Vikan - 07.12.1999, Page 21
Er jólaborðið þitt eins flott og hjá mömmu þinni?
Húsverkin
Heimili, sem lítur út eins og
sýningarsalurinn í IKEA,
er ekki raunverulegt heim-
ili. Hvað með það þótt það
sé óuppvaskað leirtau í
vaskinum að morgni svona
einstaka sinnum? Þú getur
huggað þig við þá staðreynd
að drasl og drulla hleypur
ekki frá þér. Ef gestinum
þínum ofbýður heimilið þitt,
réttu honum Þrif brúsann og
tusku. Hann getur tekið
verkið að sér.
ÍS
Finnst þér ís rosalega góður
en þú vilt ekki borða hann
því hann er slæmur fyrir lín-
urnar? Skelltu ísnum í þig
án þess að finna til sektar-
kenndar.
Jólamaturinn
Býr mamma þín til besta
jólamat í heimi en gengur
þér illa að hafa hann eins
góðan? Ekki reyna að vera
mamma þín, vertu þú sjálf.
Fastar venjur og hefðir eru
jú eitt aðaleinkenni jólanna
en það er líka bara allt í lagi
að prófa eitthvað nýtt.
Kynlífið
Konur mega helst ekki hafa
frumkvœði að kynlífi, þær
eiga eingöngu að uppfylla
óskir karlmanna. Kannist
þið við goðsögnina? Að
sjálfsögðu er þetta eins og
hvert annað bull. Konur
eiga að njóta kynlífs á ná-
kvæmlega sama hátt og karl-
arnir og það sem meira er,
án sektarkenndar.
Laun
Konur sem krefjast hárra
launa eru frekjudósir og of-
meta sjálfar sig! Það er al-
veg merkilegt að þegar kon-
ur eru ákveðnar og fastar
fyrir þá eru þær stimplaðar
frekjudósir, alveg sama
hvort um laun eða eitthvað
annað sé að ræða. Konur
eiga að standa fastar á sínu
þegar launatölur eru ræddar.
Munið að þið getið gengið
út frá því sem vísu að karl-
maður í sama starfi er með
þrjátíu prósent hærri laun en
þið!
Móðurástin
Almennilegar mömmur
sauma, baka og elda dýr-
legan mat á hverju degi.
Þetta er reyndar einhver
goðsögn sem fæstar konur
geta eða vilja uppfylla. Nú-
tímamömmur eru með mörg
járn í eldinum. Þær vinna
oftast utan heimilisins, eru í
líkamsrækt eiga vinkonur
sem þær vilja sinna o.s. frv.
Þær sinna börnunum á þann
hátt sem þær telja heppileg-
ast. Sálfræðingar hafa oft
haldið því fram að það sem
skiptir mestu máli er hvern-
ig þú eyðir tímanum með
barninu þínu. Haldið þið að
langömmur okkar í torfkof-
unum hafi setið inni með
börnunum sínum og leikið
við þau? Aldeilis ekki. I
gamla daga höfðu foreldr-
arnir engan tíma fyrir börn-
in, það voru ömmur, afar og
vinnukonur sem sinntu
þeim. Njótið þess að vera
með börnunum ykkar þegar
þið getið. Uppteknir en
hamingjusamir foreldrar
gefa miklu meira af sér en
þeir sem eru að kafna úr
leiðindum.
Nýjar nærbuxur
Langar þig að kaupa flott-
ar nœrbuxur sem þú sást í
Kringlunni? Láttu það eftir
þér. Af hverju finnst konum
sjálfsagt að borga tugi þús-
unda í reikninga en eru að
deyja úr móral yfir einum
nærbuxum?
Of...
Offeit, ofmjó, oflítil, of
stór. Allt okkar líf þjáumst
við að sektarkennd yfir ein-
hverju OFi. Hættið að hugsa
um OF...
Ólétta
Eru vinkonur þínar sífellt að
tala um hve vel þeim leið
ófrískum, þær voru svo flott-
ar en þú sérð þig sem fíl í
hvert sinn sem þú lítur í speg-
il? Það segir sig sjálft að það
er ekki mjög uppbyggjandi
fyrir sjálfstraustið að þurfa að
ganga í fötum sem minna
helst á fimm manna útlegu-
tjald. Ekki fá sektarkennd
yfir því að vera óhress með
útlitið á meðgöngunni. Þú ert
ekki verri móðir, þú vilt bara
fá krflíð í fangið og komast í
gallabuxumar þínar!
Pillan
Þessi dásamlega litla tafla
er töfralyf því verður ekki
neitað. Ýmsar rannsóknir
benda til þess að hún eigi að
hafa slæm áhrif á hitt og
þetta í líkamanum. Nær all-
ar konur hafa tekið inn pill-
una, það er gjaldið sem við
höfum þurft að greiða til að
fá að stunda frjálst kynlíf.
Rassinn
Er þinn rass þakinn appel-
sínuhúð og einfaldlega allt
of stór miðað við alla flottu
rassana í auglýsingunum?
Hættu að bera þig saman
við þá. Með nútímatölvu-
tækni er hægt að gera alla
rassa brjálæðislega flotta.
Þetta er allt saman plat!
Samviskan
Þarf nokkuð að útskýra
þetta nánar?
Tattó
Hugrakkar konur láta
tattóvera sig. Hvaða máli
skiptir hvað fólki finnst um
tattó almennt?
Ung í anda
Konur sem vilja halda sér
ungum þurfa að haga sér
eins og þœr séu ennþá tutt-
ugu ára. Ekki fá samvisku-
bit ef þú heldur að þú hagir
þér ekki eins og vera ber.
Skelltu þér í Þjóðleikhús-
kjallarann með barnabörn-
unum ef þig langar, alveg
sama hvað aðrir segja!
Viagra
Langar þig til að fríska upp
á kynlífð, því ekki að verða
sér úti um Viagrá. Maðurinn
verður sjálfsagt ánægður eft-
ir á. Það er ekkert til að
skammast sín fyrir að verða
sér úti um eina bláa pillu.
Þ,Æ,Ö
Þróttmikil, œðisleg,
ögrandi...
Vittu til að þú getur verið
þetta allt saman ef þig bara
langar til.
Vikan 21
Vildir þú óska að þú værir með svona flottan rass?