Vikan - 12.10.1999, Síða 29
mælti með ómskoðun. Hann
sagði að fyrirferðin væri vinstra
megin og þá fyrst sagði ég hon-
um alla söguna. Það var svo
hann sem sendi mig í ómskoð-
unina sem ég var í þegar hjúkr-
unarfræðingurinn sagði mér
þær hræðilegu fréttir að vitlaus
eggjastokkur hefði verið tekinn
burt.
Eftir skoðunina talaði ég við
þennan nýja lækni minn og
spurði hann hvað væri næsta
skref í mínum málum. Hann
sagði að æxlið í vinstri eggja-
stokknum væri það stórt og
mjög líklega illkynja svo að
nema þyrfti það burt. Ég spurði
þá um rannsóknarniðurstöður á
hinu og hann fór undan í flæm-
ingi. Hann sagði að nú riði á að
ég færi sem fyrst í aðra aðgerð
til að nema burtu vinstri eggja-
stokkinn. Ég bað hann þá að
segja mér hvers vegna menn
hefðu tekið þann hægri sem var
nánast alheilbrigður þegar ég
fór í fyrri aðgerðina. Hann svar-
aði því til að sennilega hefði
æxlið í hægri eggjastokki verið
verra en menn héldu og skurð-
læknirinn því ákveðið að meiri
ástæða væri til að fjarlægja það
fyrst. Ég spurði hann þá um
niðurstöður sýnatöku úr því
æxli og hvers vegna mér hefði
ekki verið sagt frá því strax eftir
aðgerðina en hann kom sér hjá
að svara. Hann beindi umræð-
unni fimlega að öðru og vildi
helst ekki um annað tala en þá
aðgerð sem fram undan var.
Síðar fengum við hjónin að-
gang að sjúkraskýrslum mínum
og komumst að því að sýni var
aldrei tekið úr beri því eða
þykkildi sem var í hægri eggja-
stokki. Þess vegna er ósannað
enn þann dag í dag að það hafi
verið illkynja. Ég gekkst síðan
undir aðra aðgerð og hinn
eggjastokkur rninn var skorinn
burtu. Ég er ófrjó og kem ekki
til með að eignast fleiri börn,
Ef kona skilur ekki
sársauka annarrar
konu sem svipt
hefur verið mögu-
leikanum á að
eignast börn þá er
hvergi skjól ffyrir
vetrarvindinum.
auk þess þarf ég að taka inn
hormónalyf, sennilega það sem
eftir er ævinnar, til að gera mér
kleift að lifa sama lífi og aðrar
konur. Þegar báðir eggjastokk-
arnir eru farnir dregur mjög úr
eðlilegri hormónastarfsemi
kvenna og þær geta fengið ýms-
ar aukaverkanir, meðal annars
kyndeyfð, þunglyndi og fleira.
Læknar eru þó ekki sammála
um hvort einkennin stafi af því
að missa stóran hluta kynfæra
sinna eða af sálrænum afleið-
ingum þess. Ég gekkst einnig
undir erfiða lyfjameðferð vegna
þess að æxlið í vinstra eggja-
stokki reyndist krabbamein.
Ég og maðurinn minn erum
hins vegar sannfærð um að
hægri eggjastokkur minn var
fjarlægður vegna læknamistaka
og við höfum kært það. Það er
hins vegar sama hvert við för-
um, menn hafa snúið bökum
saman og segja að tvö krabba-
meinsæxli hafi verið fjarlægð úr
líkama mínum og það hafi í
raun bjargað lífi mínu. Þeir hafa
aldrei geta sýnt fram á neinar
skjalfestar sannanir sem sýna
ótvírætt að svo sé.
Eftir að ég hafði jafnað mig
eftir seinni aðgerðina og lyfja-
meðferðina vildi ég reyna að fá
botn í þetta mál. Ég var ekki að
leita eftir skaðabótum, við eig-
um nóg að bíta og brenna, ég
var að leita réttlætis. Ég taldi
mig eiga rétt á að vita hvort
mistök hefðu átt sér stað og
væri svo taldi ég mig eiga inni
afsökunarbeiðni frá skurðlækn-
inum sem svipti mig börnunum
sem ég ætlaði að eiga. Maður-
inn minn var sammála mér og
við stóðum saman sem einn
maður í baráttu okkar við kerf-
ið. Það var hins vegar sama
hvert við fórum alls staðar
hengdu menn sig á þá skýringu
að skurðlæknirinn hefði séð
stærra og verra æxli hægra meg-
in þegar hann opnaði mig. Ef
svo er vil ég fá að vita hvar nið-
urstöður úr ræktun þessa æxlis
leitaði ég til konu sem er lærður
kvensjúkdómalæknir og bað
hana að líta yfir skýrslurnar
mínar og segja álit sitt á þeim.
Hún fletti í gegnum pappírana
og sagði svo: „Ef þú ætlar að
vera með vandræði vil ég ekki
vera læknirinn þinn." Þetta
held ég að hafi sært mig meira
en nokkuð annað. Ef kona skil-
ur ekki sársauka annarrar konu
eru, af hverju þær finnast ekki
og hvers vegna er svo að sjá á
öllum ómskoðunarmyndum
sem teknar voru fyrir aðgerðina
að æxlið hægra megin sé aðeins
baun meðan hitt er bolti.
Líkt og ég sagði áðan er ég
ekki að leita eftir bótum í formi
peninga. Ég vil bara að viður-
kennt sé að mistök hafi átt sér
stað og ég beðin afsökunar en
læknamafían virðist ekki fær
um að lúta svo lágt. Nokkru eft-
ir að við hófum baráttu okkar
sem svipt hefur verið möguleik-
anum á að eignast börn þá er
hvergi skjól fyrir vetrarvindin-
um.
Steinarsdóttur
sögu sína
Vilt þú deila sögu þinni
með okkur? Er eitthvað
sem hefur haft mikil áhrif
á þig, jafnvel breytt lífi
þínu? Þér er velkomið að
skrifa eða hringja til okk-
ar. Við gætum fyllstu
nafnleyndar.
I U iinilisl;iit”ih er: Vikun
- „Lifsrcynslusaga", Scljavcgur 2
101 Kcykjavík,
Nelfang: vikan@lro(li.is