Vikan - 16.11.1999, Blaðsíða 8
Við borgum líka 10-15%
innflutningsgjöld á vöruna
en samtals hleypir þetta
verðinu upp um 40% áður
en farið er að leggja á hana.
Það verður því að teljast
kraftaverki líkast að hægt sé
að halda dýrum merkjum á
lægra verði hér en erlendis
og það er engu öðru að
þakka en góðum samning-
um og hlutfallslega lágri
álagningu.
Sem betur fer eru konur
farnar að sjá að það borgar
sig engan veginn að kaupa
vandaðan fatnað erlendis,
það er ekkert sniðugt að
kaupa vörur sem engin
ábyrgð er tekin á en kosta
samt jafnmikið eða meira
erlendis og eiga síðan á
hættu að vera ekki ánægður
með kaupin.
Nýtt fyrirtæki eða
bankastjóradraumar?
„Nýja fyrirtækið er nú eig-
inlega hálfgert leyndarmál
ennþá, en fyrst þú gengur
svona hart að mér get ég
upplýst að það er á sviði
ferðaþjónustu og mun fara í
gang snemma á næsta ári.
Ég hef verið að undirbúa
þetta alllengi, þetta hefur
tekið mikinn tíma og því
hefur fylgt mikil samninga-
gerð við erlenda aðila. Það
er því ekkert undarlegt þótt
ég hafi verið dularfull í aug-
um margra undanfarið.
En nei. Ég er ekkert á
leiðinni að verða banka-
ekki að fara inn á annarra
svæði með það. Þessum
tískusýningum fylgir
óhemjumikil vinna en hún
skilar sér í ánægðum og
tryggum viðskiptavinum og
við erum alltaf tilbúnar að
fara í svona ferðir.
Ég neita því hins vegar
ekki að þetta er mjög krefj-
andi starf og maður verður
að vera mjög vakandi
yfir því. Það er ekkert
auðvelt að halda niðri
vöruverði á Islandi eins
og búið er að verslun
hér. Ofan á innkaups-
verðið leggst virðis- j
aukaskattur sem er
nær 25% og hann
verðum við kaup-
8 Vikan
menn að borga strax þegar
við leysum vöruna út og
fáum hann ekki einu sinni
endurgreiddan þótt við
séum svo óheppin að fá
sendar vörur sem eru ein-
hverra hluta vegna óseljan-
legar, annað hvort vegna
galla eða vegna þess að þær
hafi einfaldlega verið vit-
lcnict afarfHHHar
aldrei hvarflað að mér þótt
ég hafi verið að undirbúa
stofnun kvennabankans
með Asgerði Flosadóttur
sem er driffjöðurin í þessu.
Ég er tiltölulega nýkomin
inn í þessa bankaumræðu, er
framkvæmdastjóri og vinn
að undirbúningi bankans og
hlutafjársöfnun. Konur eru
ekki síður „peningamenn"
en karlar. Karlar eiga mikið
af ímynduðum peningum,
en stærstur hluti þess fjár
sem raunverulega er í land-
inu fer í gegnum hendurnar
á konum. Ég verð hinum
megin við bankastjóraborð-
ið þegar þar að kemur. Það
er til fullt af hæfum konum í
bankastjórastóla á íslandi
og það eru konur sem velta
langstærstum hluta þess fjár
sem er í umferð. Það er full
þörf á þessum kvennabanka
og við erum bjartsýnar.
Framtíðarsýn
„Þegar ég var 7 ára fékk
ég mitt fyrsta starf sem kúa-
smali og þá lærði ég mikið.
Ég sá að þegar beljunum var
hleypt út á vorin þá voru
þær ekki hvað síst að fagna
frelsinu. Það er eiginlega
þannig með mig núna. Mað-
ur kemst ekki nær frelsinu
en að hafa tækifæri til að
gera það sem maður hefur
löngun til hverju sinni. Þar
sem ég á hlut að máli má
búast við öllu mögulegu og
ómögulegu.
Við erum bara það sem
við gerum og það er nestis-
pokinn sem við höfum með
okkur út í lífið, - svo einfalt
er það."
„É9 vil hafa uenju-
legar konur í aug-
lysingum mínum"
Arnhrúður leggur
áhersluá aðselja
vöru sem hentar og
passar íslenskum
konum.