Vikan - 01.03.1999, Síða 24
Texti:
Steingerður
Steinarsdóttir
Myndir:
Hreinn
Hreinsson
Förðun:
Erla Björk og
Sigga hjá
Face
%S
Ekki passa
allir hattar.
Síðustu ár hafa íslensk-
ar konur lítið gengið
með hatta. Þegar
amma var ung voru hattar
hins vegar svo nauðsynlegur
hluti af daglegum klæðnaði
að kona þótti nánast nakin
færi hún út án þess að bera
hatt eða annað höfuðfat.
Höfuðfat var sjálfsagt að
bera við jarðarfarir, annað
var óvirðing við hinn látna.
Allar konur áttu hversdag-
hatta en þær efnaminni
skreyttu þá gjarnan fjöðrum
eða borðum til að gera þá
sparilegri þegar á þurfti að
halda. Sparihattur var
reyndar svo nauðsynlegur
að eiga að vinnukona ein í
Reykjavík eyddi eitt sinn
mánaðarlaunum sínum í að
koma sér upp einum slík-
um. Þá, eins og nú, reyndi á
útsjónarsemi og
handlægni kven-
na í því að
halda við
gamla hattinn þegar á þurfti
að halda.
Hattagerð var virt iðn-
grein og kennd í Iðnskólan-
um. Um tíma voru reknar
átta hattabúðir í Reykjavík
og hattagerðarverkstæði í
tengslum við þær allar. Úti
um landið var einnig blóm-
leg hattagerð. Verk-
stæði var á Isafirði,
austur á fjörðum
og á Akureyri.
Á Englandi er
mikil hefð fyrir
notkun hatta bæði meðal
karla og kvenna. Konur á
Bretlandi mæta sjaldan
hattlausar í brúðkaup eins
og sást vel í myndinni Fjög-
ur brúðkaup og jarðarför
sem margir muna eftir.
Ascot veðreiðarnar eru þá
ekki síður þekktur vett-
vangur til að bera höfuðfat
og helst eins stórt og of-
skreytt og hægt er.
Húfur, alls konar, eru hins
vegar mikið notaðar á ís-
landi og ekki þykir tiltöku-
og endur-
skapa
Inga María: Sko, ég hefði átt að verða flugfreyja. Hvað var ég að
spá í leiklist. Svona bátar hæfa mér alveg.
Guðrún: Mér finnst þessar fjaðrir svo sætar. Ef maður er að þessu á
annað borð því þá ekki að fara alla leið og fá sér fjaðrahatt. Svei
mér þá, ég held það hafi bæst við nýr útgjaldaliður.
Kristín Helga: Svona fjaðrir eru einmitt á jólahattinum mínum.
24 Vikan
Inga María: Æðislegt, þetta er málið. Beðið eftir ellinni.
Kristín Helga: Maður gæti beðið í marga klukkutíma eftir
ellinni eða bara strætó því ekki yrði manni kalt á höfðinu.
Guðrún: Já, jafnvel staðið á þjóðveginum og beðið eftir
Norðurleiðarrútunni.
Inga María: Maður getur mótað þetta að vild.
Kristín Helga: Já og getur alveg hætt að greiða sér ef mað'
ur hefur svona húfu.
Guðrún: Flottur þessi kósakkastfil.