Vikan


Vikan - 29.06.1999, Qupperneq 4

Vikan - 29.06.1999, Qupperneq 4
Kæri lesandi... Veslings Keikó „Mannúð okkar manna er mikil og dásamlig," segir í kvæðinu og það má til sanns vegar færa. Ég var áferð í Vestmannaeyjum um daginn og mér varð hugsað til þess hversu illa við stöndum okkur íþeirri ábyrgð sem okkur erfalin gagnvart öðrum lifandi verum. Veslings Keikó, sá víðfrægi hvalur, er gott dœmi um tvískinnunginn. Að- standendur Keikós voru í einhverjum vandrœðum með hann í búrinu sínu í Oregon. Einhver snillingur fékk þá frábœru hugmynd að leysa vandann með þvíað „frelsa“ hann og koma honum heim til fjölskyldunnar á nýjan leik. Stórkostleg lausn! Islendingar voru nógu vitlausir (eða kœrulausir) til að taka þátt í þessum skrípaleik og hingað er hvalgarmurinn kominn og því verður ekki breytt. Fúlgum fjár, miklum tíma og vinnu hefur verið eytt til að „þjálfa“ hvalinn fyrir þá stóru stundþegar á að sleppa honum lausum til fjölskyldu sinnar (sem vœntanlega bíður eftir honum rétt utan við Klettsvíkina!) en allt kemur fyrir ekki. Keikó fer ekkert fram. Hvernig gat nokkrum heilvita manni dottið þessi dómadags vitleysa í hug? Keikó er eins og hvert annað gœludýr. Hann hefur ekki þurft að veiða sér til matar, það hefur verið gœlt og leikið við hann alla hans ævi og hann kann ekki, og mun aldrei læra, að bjarga sér í hafinu. Vita aðstandendur Keikós ekki að ef maðurinn tekur villt dýr úr náttúrulegu umhverfi sínu verður þvíþaðan ífrá hafnað afvilltum meðbrœðrum sínum? Petta gerist meðal allra dýrategunda. Nú er búið að banna gœslumönnum Keikós að gœla við hann eða skipta sér afhonum. Það á með öllum ráðum að venja hann afumsjón mannsins. Ég spyr: Er það fallega gert að taka dýr og gera það háð sér á allan hátt og klippa svo allt í einu á böndin og vísa dýrinu aftur út á „mörkina" þar sem útilokað er að það geti bjargað sér? Gamall maður, sem ég þekkti, átti hund sem hann elskaði mikið. Gamli maðurinn varð veikur og sá fram á að geta ekki sjálfur sinnt hundinum. Hann brá á það ráð að láta svæfa hundinn. Ég spurðiþennan aldna vin minn hvort þetta hefði ekki verið sársaukafull ákvörðun og hann svaraði: „Jú, en þetta var það bestafyrir okkur báða. Hann var ofháður mér til að geta verið hamingjusamur án mín. Ég hefði aldrei getað fyrirgefið sjálfum mér að láta hann frá mér. “ Þetta er sönn mannúð. En það er komin ný Vika. Enn sem fyrr er hún full affrábœru lesefni og við vonum og trúum að allir geti fundið eitthvað við sitt hœfi. Við heimsœkjum Eyjar, skoðum sálarlíf landans ísönnum lífsreynslusögum og kynnumst nýj- um rabarbarauppskriftum. í Vikunni má einnig finna greinar um umönnun sjúkra, fallegt skraut í garðinn og nátt- úrulegar snyrtivörur og svo mœtti lengi telja. Og enn og aftur... njóttu Vikunnar! Jóhanna Harðardóttir Steingerður Hrund Margrét V. Steinars- Hauksdóttir Helgadóttir dóttir blaðamaður blaðamaður blaðamaður Kristín Anna B. Guðmundur Guðmunds- Þorsteins- Ragnar dóttir dóttir Steingrímsson auglýsinga- auglýsinga- Grafískur stjóri stjóri hönnuður Ritstjóri Sigríður Arnardóttir Útgefandi Fróði Seljavegur 2, Sími: 515 5500 Fax: 515 5599 Stjórnarformaður Magnús Hreggviðsson Aðal- ritstjóri Steinar J. Lúðvíksson Sími: 515 5515 Framkvæmdarstjóri Halldóra Viktorsdóttir Sími: 515 5512 Ritstjórafulltrúi Jóhanna Harðardóttir Sími: 515 5582 Vikan@frodi.is Blaðamenn: Steingerður Steinarsdóttir, Hrund Hauksdóttir og Margrét V. Helgadóttir Auglýsingastjórar Kristín Guðmunds- dóttir og Anna B. Þorsteinsdóttir Vikanaugl@frodi.is Grafískur bönnuður Guðmundur Ragnar Stein- grímsson Verð I lausasölu Kr. 459,-. Verð í áskrift ef greitt er með greiðslukorti Kr. 344,-. Pr eintak . Ef greitt er með gíróseðli Kr. 389,-. Pr. eintak. Unnið í Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.