Vikan


Vikan - 07.12.1999, Blaðsíða 12

Vikan - 07.12.1999, Blaðsíða 12
Texti: Steingerður Steinarsdóttir Á dögunum hafði samband við okkur lesandi sem kvaðst hafa lesið í Vikunni fyrir mörgum árum um lögmál Murphys. Viðkom- andi mundi nokkrar þær ráðleggingar sem þar voru settar fram m.a. þessa: Hafðu ekki áhyggjur af deginum í dag, morgundagurinn verður enn verri. Þetta vakti áhuga okkar og við fórum að kanna hvaða lögmál væri hér á ferðinni. Murphys í kynlífi Edward A. Murphy jr. sá sem lögmálið er kennt við var einn af tæknifræðingum bandaríska flughersins og vann meðal annars við til- raunir sem gerðar voru á vegum hersins við að setja menn í svokall- aða „eldflaugarsleða" sem ætlaðir voru til að prófa þol nrannsins gegn hröðun (eins og á sér stað þegar eldflaug klifrar hratt upp í loftið). Við eina þessara tilrauna kom það fyrir að 16 hröðunarmælar sem límdir voru á líkama þess manns sem verið var að prófa, var öllum snúið öfugt þrátt fyrir að á öðrum enda þeirra væri vandlega merkt: Pessi hlið upp. Murphy setti þá fram svohljóðandi lög- mál: „Ef það eru tvær eða fleiri aðferðir til að gera eitthvað og ein þessara leiða getur leitt til ófarnaðar þá mun einhver velja þá leið. " Það liðu ekki margir mánuðir frá því að Murphy sagði þessi fleygu orð þangað til þetta var komið til allra deilda hersins. Þar aðlagaði hver og einn lögmálið að sínum þörfum og hið sama gerðist þegar það barst út um heimsbyggðina og sennilega er í dag til útgáfa af lögmáli Murphys fyrir flesta þætti daglega lífsins. Hér á eftir kemur lög- mál Murphys urn samskipti kynjanna og kynlíf. Ekkert batnar með árunum. Kynlíf eyðir örfáum hitaeiningum. Kynlíf er alls ekki tímafrekt en veldur alls konar vandamálum. Það er engin lækning við girnd önnur en kynlíf og meira kynlíf. Kynþokki er 50% það sem þú hefur og 50% það sem aðrir halda að þú hafir. Sofðu aldrei hjá tveimur mönnum á sömu skrifstofunni. Kynlíf er eins og snjórinn; þú veist aldrei hve djúpur hann verður né hversu langt verður þangað til hann bráðnar. Einn maður heima fyrir er meira virði en tveir úti á götu. Ef þú hefur „hreðjatak" á karlmönnum þá fylgir hjarta þeirra í kaupunum. Það er til lækning við meydómi. Þegar eiginkona lærir að skilja rnann sinn, hættir hún að hiusta á hann. Sofðu aldrei hjá neinum sem er geggj- aðri en þú. Þeir eðliseiginleikar sem draga konuna að manninum í upphafi eru oftast þeir sem hún hatar mest nokkrum árum seinna. Kynlíf er sóðalegt, aðeins ef það er gert á réttan hátt. Besta leiðin til að halda í konu er að hafa hana í örmum þínum. Kynhvöt er arfgeng. Ef foreldrar þínir hafa verið lausir við hana hefðir þú sjálf- sagt aldrei fæðst. Astarleikjum hefur aldrei verið aflýst vegna; veðurs, myrkurs eða þoku. Það var alls ekki eplið á trénu sem or- sakaði öll vandræðin í Edensgarði held- ur parið sem lá á jörðinni. Það er ýmislegt betra en kynlíf og margt verra en ekkert sem er alveg eins. Elskaðu náunga þinn en passaðu þig að ekki komist upp um þig. Ef geimferðaáætlun Bandaríkjanna hefði notið jafnmikillar athygli og karl- menn veita konubrjóstum væri nú hægt að fá sér pylsu á Bæjarins bestu á tungl- inu. Astin er efnafræði, kynlífið eðlisfræði. Gerðu það aðeins með þeim bestu. Einn góður snúningur skilar þér allri sænginni. Þú getur ekki eignast barn á einum mán- uði þótt þú gerir níu konur óléttar. Reyndu að standast vín, söng og karl- menn. Þó aðallega söng. Kynlíf er aðeins ein af níu ástæðum fyrir endurholdgun, hinar átta skipta engu máli. Brostu og fólk mun velta því fyrir sér um hvað þú sért að hugsa. Astin er þess háttar tálsýn að manni finnst einn maður öðruvísi en allir hinir. Vikan
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.