Vikan - 12.10.1999, Side 15
þegar hún lemur þig vill ég
að þú lemjir hana á móti."
Ekki leið á löngu þar til
Suzy réðst á Hillary en nú
var tekið á af alefli og Hill-
ary lamdi hana á móti. Hún
hljóp alsæl heim til móður
sinnar og sagði: „Núna fæ ég
frið til að leika við strák-
ana!"
Hafnarboltastelpan
Hillary hefur mikinn
áhuga á hafnarbolta sem er
ein þjóðaríþrótt Bandaríkja-
manna. Sem barn fór hún
gjarnan á völlinn ásamt föð-
ur sínum og bræðrum.
Stuttu eftir að hún fluttist í
Hvíta húsið tók hún þátt í
opnunarleik hjá Wrigley
Field liðinu og kastaði hún
fyrsta boltanum á tímabil-
inu, sem þykir vera mikill
heiður.
Ófeimin við að taka af
skarið
Hillary og Bill kynntust í
Yale háskólanum á meðan
þau stunduðu bæði laganám.
Eftir að Bill hafði fylgst með
henni heilan dag á bóka-
safninu gekk hún til hans og
sagði: „Heyrðu, ef þú ætlar
að halda áfram að horfa á
mig og ég að fylgjast með
þér, þá finnst mér að við ætt-
um bara að kynna okkur."
Kann líka Ijótu orðin
Hillary var einu sinni
stödd á fundi með leyni-
þjónustumanni eftir að hún
varð forsetafrú. Einhver
misklíð varð á milli þeirra
við lok fundarins og bað
Hillary viðkomandi mann
að rétta sér töskurnar sem
voru við hlið hans. Maður-
inn neitaði bóninni og það
næsta sem heyrðist úr munni
Hillary var: „Ef þú vilt halda
áfram við samningagerðina
hunskastu á fætur (reyndar
notaði frúin f-orðið ) og
réttu mér töskurnar."
Neitaði að vera Clinton
Það var ekki fyrr en árið
1982, sex árum eftir að þau
Bill giftust, að Hillary sam-
þykkti að taka upp eftirnafn
mannsins síns. Astæðan var
einfaldlega sú að Bill var að
berjast um ríkisstjóraemb-
ættið í Arkansas og sam-
kvæmt skoðanakönnunum
voru 8% kjósenda sem ætl-
uðu ekki að kjósa hann ef
Hillary héldi áfram að nota
Roadham eftirnafnið. Hún
var sem sagt tilneydd til að
taka upp Clinton-nafnið
vegna pólitískrar stöðu eig-
inmannsins. Það er óhætt að
segja að hún hafi lagt mikið
á sig fyrir starfsferilsskrána
síns heittelskaða.
Alltaf dugleg að tjá sig
Þegar Hillary var rúmlega
tvítug fékk hún hlutastarf á
veitingastað en var rekin úr
starfi stuttu seinna, eftir að
hún gekk á fund eigandans
og sagði honum að fiskurinn
sem væri seldur á staðnum
væri óhæfur til matvæla-
framleiðslu.
Eitt sinn skáti, ávallt
skáti
Hillary er dæmigerð
skátastúlka sem tók virkan
þátt í skátahreyfingunni á
sínum yngri árum. Hún
þurfti meðal annars að festa
upp tilkynningar og vegg-
spjöld á opinberum stöðum.
Eins og skátarnar segja, eitt
sinn skáti, ávallt skáti þá
slær hjarta Hillary fyrir
skátahreyfinguna. Eftir að
hún varð forsetafrú var hún
gerð að heiðursforseta am-
erísku kvenskátahreyfingar-
innar.
Samrýmdar mægður
Chelsea Clinton, einka-
dóttir forsetahjónanna, er
sannkölluð draumadóttir.
Chelsea stundar nám við hin
virta Stanford háskóla en
baðar sig ekki frægðarljóma
foreldranna. Þeg-
ar hún hóf nám
þar óskaði hún
eftir að fá sömu
meðferð og aðrir
nemendur skól-
ans. Hillary hef-
ur ávallt varið
dóttur sína
grimmt fyrir
ágangi fjölmiðla
og stuttu eftir að
þau hjónin fluttu
í Hvíta húsið
birtust
skopteikningar
af Chelseu sem
þá var á ung-
lingsárum. Hill-
ary bað frétta-
menn og ljós-
myndara að láta
barnið í friði,
hún yrði að fá að
eiga sitt einkalíf.
Orð Hillary voru
áhrifamikil því
lítið bar Chelseu
í fjölmiðlum allt
þangað til Mon-
icu hneykslið komst í há-
mæli en þá birtist hún gjarn-
an við hlið foreldra sinna
við opinberar athafnir.
Glæsileg á sextugsaldri
Hillary þykir vera glæsileg
kona og komst á blað með
fegurðardrottningum og
kvikmyndastjörnum þegar
íslenskir karlmenn tjáðu sig
um kvenlegar konur hér í
Vikunni fyrir skömmu. Hún
er orðin 52 ára gömul en lít-
ur út fyrir að vera miklu
yngri. Hún er ávallt klædd
sígildum fatnaði t.d. drögt-
um, er með vel lagt hár og
fallegan farða. Á námsárum
sínum í Yale þótti hún ekki
hugsa mikið um útlitið en
þegar hún fluttist til
Arkansas fór að bera á
breyttum stíl sem hún held-
ur enn í dag.
Mikil fjölskyldumann-
eskja
Hillary hefur alltaf lagt
ríka áherslu á að litla fjöl-
skyldan standi vel saman.
Við flutninginn í Hvíta hús-
ið breyttust aðstæður þeirra
til muna og fátt þar sem
minnti á notalegt heimili.
Hillary ákvað að breyta að-
eins innandyra og tók eitt af
mörgum þjónustueldhúsum
og breytti því í lítið fjöl-
skyldueldhús þar sem hún,
Bill og Chelsea gætu borðað
saman og átt sínar ánægju-
stundir í friði, rétt eins og
aðrar fjölskyldur.
15