Vikan - 01.03.1999, Síða 63
...Withney lliistoii. l*essi
|)okkal'iilla siinj>koiia sendi
nýlega l'rá sér plötima „My
love is your love" og er það
fyrsta stúdíóplata hennar í
átta ár. I’latan hel'ur fengið
góða dónia erlendis, nieóal
annars í liliióinn cins
og Rolling Stone og
USA Today. Með-
al annars liefnr
verið sagt að
platau liiifði
hieði til eldri að-
dáenda og að-
dáenda af nvrri
kynslóð. Tón-
listin er blanda
af halliiðinn a
la Withney
Huston og
poppliignni
seni sýna af
hverju skvísán
Whitney Hou-
ston hcfur verið
ein vinsælasta
siingkona heinis
iHlli undanfarin 13 ár.
...þáttaröð um fjölskylduna
sem séra Þórhallur Heimis-
son sér um á Rás 1 á fimmtu-
dögum kl. 15.03 og eru endur-
fluttir á þriðjudagskvöldum.
Fjallað er um fjölskylduna og
hag hennar undir lok aldar-
innar. Borgar sig að vera í
hjónabandi? Er tekið tillit til
ólíks fjölskyldumynsturs í
þjóðfélaginu? Einnig er m.a.
rætt um vonir og vonbrigði í
sambúð og hjónabandi.
...Næstu Viku. Eins og lesendur hafa tek-
ið eftir hefur Vikan stækkað og fá lesend-
ur því enn meira af
áhugaverðu efni í
næstu blöðum. Með-
al annars má nefna
að hinum vinsælu lífs-
reynslusögum Vikunn-
ar, þar sem lesandi
segir frá, verður fjölg-
að. Og þar sem fólk er
farið að þrá vorið verð-
ur boðið upp á uppskrift
að litríkum vorfatnaði á
börnin.
Kona Vikunnar
Hvað heillar þig
mest f fari annars
fólks?
Það er svo margt sem heillar
mig og ekki neinn sérstakur
eiginleiki, ætli það sé ekki
heildarsumman sem gildir.
Fólk sem klárlega ræður ferðinni sjálft, lætur það ekki vera
undir aðstæðum eða öðrum komið hvort það lifir inni-
haldsríku lífi er mér að skapi. Ég heillast líka af fólki með
heilbrigðan metnað og trú á því sem það er að gera. Ef ég
á að nefna einstaka persónuleikaþætti þá eru einlægni og
hreinskilni þeir sem koma mér strax til hugar.
Kona Vikunnar er Kristín Jónsdóttir, endurmenntunar-
stjóri Háskóla íslands. Kristín er skólastjóri eins stærsta
skóla landsins því á bilinu 400-500 manns sækja námskeið
hjá Endurmenntunarstofnun HÍ á ári hverju og hvergi í ís-
lenskum skóla er eins fjölbreytt úrval námskeiða og þar.
Langskólanám er ekki skilyrði fyrir þátttöku í námskeiða-
haldi Endurmenntunarstofnunnar og allir námsfúsir ættu
að kynna sér bækling skólans og gildir þá einu hvort þeir
hyggja á meiri hæfni í mannlegum samskiptum eða sér-
hæfða fagþekkingu.
Hvað gerir þig glaða?
Að sjá son minn þroskast.
Hvað gerir þig sorg-
mædda?
Að verða vitni að því að börn
eru beitt hörku.
Hvar líður þér best?
í hreinskilni sagt þá hef ég það
mjög gott í faðmi kærastans
míns.
Hvers jgætir Jþú síst
verið an í lífmu?
Vinnu sem mér finnst skemmti-
leg. Ég hef verið mjög lánsöm
að hafa notið mín í þeim störf-
um sem ég hef sinnt.
Hvað fer mest í taug-
arnar á þér?
Fólk sem er með yfirgang og
hroka. Verst er að sjá það
beita hroka við fólk sem áttar
sig ekki á að í rauninni eru
hrokagikkirnir óöryggir og með
lítið sjálfstraust.
Hvaða persóna hefur haft mest áhrif á
líf þitt?
Systkini mín - hvert á sinn hátt - hafa haft mjög mótandi
áhrif á mig. Margrét S. Björnsdóttir fyrirrennari minn í
starfi hefur líka haft töluverð áhrif á afdrifaríkar ákvarðan-
ir sem ég hef tekið.
Eg þarf að koma á meira jafnvægi milli einkalífsins og
vinnunnar. Skipuleggja starfið þannig að ég geti verið
meira með syni mínum og fólki sem er mér kært - og verði
sátt við það.
Amtsbókasafnið á Akureyri
03 591 143