Vikan - 21.09.1999, Qupperneq 53
Það sem ber
að forðast
hætti manni
við hofuð-
verk...
Að sleppa úr máltíð. Heil-
inn þarfnast sykurs
(glúkósa) til að geta starfað
eðlilega. Haltu blóðsykur-
magninu eðlilegu með því
að borða með reglulegu
millibili að minnsta kosti
þrisvar á dag.
Að borða gamlan ost, hnet-
ur, súkkulaði, pylsur, reykt
kjöt eða annan mat sem
inniheldur amínósýruna
týramín.
Að taka inn asperín eða
önnur verkjalyf. Líkaminn
venst þessum lyfjum eftir
ákveðinn tíma og þegar
áhrif þeirra þverra færðu
enn verri höfuðverk en
áður.
Að sofa ekki nóg. Ofþreyta
er helsta orsök höfuðverkja
hjá mörgum. Ekki sofa á
maganum eða í hnipri. Ef
hálsinn er ekki beinn getur
það orsakað stífa hálsvöðva
og vöðvabólgur sem koma
af stað höfuðverkjum.
Reyndu að sofa minnsta
kosti sjö tíma á nóttu, á
bakinu með góðan stuðning
við hálsinn og herðarnar.
Að ofreyna þig. Ef þú finn-
ur að höfuðverkur er að
byrja hættu þá að vinna,
hvíldu þig stutta stund og
farðu svo út að ganga eða
hreyfðu þig.
Að draga að fara til læknis
ef þú færð höfuðverk oftar
en þrisvar í viku, ef þú færð
svo svæsin höfuðverkjaköst
að þú verður að taka
verkjalyf daglega eða meira
en í ráðlögðum dag-
skömmtum til að slá á verk-
ina, ef höfuðverkjum þínum
fylgir mæði, máttleysi, ef þú
verður rugluð eða rödd þín
drafandi. Öll þessi einkenni
benda til að vandamálið sé
alvarlegs eðlis.
rófið birtist og það varð til
þess að kastið varð ekki jafn
slæmt. I dag fæ ég mígrenilyf
og hef haldist sæmilega góð
í nokkur ár.“
Greinin, sem konan las,
var viðtal við Seymour Di-
amond sem rekur sjúkrahús
í Bandaríkjunum fyrir höf-
uðverkjasjúklinga. Hann
hefur helgað líf sitt rann-
sóknum á höfuðverkjum og
segist vita að miklir fordóm-
ar hafi verið ríkjandi gagn-
vart þeim þegar hann hóf
starf sitt. Hann minnist sér-
staklega konu sem áratug-
um saman hafði verið full-
vissuð um það af ótal lækn-
um að höfuðverkurinn væri
ímyndun ein. Hún varð svo
glöð þegar hún kynntist
Seymour, sem tók þjáningar
hennar alvarlega, að hún
sagði að það hefði verið
hálfur batinn. Önnur kom til
hans eftir að hafa verið
tvisvar lögð inn á geðdeild
þar sem hún fékk raflost til
að losa hana við höfuð-
verkjaköstin.
Ef þér hættir til að fá höfuð-
venk ættin þú endilega að...
Hafa mataræðið fjölbreytt og borða mikið af steinefnarík-
um mat eins og fiski, korni, avókadó, og grænmeti.
Kalkríkur matur og matur sem inniheldur B2 vítamín er
líka æskilegur.
Setja kalda bakstra á ennið þegar þér er illt í höfðinu. Það
dregur úr þrota í æðum og getur slegið á höfuðverk sem
stafar af streitu eða stífluðum ennis- og kinnbeinsholum.
Forðast blikkandi eða skært ljós. Jafnvel sjónvarps- og
tölvuskjáir eru varasamir. Það getur hjálpað að hengja lit-
aða filmu yfir tölvuskjáinn.
Anda djúpt og rólega í nokkrar mínútur á hverjum degi.
Þindaröndun getur hjálpað mikið til að slaka á spennu og
auka súrefnisflæði um líkamann. Leggðu lófana þéttings-
fast undir bringsmalirnar og finndu hvernig þindin þrýst-
ist upp og niður.
Nudda háls og herðar sjálf eða fara til lærðs nuddara. Við
það slaknar á spennu í vöðvunum.
Teygja vel á öllum vöðvum í minnst fimm mínútur á dag.
Byrjaðu á fótunum, færðu þig upp eftir líkamanum og
endaðu á hálsi, herðum og höfði.
Halda dagbók yfir verkina. Skráðu hvenær verkurinn
byrjar, hvernig hann er, hvenær fer að draga úr honum og
hvað þú borðaðir áður en hann byrjaði.
Stunda líkamsrækt reglulega. Það eykur blóðflæði um lík-
amann og leysir endorfín úr læðingi en það hjálpar til við
að draga úr höfuðverkjum.
Vikan 53