Vikan


Vikan - 07.12.1999, Síða 10

Vikan - 07.12.1999, Síða 10
s e m g e f Allir landsmenn bekkja hinn kraftmikla skemmtí- kraft, sönguara, rithöfund og fréttamann, Úmar Ragn- arsson. Margir undrast ork- una og úthaldið sem mað- urinn býr yfir. lfíð fengum eiginkonu hans, Helgu Jó- hannsdóttur, í smá spjall um lífið og tilueruna. í Huí upplýsti hún okkur meðal annars um huaða orkubita eiginmaðurinn borðar í morgunmat... 'Ó = ■o © » '3 I s i; x £ Helga hefur í mörg horn að líta rétt eins og eiginmað- urinn. Hún er for- stöðumaður félagsstarfs aldr- aðra við Sléttuveg 11, tekur virkan þátt í borgarmálum sem varaborgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins, ferðast mikið með manni sínum og hefur starfað fyrir íþróttafélag fatlaðra í mörg ár. Ekki má gleyma hús- móðurhlutverkinu, hún er sjö barna móðir og margföld amrna. Helga og Omar voru ekkert að tvínóna við hlutina á sínum tíma. „Við kynntumst á dansæf- ingu hjá Hermanni Ragnars. Ég ólst upp á Patreksfirði, var nítján ára gömul og nýlega flutt í höfuðborgina. Ég þekkti fáa og ákvað að skella mér á dansæfingu til að kynnast fleira fólki. Þar hitti ég Ómar Ragn- arsson. Það má segja að þetta hafi verið ást við fyrstu sýn og við höfum verið saman allar götur síðan. Við trúlofuðum okkur mánuði eftir að við kynntumst og giftumst á gaml- ársdag sama ár. Það vissi enginn af brúðkaupinu fyrr en það var afstaðið. Ég klæddist rauðum sparikjól sem móðir mín hafði saumað á mig fyrr um sumar- ið." Þau Helga og Ómar hafa átt barnaláni að fagna. Börnin ur Ómari bar eru sjö talsins, fjórar dætur og þrír synir. Á milli elsta og yngsta barnsins eru þrettán ár. Barnabörnin eru orðin þrettán talsins og þrjú væntanleg. Mað- ur getur ímyndað sér að heimil- ishaldið hafi verið með lífleg- asta móti í níu manna fjöl- skyldu. Helga var heimavinn- andi á meðan börnin voru lítil en Ómar fyrirvinnan. Sjö börn í lítlum bíl „Ómar er og hefur alia tíð verið mikið í burtu, líka þegar krakkarnir voru litlir. Mér hef- ur alltaf fundist þetta vera þægilegt líf, að geta ráðið mín- um tíma algjörlega sjálf. Ég missti föður minn ung að árum og ólst upp hjá sjálfstæðri móð- ur sem hafði fyrir mörgum börnum að sjá. Þeir eru margir sem hafa spurt mig hvort mér hafi ekki fundist erfitt að vera svona mikið ein með börnin en ég hef aldrei litið svo á. Þessi lífsstíll hentaði mér vel. Krakk- arnir voru meðfærilegir og móðir mín hjálpaði mér mikið með þau elstu en hún lést árið 1971. Þá missti ég mikið. Helsta vandamálið var að koma öllum börnunum fyrir í bílnum. Þá hafði maður ekki efni á stórum sjö manna bíl. Ég átti alltaf minnstu gerð af bíl og tróð krökkunum inn í hann. Á þessum tíma sá enginn neitt at- hugavert við að þau væru laus og hangandi í bílnum. Þorfinn- ur, næstelsti sonur okkar, vildi alltaf standa á milli sætanna. Þegar ég bremsaði datt hann fram á rúðuna eða hentist í aft- ursætið. Hann sóttist fast eftir því að fá að vera með í bílnum og þá sérstaklega á þessum stað." Helga hefur fengið mörg tækifæri til að ferðast uni heim- inn og landið með manninum sínum og nýtir þau vel. nagraut í m „Ég fór ekki mikið með hon- um á meðan börnin voru ung en um leið og þau fóru að eld- ast, ferðast ég meira. Reyndar komst ég árið 1962 með honum í ferð til Bandaríkjanna sem þótti mikið ferðalag á