Vikan - 01.03.1999, Page 62
MECCA SPA
...fallegu gjafakortunum í MECCA SPA
- Musteri heilsunnar í
Kópavogi. Þegar gefa á
tækifærisgjöf er
gjafakort t.d. í
handsnyrtingu,
fótsnyrtingu, lúxus
andlitsbað eða slakandi
spameðferð alveg tilvalin
gjöf og miklu
skemmtilegra heldur en
vínflaska eða stytta sem
endar hátt uppi í skáp.
...Kvikmyndaþættinum „Bak við tjöldin
með Völu Matt“. Á skjá einum er nýhaf-
inn íslenskur kvikmyndaþáttur þar sem
Vala fylgist með því helsta sem er að gerast
í kvikmyndagerð hér á landi og úti í hinum
stóra heimi. Myndbönd koma líka við sögu
og þekkt fólk mælir með áhugaverðustu
myndunum á myndbandaleigunum. Þáttur-
inn er sýndur á fimmtudagskvöldum kl. 22
og endurtekinn á laugardagseftirmiðdögum
kl. 14.
Skjár 1 er íslensk sjónvarpsstöð sem rekin
er fyrir auglýsingatekjur og er ókeypis
skjár^,
...handhæga upplýsingabæklingnum „Áning 1999. Gististaðir á
íslandi“. Þar er að finna aðgengilegar upplýsingar um helstu
gististaði á landsbyggðinni. Það er ekki nóg að panta sólarlanda-
ferðir í tíma. Ferðir innanlands þarf ekki síður að skipuleggja
svo þær verði sem skemmtilegastar og komi sem best út fjárhagslega. Bæk-
lingurinn liggur frammi á öllum upplýsingastöðum ferðamálaráðs, í sund-
laugum, einstaka bókabúðum og víðar. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið!
...sunnudagsmorgnum á Rás 1 kl. 10.15. Þovuntl Vuldimursdóttir sér
um þáttinn „Horfinn heimur - Aldamótin 1900“ Á sama tíma og flestir leiða
hugann að komandi aldamótum hefur Þórunn verið að skoða aldamótin 1900.
Horfinn heimur er skoðaður með aðstoð landsmálablaðanna t.d. Þjóðviljans,
Fjallkonunnar, ísafoldar og Þjóðólfs. Leitast er við að láta aldamótamann-
inn og samtímamanninn hittast, þar sem samtímamaðurinn fær að skyggnast
inn í þjóðfélagið með því að skoða framfarir í læknavísindum á þeim tíma,
fylgjast með innlendum fréttaskotum, slysum, dánarfregnum, samhjálp og
fleira. Sannarlega skemmtileg tilbreyting frá öllu 2000-fárinu.
...bókinni Tantra
- Listin að elska
meðvitað. Orðið
Tantra vitnar í
leyndar bækur
hindúa sem lýsa
sérstökum helgiat-
höfnurn kynlífsins,
aga og hugleiðslu.
Hjónin Charles og Maroline Muir, sem
skrifa bókina, segja Tantra mikilvægt
tæki fyrir pör nútímans sem vilja við-
halda ást og kynlífsástríðum til fram-
búðar. Þau segja kynlíf Tantra ekki lofa
tafarlausum árangri, það sé ekki nein
„einnar mínútu“ uppskrift til kynlífs-
afreka. En munið að æfingin skapar
meistarann!
Ekki missa af...