Vikan


Vikan - 16.11.1999, Blaðsíða 16

Vikan - 16.11.1999, Blaðsíða 16
Texti: Hrund Hauksdóttir Ertu i eitruðu astar- sambandiP Taktu eftir- farandi nrof og kann- aðu maiið. Finnst þér þú sveiflast ýmist á ntilli ástar- eða kúgunartilfinn- ingar? Elskar þú maka þinn eina stundina en hatar hann þá næstu? 3 Ertu í aðra röndina upp með þér af athygli maka þíns en í hina að kikna undan henni? Finnst þér þú aðallega hafa stjórn á tilfinningum þínum þegar aðrir eru að gera eitt- hvað fyrir þig? Finnst þér spenna í sambandi þínu og ófyrirsjáanleiki vera æsandi? Færðu samviskubit þegar þú þarft að standa á rétti þínum? Hefur þú óseðjandi löngun til þess að eiga ntaka þinn með húð og hári eða til að hann hagi sér þannig gagnvarl þér? Færðu enn sterkari löngun til maka þíns þegar hann hafnar þér á einhvern hátt? Líður þér eins og píslarvætti þegar maki þinn veitir þér ekki eitthvað? 10 Lifir þú í þeirri trú að ntaki þinn sé eina manneskjan í heiminum sem getur gert líf þitt einhvers virði? Hefur þú rnisst vinskap eða tengsl við fjölskvldu þína vegna sambands þíns? 12 Kýst þú að ráða og hafa mikil áhrif í samböndum þínum til þess að taka ekki þá áhættu að verða auðsærð? Ef þú hefur svarað nteira en tveimur af þessum spurningum játandi er mjög líklegt að þú þurf- ir á aðstoð að halda. Hefur þú verið í ástarsambandi sem allir í kringum þig segja að sé fyrirfram dauða- dæmt? Meira að segja þú sjálf? Undir slikum kringumstæðum sannfærir þú sjáifa þig um að þetta skiptið verði nú betra en hitt, en fyrr en varir er vitahring- urinn kominn á aftur. Ef þú hefur ekki sjáif upplifað svona eitrað samband, þá áttu örugglega vinkonu eða ættingja sem hefur staðið í slíku. Þú hlýtur að kannast við giftu vinkonuna sem er stöðugt hringjandi í þig og eyðir klukkutímum saman i að tala um hversu mikil skepna maðurinn hennar sé, en hringir svo aftur næsta dag, alveg hreint andstutt yfir hve rómantiskur og yndisiegur hann sé og segir þér frá hversu frábært „sáttakynlíf" þau hafi átt eftir rimmuna miklu. Að geta hvorki saman né sundur verið Umrædd sambönd einkennast af haltu mér/slepptu mér hugsunum og par sem er í slíku sambandi virðist hvorki geta verið saman né sundur. Hjónabandsráð- gjafar hafa bent pörum, sem eru í þessum vítahring, á að ástæða þess að svo erfitt sé að finna lausn á vanda þeirra sé oft á tíðum sú að parið sé ekki meðvitað um hvað rifrildi þeirra snúist raunverulega um. Á yfirborðinu eru þau jafnvel að þrefa um heimilisstörfin en í raun eru þau kannski að kljást við mun stærri vandmál sem snúast unr stjórnun, kyn- ferði, örvæntingu eða bælingu á tilfinn- ingum. Sumir sálfræðingar vilja meina að þeg- ar við verðum ástfangin þá reynunr við að tengjast fólki sem endurskapar óleyst vandamál sem við höfum verið að burð- ast með frá æsku. Makar okkar hafa til- hneigingu til þess að leika sömu rullu og foreldrar okkar gerðu. Með þessu móti getur samband verið græðandi því þá tekst okkur að hreinsa fortíðina og halda ótrauð áfram í lífinu. Við getum tekið dæmi um konu sem hefur átt fremur kuldaleg og fjarlæg samskipti við föður sinn. Hún er líkleg til þess að velja sér mann sem er ástúðarfullur og hlýlegur. Hlutirnir geta hins vegar þróast á annan veg, því þrátt fyrir að við heillumst stundum af yfirborðseinkennum fólks, þá getur eitthvað varasamt verið grafið langt niðri hjá því sem skýst svo upp og bullsýður rétt undir yfirborðinu. Á þrem- ur sviðum gefum við upplýsingar um okkur sjálf: hinu opinbera, hinu prívat og hinu ómeðvitaða. Þess vegna er mjög mikilvægt er vera sjálfum sér trúr þegar sá eini sanni birtist í lífi okkar. Við getum tekið dæmi um þetta. Maður getur verið mjög sjálfsöruggur á opinbera sviðinu en í prívatlífinu er þessi sami maður hugsan- lega meðvitaður um það að sjálfsöryggið er aðeins gríma því hann sé í raun rnjög feiminn. I góðu sambandi myndi slíkur einstaklingur blómstra þar sem hann gæti deilt feimnishliðinni með maka sínum og fengið stuðning frá honum. Ef þessi aðili tekur þá ákvörðun að vera ekki hrein- skilinn varðandi feimni sína, af hræðslu við að tapa ástum makans, þá getur hann flækst í hlutverki hins sjálfsörugga aðila í sambandinu. Þetta getur verið hættuleg afstaða, sérstaklega ef eitthvað ómeð- vitað er vandlega falið djúpt í sálartetr- inu. Ef mikilvægir hlutir viðkomandi persónuleika er falinn, þá eru mun meiri líkur á því að ástin verði byggð á veikum grunni. Ef bú ggtur hvorki verið án hans ne meo honum Ef hu getur ekki verið með honum ... Hafðu þa Detta í huga: 3 Vertu vel á verði. Veltu fyrir þér hvort þú sért í sífellu að endurtaka ákveðið mynstur. Þig dauðlangar kannski til að fara út í samband jafn- vel þótt þú vitir að það rnuni verða til ógæfu. Ef þú hefur t.d. verið í sam- bandi með giftum manni tvisvar sinn- um, í guðanna bænum ekki gera það í þriðja sinn. Að vera hjákona í eitt 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.