Vikan


Vikan - 29.06.1999, Qupperneq 10

Vikan - 29.06.1999, Qupperneq 10
 "MMWa og amma. “w*3MBK3a&!*«- fullt af fólki. Um leið og ég mótmælti var tekið tillit til þess og fólkið fór í burtu. Ég fílaði þetta engan veginn. Akveðnir aðilar í þessum bransa virðast ekki kunna nein takmörk f kringum nektar- myndatökur. Það þarf ekki alltaf að sýna allt til að það sé flott. „Less is more". í mynda- tökunum sem ég var síðast var ég allsnakin en það voru samt flottar myndir. Ég hef verið beðin um að mæta í svæsnar myndatökur en það er ekki minn stíll. Bransinn er einfald- lega þannig að það eru svo margir sem eru tilbúnir í djarfar myndatökur fyrir litlar upphæð- ir. Finnst þér ekki erfitt að sjá sjálfa þig í blöðunum? „Nei. Fyrsta nektarmyndin af mér var andlitslaus í Bleiku&Bláu. Síðan þegar and- litið fór að birtast fannst mér þetta ekki vera neitt mál. Fyrir mér er þetta bara líkaminn minn. Þetta er ekki ég sjálf." Nú byrjaðir þú frekar seint að sitja fyrir miðað við margar stelpur, sem hefja fyrirsætuferil- inn í kringum fermingu. Af IMyndir af llclgu í jólaleg- iiiii iótiini birt- ust í Scð&Heyrt í kringuui síð- uslujól. hverju byrjaðirðu að sitja fyrir? „Mér finnst ég ekkert vera svonagömul! Að ákveðnu leyti er þetta hégómagirnd og gefur manni mikið sjálfsálit. Maður sér svo fallegar myndir af sjálf- um sér, ekki einhverjar myndir sem eru teknar í fermingar- veislu þar sem maður er ómál- aður og sést ekki í andlitið. Mér finnst þetta ekki vera neitt persónulegt. Fyrir mig er þetta líka enduruppbygging sjálfsá- litsins sem var gjörsamlega í molum. Mér finnst skemmtilegt að kynnast þessum heimi og að honum koma margir ólíkir aðil- ar. Ég mæli alveg sérstaklega með ljósmyndurnum Braga Þór Jósefssyni og Baldri Bragasyni. Þeir eru mjög fag- mannlegir." Námið og nektin Færðu vel borgað fyrir myndirnar? „Nei. Þetta er alls ekki vel borgað, hvorki á Islandi né hjá Playboy. Ég fékk hins vegar aðdáendabréf víða að úr heiminum. Ég fékk eitt tilboð um nektar- myndatöku í Brussel eftir Play- boy myndirnar en mér leist ekk- ert á það. Nú er það fremur sjaldgæft að stúlkur sem hafa lokið háskóla- prófi sitji fyrir á nektarmyndum. Hefur þú heyrt þær raddir að fólki finnist það ekki sæmandi svo vel menntaðri konu? „Nei. Ég hef aldrei heyrt þetta fyrr en mér finnst þetta bara fyndið. Mér finnst þetta áhugaverður punktur í umræð- unni." Heldur þú að myndirnar frægu verði dregnar fram og sýndar barnabörnunum þegar fram líða stundir? „Ég held ég verði frekar sjokkerandi mamma og amma. Ég á eflaust eftir að sýna þær og segja að svona helvíti flott hafi ég nú einu sinni verið. Þau munu sjálfsagt svara: O, amma, þú ert svo mikill „perri." Ertu tilbúin að fara út í nekt- ardans? „Nei. Það er miklu persónu- legra og öll þessi nálægð er mér ekki að skapi. Ég get ekki hugs- að mér að fara út í slíkt." Hvernig finnst þér sú tilhugs- un að karlmenn skoði nektar- myndir af þér í ákveðnum til- gangi? „Mér finnst það bara ömurleg tilhugsun. ímyndaðu þér að einhverjir eru svo einmana það þeir þurfi að skoða blöð. Mér þetta frekar fyndin tilhugsun. Ég sárefast að þeir yrðu eins hrikalega spenntir ef þeir hittu mig í eigin persónu." Gætir þú hugsað þér að leggja þetta fyrir þig erlendis að vera í nektarmyndatökum? „Ég get ekki hugsað mér að vera þekkt sem „Helga berass- aða" þannig að ég held að ég leggi þetta ekki fyrir mig. Mér finnst mjög skemmtilegt að vinna hjá Borgarendurskoðun. Þar ríkir góður starfsandi og ég fæ frábæra starfsreynslu." Lýtaaðgerðir virðast vera að færast í aukana í tískubransan- um. Hvaða skoðun hefur þú á þeim? „Ég er mjög sátt við líkama minn. Ég hef ekki áhyggjur af þvf að vera gömul og hrukkótt. Ég veit ég verð það. Allan, förðunarmeistarinn hjá Playboy sagði við mig á meðan verið var að ljósmæla fyrir myndatökuna: Veistu hvað er langt síðan ég hef séð ekta brjóst? í Banda- ríkjunum eru lýtaaðgerðir orðn- ar að reglu frekar en undantek- ingu. Ég held að lýtaaðgerðir séu áhættusamar. Ef fólk hefur ein- hver raunveruleg lýti og er verulega óánægt með það sem það hefur, þá finnst mér sjálf- sagt að fara í lýtaaðgerð. Hins vegar þegar stelpur eru farnar að flykkjast í aðgerðir til að fá aðeins stærri brjóst eða til að fara í fitusog, er þetta komið út í vitleysu. Kona sem hefur horft á lík- ama sinn í gegnum stækkunar- gler og þarf að vera gagnrýnin kroppinn sinn, hlýtur að hafa ákveðnar skoðanir á hinum full- komna karlmanni eða hvað? „Það er kærastinn" svarar Helga að bragði og heldur áfram: „Hann þarf að vera vinur minn og með svipaðan húmor, svolítinn dónahúmor," bætir hún við og skellihær. „Ég er sjálf með svoddan dónahúmor." „Hinn fullkomni karlmaður þarf að átta sig á því að ég er eins og ég er og breyti mér ekki nema ég vilji það sjálf. Ég sæk- ist eftir fegurð sem kemur innan frá. Slík fegurð hverfur ekki þegar hrukkum og kílóum fjölg- 10 Vikan Ein fyrsta myndin sem birtist af Helgu í fyrirsætuhlutverkinu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.