananasfylling:
250 g makkarónukökur
u.þ.b. 150 g ananaskurl
(niðursoðið)
100 g suðusúkkulaði,
brœtt yfir vatnsbaði
3 1/2 dl rjómi, þeyttur
Aðferð: Bleytið makkar-
ónukökurnar í ananas-
42 Vikan