Vikan


Vikan - 16.11.1999, Page 71

Vikan - 16.11.1999, Page 71
Kal'tlgeslir í Litlu kalllluisinii eru Erla Traustadóltir <»<• Dagbjailui (iiinnarssoii en I jær sit ja svo Kobin t»g Sijjiiróur Þór. Það var |>rengra uin )>esti iiin versliinar- inaiiiialiel)>iiia en |iá komii 700 iiianiis frá f<>stu<le<;i til sunniidags. Sigríður hellir upp á kaffi. igríður var til skamms tíma heimavinnandi hús- móðir með þrjú börn en þegar um- svifin á heimilinu minnkuðu komust hún og maður hennar, Gunnar Ólafsson, að þeirri niðurstöðu að rétt væri að hún skapaði sér starfsvettvang utan heimilis þar sem hún gæti ráðið vinnutímanum sjálf. Fyrst opnuðu þau verslun í maí í fyrra sem seldi meðal annars kaffi og te auk þess sem þau voru með ýmis happdrættisum- boð en um páskana opnuðu þau kaffihúsið, sem er með þeim minnstu ef ekki það minnsta á landinu - tekur aðeins 12 manns í sæti. Á Litla kaffihúsinu get- urðu fengið þér kaffi og te og góðgæti með, auk þess sem þar er hægt að kaupa gæðakaffi og -te til þess að hafa með sér heim. Þessar vörur koma frá Te og kaffi í Reykjavík og þar hefur Sig- mundur Dýrfjörð verið Sig- ríði innan handar um fræðslu um þessa eðal- drykki. Kaffihúsalífið mun blómstra í framtíðinni Með tilkomu Litla kaffi- hússins í Neskaupstað hefur ekki aðeins Sigríður sjálf heldur fjölmargir aðrir feng- ið aukinn áhuga á kaffi. Hún segir að margir komi og seg- ist ekki hafa farið á kaffihús áður og biðji sig að ráð- leggja sér hvaða kaffi sé best. Svo eru aðrir sem taka þetta fastari tökum, byrja efst á kaffilistanum og eru nú að fikra sig niður eftir honum. í lokin verða þeir búnir að finna sína uppá- haldskaffitegund. Aðrir koma kannski þjótandi inn á kaffihúsið og segja: „Ég er að fara að taka til, gefðu mér eitthvað rótsterkt svo ég komist í „tiltektarstuð". Eftir kaffibollann fara þeir heim aftur fullir af eldmóði. Fólk hefur tekið Litla kaffihúsinu mjög vel enda er það nýbreytni í bæjarlífinu. Á veggjum hanga myndir eftir ýmsa listamenn og eru þær til sölu og sífellt verið að skipta um myndir. Að- sóknin er rnikil þótt kaffi- húsið sé aðeins opið frá há- degi og til þess tíma sem verslanir loka og ekkert á laugardögum og sunnudög- um. „Það vill brenna við að fólk komi hingað helst um kaffileytið, líklega vegna þess að það er ekki vant að sitja á kaffihúsum á sama hátt og annars staðar þar sem fólk stundar kaffihús- Svo minningin lifí... in." Það á áreiðanlega eftir að breytast með tímanum því í Neskaupstað búa milli 1600 og 1700 manns svo ýmsir hljóta að vera kaffi- þyrstir á öðrum tímum en á slaginu þrjú. ...lengl ...lengl IVeÍtÍngar Alhliða veisluþjónusta - veislusalur f HJARTA AmHirtkku 25 - 27 • 200 Kópaíogl Kópavogs Síml: 564 4000 • Fuv: 564 4151 * E-mall: sludlo-vnlC«slmnct.ls Vikan 71

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.