þeim tíma. Sú utanlandsferð var nú ekki sú fyrsta því á unglingsár- unum fékk ég tækifæri til að sigla til Grimsby, þar sem bróð- ir minn vann á togara. Ég hef alltaf verið mikil flökkusál og gríp öll tækifæri til ferðalaga um leið og þau gefast." Helga hefur verið virk í stjórnmálastarfi um langt skeið. I dag er hún varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í borgar- stjórn. „Ég var meðal stofnenda ungliðahreyfingar Sjálfstæðis- flokksins fyrir vestan. Ástæðan fyrir því að ég vildi stofna ung- lingahreyfinguna var sú að ein fjölskylda átti hreinlega allt þorpið. Hvað sem maður ætlaði að gera eða sækja, þurfti við- komandi að sækja til þessarar sömu fjölskyldu. Ég varð fljótt mótfallin þessari stefnu. Þetta er það sama sem hefur gerst með kvótakerfið. Ég hef alltaf viljað vera sjálfstæð og óháð. Ég tók fyrst þátt í prófkjöri fyr- ir borgarstjórnarkosningarnar árið 1986 og gekk sæmilega. Ég náði sæti varaborgarfulltrúa. Ég hafði alltaf verið virk í innra starfi flokksins og þá sérstak- lega í málefnum sem varða landsbyggðina. Ég tók aftur þátt í síðasta prófkjöri og lenti í tólfta sæti. Kjörnefndin setti mig svo neðar á listann til að hleypa annarri konu í sætið. Ég var ekki alls kostar sátt við þá niðurstöðu því reynsla mín er sú að margir fulltrúar gefast upp og hætta eftir stuttan tíma. Ég er tilbúin að færa mig á list- anum ef fólkið vinnur sitt starf. Málin vilja oft æxlast þannig að orgunmat við, varaborgarfulltrúarnir, tök- um þátt í erfiðum ákvarðana- tökum." Eins og sjónvarpsáhorfendur verða varir við er skreppur Ómar gjarnan á fjöll og flytur fréttir af landinu okkar. Oftar en ekki er Helga með honum í för þótt Iítið beri á henni. Flýgur bara með Ómari „Við vorum alltaf dugleg að fara í fjallaferðir á sumrin þegar krakkarnir voru ung. Á meðan Sjónvarpið var lokað í júlí not- uðum við gjarnan þann tíma til að ferðast. Ég flaug mikið með honum hér áður fyrr. Á undan- förnum árum hefur hann frekar flogið en ég tekið bíiinn og keyrt á áfangastað. Á meðan hann var að gera þættina Flug og bíll fyrir Stöð tvö vantaði bílstjóra og ég tók það að mér. Á þeim tímapunkti sá ég meira af landinu en nokkurn tímann áður. Ég var oft ein í bílnum, ók um á góðum jeppa. í sannleika sagt þá er ég ekki mikið fyrir að fljúga. Ég fer ekki upp í litla flugvél með hverjum sem er, en ég treysti Ómari fullkomlega. Mér finnst mjög gaman að við getum unnið saman. Börnin eru öli farin að heiman og því um að gera að nota tímann til að vera saman, ég nýt þess. Á meðan ég hef heilsu og úthald til að flækjast um með honum, mun ég gera það. Mitt úthald er reyndar ekkert á við hans." Talandi um úthaldið. Gefur þú honum All bran í morgun- mat? „Nei. Hann borðar mikið af barnagraut í morgunmat, þenn- an sem er seldur í pökkum og hrærður út í heitt vatn. Ég hef alltaf sagt að þetta gefi honum mikla orku. Hann borðar barnagraut á meðan aðrir borða Herbalife." Nú þegar barnabörnunum fjölgar ört, er amman dugleg að stökkva af stað og gæta þeirra? „Nei, ekki get ég sagt það. „Þegar ég fer í burtu bá borðar hann sinn barnamat eða í mötuneyti Siónvarpsins. Ég held að hann muní frekar svelta en að elda sér mat. Ég stórefa að Ómar Ragnarsson viti hvernig ryksugan á heimilinu lítur út." 10 Vikan

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.