Vikan - 12.10.1999, Side 14
Samantekt: Margrét V. Helgadóttir
Heimildir: Hillary Clinton: The inside story,
Hillarys choice, Glamour, sept 99
i IIII3II! ED
J m i
Heimurinn hreifst strax
af ungu forsetahjónun-
um Bill og Hillary Clint-
on þegar þau settust að
í Hvíta húsinu árið
1993. Þau þóttu minna
á Jackie og John F.
Kennedy á sínum tíma,
voru ung, myndarleg og
hæfileikarík. Eftir nokk-
urra ára setu á valda-
stóli hefur glansinn far-
ið af Bill á meðan Hill-
ary styrkir ímynd sína
dag frá degi. Þeir eru
margir sem spá henni
glæstum frama í stjórn-
málum í framtíðinni.
Hillary Diane
Roadham,
betur þekkt
sem Hillary
Clinton, for-
setafrú Bandaríkjanna er
vafalítið valdamesta kona
heims. Hún fór strax
ótroðnar slóðir þegar hún
tók við lyklavöldum í Hvíta
húsinu ásamt eiginmanni
sínum. í stað þess að sitja
heima og halda teboð fyrir
fínu konurnar í Washington,
eins og forverar hennar
höfðu gert, mætti hún á
samkomur ásamt eigin-
manni sínum, lét mikið á sér
bera og tók til máls við
margvísleg tilefni.
Hillary þykir einstaklega
lagin að takast á við ágengt
fjölmiðlafólk og nær ætíð að
svara vel fyrir sig þegar hún
er spurð erfiðra spurninga.
A sama hátt er hún dugleg
við að nota fjölmiðlana á já-
kvæðan hátt þegar þess þarf
með. Þrátt fyrir að vera ein
umtalaðasta kona heims
hefur henni tekist að halda
ýmsu leyndu þangað til
núna!
Venjuleg bamæska
Margir standa í þeirri trú
að Hillary hafi alist upp
meðal fína fólksins í Was-
hington borg en svo er ekki.
Hún ólst upp í Chicago í
faðmi ástríkra foreldra,
þeirra Dorothy og Hugh
Rodham og tveimur yngri
bræðrum, Hugh og Tom.
Strax á æskuárunum var
Hillary farin að vera dugleg
að hjálpa þeinr sem hún
taldi minna mega sín.
„Við höfum öll þá skyldu
að hjálpast að og gefa sjálf
til samfélagsins" voru ein-
kunnarorð hennar strax á
unglingsárum.
Geimfaradraumur
Sem unglingur dreymdi
Hillary um að verða geim-
fari. Hún skrifaði bréf til
NASA og spurðist fyrir um
hvernig hún gæti tekið þátt í
geimferðarverkefni sem
undirbyggi ungt fólk sem
langaði að verða geimfarar.
Svarið var stutt og gerði
hana tryllta að bræði:
„Stúlkur þurfa ekki að sækja
um."
Getur slegið frá sér
Suzy, nágrannastúlka Hill-
ary, gerði það að vana sínum
að berja Hillary ef hún lék
sér við strák einn í hverfinu.
Þar sem Hillary var settleg
stúlka, sló hún ekki á móti
heldur lét Suzy lumbra á sér.
Einn daginn þegar hún kom
barin inn til móður sinnar
lét sú gamla í sér heyra:
„Það er ekkert pláss fyrir
skræfur í þessu húsi. Næst