Vikan - 16.11.1999, Blaðsíða 71
Kal'tlgeslir í Litlu
kalllluisinii eru
Erla Traustadóltir
<»<• Dagbjailui
(iiinnarssoii en I jær
sit ja svo Kobin t»g
Sijjiiróur Þór. Það
var |>rengra uin
)>esti iiin versliinar-
inaiiiialiel)>iiia en
|iá komii 700 iiianiis
frá f<>stu<le<;i til
sunniidags.
Sigríður hellir
upp á kaffi.
igríður var til
skamms tíma
heimavinnandi hús-
móðir með þrjú
börn en þegar um-
svifin á heimilinu
minnkuðu komust
hún og maður
hennar, Gunnar
Ólafsson, að þeirri
niðurstöðu að rétt
væri að hún skapaði
sér starfsvettvang
utan heimilis þar sem hún
gæti ráðið vinnutímanum
sjálf. Fyrst opnuðu þau
verslun í maí í fyrra sem
seldi meðal annars kaffi og
te auk þess sem þau voru
með ýmis happdrættisum-
boð en um páskana opnuðu
þau kaffihúsið, sem er með
þeim minnstu ef ekki það
minnsta á landinu - tekur
aðeins 12 manns í sæti.
Á Litla kaffihúsinu get-
urðu fengið þér kaffi og te
og góðgæti með, auk þess
sem þar er hægt að kaupa
gæðakaffi og -te til þess að
hafa með sér heim. Þessar
vörur koma frá Te og kaffi í
Reykjavík og þar hefur Sig-
mundur Dýrfjörð verið Sig-
ríði innan handar um
fræðslu um þessa eðal-
drykki.
Kaffihúsalífið mun
blómstra í framtíðinni
Með tilkomu Litla kaffi-
hússins í Neskaupstað hefur
ekki aðeins Sigríður sjálf
heldur fjölmargir aðrir feng-
ið aukinn áhuga á kaffi. Hún
segir að margir komi og seg-
ist ekki hafa farið á kaffihús
áður og biðji sig að ráð-
leggja sér hvaða kaffi sé
best. Svo eru aðrir sem taka
þetta fastari tökum, byrja
efst á kaffilistanum og eru
nú að fikra sig niður eftir
honum. í lokin verða þeir
búnir að finna sína uppá-
haldskaffitegund. Aðrir
koma kannski þjótandi inn á
kaffihúsið og segja: „Ég er
að fara að taka til, gefðu
mér eitthvað rótsterkt svo
ég komist í „tiltektarstuð".
Eftir kaffibollann fara þeir
heim aftur fullir af eldmóði.
Fólk hefur tekið Litla
kaffihúsinu mjög vel enda er
það nýbreytni í bæjarlífinu.
Á veggjum hanga myndir
eftir ýmsa listamenn og eru
þær til sölu og sífellt verið
að skipta um myndir. Að-
sóknin er rnikil þótt kaffi-
húsið sé aðeins opið frá há-
degi og til þess tíma sem
verslanir loka og ekkert á
laugardögum og sunnudög-
um. „Það vill brenna við að
fólk komi hingað helst um
kaffileytið, líklega vegna
þess að það er ekki vant að
sitja á kaffihúsum á sama
hátt og annars staðar þar
sem fólk stundar kaffihús-
Svo minningin lifí...
in." Það á áreiðanlega eftir
að breytast með tímanum
því í Neskaupstað búa milli
1600 og 1700 manns svo
ýmsir hljóta að vera kaffi-
þyrstir á öðrum tímum en á
slaginu þrjú.
...lengl
...lengl
IVeÍtÍngar Alhliða veisluþjónusta - veislusalur
f HJARTA AmHirtkku 25 - 27 • 200 Kópaíogl
Kópavogs Síml: 564 4000 • Fuv: 564 4151 * E-mall: sludlo-vnlC«slmnct.ls
Vikan 71