Vikan - 21.09.1999, Page 36
Gómsætur eftirréttur með
1 gul melóna
700 g jarðaber
2 dl rjómi
1/2 l vanillu ís
50 g konfekt marsipan
(Fyrir 4)
Aðferð: Melónan er skorin í tvennt og kjarninn fjarlægður. Búið til
kúlur með þar tilgerðu kúlujárni sem fæst t.d. í Húsasmiðjunni. Skolið jarða-
berin, þerrið þau og skerið til helminga. Blandið jarðaberjunum og melón-
unum saman og setið í fjögur glös. Þeytið rjómann og myljið marsipanið útí.
Búið til kúlur úr ísnum og setjið ofan á ávextina ásamt marsipanrjómanum.
Skreytið með myntu eða sítrónumelissu.
150 g smjörlíki
3 dl hveiti
1 dl hafragrjón
1 dl sykur
fylling:
400 g rabbarbari
1 dl sykur
2 egg
2 dl sykur
150 g smjörlíki
2 dl vatn
4 dl hveiti
1 dl möndlur,
fínsaxaðar
2 tsk. lyftiduft
til skrauts:
ferskur rabbarbari
Aðferð: Bræðið smjörlíkið og blandið hveiti, hafragrjónum og sykri
saman við þannig að úr verði deig. Þrýstið deiginu í lausbotna kökumót.
Bakið deigið við 200°C í 10 mínútur. Hreinsið og skerið rabbarbarann í litla
bita. Blandið 1 dl af sykri saman við rabbarbarann og látið standa. Stífþeyt-
ið eggin og 2 dl af sykri. Bræðið smjörlfkið í potti ásamt vatninu. Hrærið því
saman við eggjamassann. Blandið saman hveiti, möndlum og lyftidufti og
hrærið því einnig saman við eggjamassann. Hrærið því næst rabbarbaranum
saman við. Hellið massanum ofan í forbakaða deigið. Bakið við 200°C í
u.þ.b. 1 klst. Skreytið með ferskum rabbarbara og berið fram með rjóma.
ibarbarasaft
2 kg rabbarbari (ll.þ.b« 1 I)
2 dl vatn
íhvert kíló afsaft: 350 - 400 g sykur
Aðferð: Þvoið rabbarbarann og skerið í litla bita. Setjið í pott ásamt
vatninu. Sjóðið undir loki við vægan hita þar til allur safinn er kominn úr
rabbarbaranum. Hellið öllu í gegnum sigti og látið síjast mjög vel í svolítinn
tíma. Mælið safann og setjið hann í pott. Látið suðuna koma upp. Bætið þar
næst sykrinum saman við í réttu hlutfalli við magn safans. Látið suðuna
koma upp á ný. Takið pottinn af hellunni og hellið safanum á vel hreinsaðar,
heitar flöskur og setjið tappann strax á. Saftin geymist vel á köldum stað og
má nota hana hvort sem er út á grauta, í hanastélið eða bara eina og sér.
Einnig er hægt að geyma hana fram að jólum og bera fram með jólagrautn-
um.
Vikan