Vikan - 01.03.1999, Qupperneq 34
m Náinn vinur þinn reyn-
ir við þig. Hver eru við-
brögð þín?
a) Hvers vegna ekki? Þú
hefur engu að tapa og
hugsanlega eignastu
frábæran kærasta
b) Talar fyrst við hann
um hvernig kynlíf get-
ur eyðilagt vináttu
ykkar
c) Segir nei. Jafnvel þótt
þú elskir hann gerir þú
þér grein fyrir að kyn-
líf með vini þínum
breytir öllum tilfinn-
ingum ykkar
d) Spilar með. Hann er
nú einu sinni svo ein-
mana og dapur
e) Hafnar honum og
ákveður að binda endi
á vináttuna þar sem þú
veist að þér mun hér
eftir líða illa í návist
hans.
STIGIN
1. Já l stig, Nei 3 stig.
2. d) 1 stig, b) og c) 1 stig,
f) og g) 3 stig,
a) og e) 4 stig.
3. a) 3 b) 1 c) 0 d) 4 e) 2
4. a) 4 b) 1 c) 0 d) 3 e) 2
5. a) 1 b) 3 c) 4 d) 2 e) 0
6. a) og c) 1 stig, b), f), g)
og h) 4 stig, d og e 5 stig
7. I. Já 1 stig, nei 3 stig
II. Já 1 stig, nei 4 stig.
8. a) 0 b) 1 c) 2 d) 3 e) 3
9. a) 0 b) 2 c) 3 d) 4 e) 1
10. a) 0 b) 2 c) 3 d) 4 e) 1
11.1. a) 2 b) 3 c) 1 d) 0 e) 4
II. a) 4 b) 3 c) 2 d) 1 e) 0
12. a) 0 b) 1 c) 2 d) 3 e) 4
13. a) 3 b) 2 c) 4 d) 1 e) 0
14. a) 1 b) 0 c) 3 d) 2 e) 4
15. a) 4 b) 2 c) 1 d) 3 e) 0
Samtals:
Þú ert einmana sál.
Kannski er skýringarinnar
að leita í feimni, þú hefur
flutt oft á milli staða í æsku,
eða einhver þér nákominn
yfirgefið þig. Allt þetta get-
ur verið skýringin á því
hvers vegna þú átt erfitt
með að treysta öðrum. Ef til
vill setur þú annað en vin-
áttu ofar á forgangslistann,
t.d. starfsframann. En nið-
urstaðan er sú sama: Sam-
band þitt við annað fólk er
yfirborðskennt, fyrir utan
örfáar trúnaðarvinkonur og
jafnvel þeim heldur þú í
hæfilegri fjarlægð. Ef þú ert
ánægð með hlutina eins og
þeir eru þá er það í góðu
lagi, sumir gera sig ánægða
með að eiga aðeins einn eða
tvo nána vini. En þú ættir
að hafa í huga að það er
hollt að kynnast nýju fólki
og víkka sjóndeildarhring-
inn.
21-41: EIN AF
STRAKUNUM
Þér líður best í félagsskap
karlmanna. Þannig konur
eru oft pabbastelpur og vilja
sitja einar að karlmönnun-
um og hafa nóg af þeim í
kringum sig. Þetta leiðir til
þess að þú átt auðvelt með
að ráða við ástarsambönd
vegna þess að þú þekkir
þankagang karlmanna út og
inn. Að öllum líkindum eru
mennirnir, sem þú lendir í
ástarsamböndum með, á
svipuðum nótum og þeir
sem eru vinir þínir.Vinir af
karlkyninu krefjast lítillar
athygli og umönnun. Vin-
átta karla gengur út á það
að gera eitthvað saman,
frekar en að deila einhverju
saman og oft líða margar
vikur án þess að þeir láti í
sér heyra. Það er ekki þar
með sagt að vinátta við
karla geti ekki verið djúp og
einlæg en þú ættir samt að
eiga eina nána vinkonu sem
þú getur leitað til í erfið-
leikum.
42-63: HEIMSINS
BESTI VINUR
Þú ert vinur vina þinna í
gegnum þykkt og þunnt en
þú verður að gera þér grein
fyrir því að þú getur ekki
verið besti vinur allra sem
þú umgengst. Trygglyndi
gerir þig eftirsótta í augum
gagnstæða kynsins því sagt
er að vinátta og ástarsam-
band séu af líkum toga, sá
sem er góður vinur er ein-
nig góður elskhugi. Sagt er
að lík börn leiki best en
einn af kostum vináttunnar
er sá að með ólíkum per-
sónum upplifir maður ólíka
atburði. Þannig að ef allar
þínar vinkonur eru konur
Ekki líta á vini þína
sem sjálfsagðan
hlut. Það er ekki
nóg að muna eftir
þeim þegar þér
hentar. Vinátta er
ein af grunnþörfum
mannsins. Hún
gerir okkur kleyft
að deila sorgum og
gleði með öðrum.
undir 35 ára og eiga allar í
vandræðum með eigin-
mennina þá getur vissulega
verið hressandi fyrir þig að
umgangast einhverja sem
hugsa á allt öðrum nótum.
64-84:
VINÁTTUFÍKILL
Stigin þín sýna að gott er
að eiga þig fyrir vin, þú ert
skilningsrík, trygglynd og
einlæg. En þú metur vinátt-
una í smáatriðum, t.d. tím-
ann sem varið er til að kryf-
ja ástarlífið, vinnuna, megr-
unarkúrana og fötin. Gall-
inn er sá að þú treystir of
mikið á vini þína. Þér hættir
til að vera svo upptekin af
þeim að þú gleymir þeim
aðila sem mikilvægastur er;
sjálfri þér. Þér finnst að þú
verðir að gefa endalaust af
sjálfri þér til þess að fólki
líki við þig. En mundu að
þér verður að þykja vænt
um sjálfa þig til þess að öðr-
um geti þótt vænt um þig.
Auðvitað er það notaleg til-
finning að allir hugsi sem
svo að þú sért óeigingjörn.
En vinátta felst í því að vera
til staðar án þess að fórna
sér fullkomnlega.
85-105: HÓPSÁLA
Þér finnst þú vera alein í
heiminum ef þú ert ekki
umkringd herskara af vin-
um og fullbókuð í sam-
kvæmislífinu til aldamóta.
Auðvitað getur þetta tákn-
að að þú lifir hamingjusömu
og rómantísku lífi, gangi vel
í vinnunni og líði vel.
Ókostirnir eru þeir að þetta
bendir til þess að þú sért
mjög háð vináttu annarra
og setur magn ofar gæðum.
Þér finnst þú aldrei eiga nóg
af vinum, en átt í rauninni
marga kunningja en fáa
vini. Svo það er ekki ólík-
legt að þú farir á mis við
það sem er dýrmætast við
vináttu; náið tilfinningasam-
band við aðra manneskju.
Skoðaðu símanúmerabók-
ina þína. Einbeittu þér að
því að enda yfirborðsleg
kunningjasambönd og rækt-
aðu sambandið við þá sem
eru þér meira virði. Það
gerir þig færari til að mynda
nánari sambönd, andleg
jafnt sem líkamleg.
34 Vikan