Vikan


Vikan - 01.03.1999, Blaðsíða 4

Vikan - 01.03.1999, Blaðsíða 4
Kæri lesandi... Stærri Vika f hverju er ekki framhaldssaga í Vikunni? Hvers vegna eru ekki fleiri lífsreynslusögur? Og af hverju erþátturinn Nýr stíll ekki alltaf í blaðinu? Þessar spurningar fœ ég oft frá lesendum sem hafa samband til að þakka fyrir Vikuna eða koma með hugmyndir. Sem betur fer hafa margir á orði að það sé svo mikið efni í blaðinu en óskir um framangreind atriði heyri ég gjarnan. Það er því gaman að geta boðið upp á stœrri Viku! Blaðið er orðið 64 síður í stað 56 áður og býður það upp á enn meiri fjölbreytni. Og í vor, þegar blaðið byrjar að koma út vikulega, verður loksins hœgt að verða við öllum þessum óskum. Vikunni hefur verið vel tekið og því er hœgt að bjóða upp á stœrra blað. Það hefur sýnt sig aðfólk villfá blað með miklu og fjölbreyttu efni, blað sem það getur notað inni á heimilinu, nýtt sér uppskriftirnar, ráðið krossgátur, reynt að vinna til verðlauna, slakað á yfir smásögu, skemmt sér við að taka persónuleikapróf víkkað sjón- deildarhringinn með þvi að lesa um áhugavert fólk eða fengið innsýn inn í líf annarra ígegnum lífsreynslusögur þeirra. Þetta og margt fleira er að finna í þessari Viku og vonandi kunnið þið vel að meta að fá stœrra blað í hendurnar. Stefnan er að vera oftar með þemaefni, fjölga lífsreynslusögunum, efna til smásagnasamkeppni, líkt og gert var síðastliðið sumar, og bjóða áskrifendum upp á skemmtilega vinningsmöguleika og óvœntan glaðning. Já, það er margt hœgt að gera þegar Vikan stœkkar og tölublöðunum fjölgar. Að þessu sinni beinir Marentza Poulsen sjónum sínum að fermingarveislum og gefiir okkur hugmyndir og girnilegar uppskriftir fyrir veisluborðið (bls. 38). Og hópur fólks tekur sig til og segir álit sitt á sjónvarpsfréttamönnunum sem við öH fylgjumst með og höfum skoðanir á. Það kemur þó í Ijós á bls. 6 að sumir sjónvarpsfréttamenn eru mjög ofarlega í hugum manna en á aðra er ekki minnst. Margt ungtfólk kemur „sterkt inn“ eins og það er stundum kallað, og aðrir fréttamenn fá ýmist hrós eða skammir. Hver skyldi vera kallaður „hástökkvari ársins“? Hver er „fljúgandi kraftaverk“? Og hver fær þau ummœli að vera „langflottasta týpan í íslensku sjónvarpi“? Þetta og margt fleira láta álitseiafarnir flakka á síðum 6 til 9. Líkamsrœkt og heilsa eru til umfjöllunar í ólíkum greinum á bls. 16 og 30 og glæsikonurnar með hattana eru sérlega flottar og skemmtilegar á bls. 24. Þær Guðrún Pétursdóttir, Kristín Helga Gunnarsdóttir og Inga María Valdimarsdóttir eru þekktar fyrir margt, en ekki fyrir að ganga með hatta. En þegar við á Vikunni fengum þœr til að máta hatta í Hatta- búð Höddu féllu þær alveg fyrir þessari skemmtilegu tísku og við eigum örugglega eftir að sjá þœr á góðri stund með hatta á höfði. Og karlar mega gjarnan taka ofanfyrir öllum þessum flottu konum sem birtast í þessari Viku. Njóttu Vikunnar Sigríður Arnardóttir ritstjóri Jóhanna Harðardóttir ritstjórafulltrúi Þórunn Stefánsdóttir blaðamaður Kristín Guðmunds- dóttir auglýsinga- stjóri Guðmundur Ragnar Steingrímsson Grafískur hönnuður : Útgefandi Fróði Seljavegur 2, Simi: 515 5500 Fax: 515 5599 Stjórnarformaður Magnús Hreggviðsson Aðalritstjóri Steinar J. ; Lúðviksson Sími: 515 5515 Framkvæmdarstjóri Halldóra ji Viktorsdóttir Sími: 515 5512 Ritstjóri Sigríður Arnardóttir Sími: : 515 5582 Vikan@frodi.is RitstjórafuIItrúi Jóhanna Harðardóttir Sími: 515 5637 Blaðamaður Þórunn Stefánsdóttir Simi: 515 : 5653 Thorunn@frodi.is Auglýsingastjóri Kristín Guðmundsdóttir jj Simi: 515 5628 Vikanaugl@frodi.is Ljósmyndarar Bragi Þór Jósefsson Gisli Egill Hrafnsson Sigurjón Ragnar Sigurjónsson Gunnar Gunnarsson Hreinn Hreinsson Grafiskur hönnuður Guðmundur Ragnar Steingrímsson Verð i lausasölu Kr. 459,-. Verð í áskrift ef greitt er með greiðslukorti Kr. 344,-. Pr eintak . Ef greitt er með gíróseðli Kr. 389,-. Pr. eintak. Unnið i Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir Askriftarsími:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.