Vikan - 07.12.1999, Blaðsíða 38
■■I
Efnislísti:
I. 40 sm bastkrans/hálmkrans
2.4,5 m kransaplast
3.1 vírrúlla
4. 2 búnt nobilisgreni
(u.þ.b.250 g)
5. 2 búntTuhja (u.þ.b. 250 g)
6.1 búnt Buxus (u.þ.b.250 g)
7.3 m borði (úr mjúku efni
með vír)
8. 3 könglar
9. 2 plastepli
10.2 coryllosgreinar
II. nokkrar vírlykkjur
12. klippur
flðferö:
Byrjið á að setja kransa-
plast utan um hringinn.
Festið enda plastsins með
vírlykkju og vefjið alltaf frá
vinstri til hægri.Takið vírrúll-
una og festið endann á
vírnum. Klippið nobilisgreni,
Tuhju og Buxus í frekar litl-
ar greinar og klippið alltaf
aftan frá og upp á við, en
þannig sést sárið ekki fram-
an frá. Útbúið lítil búnt úr
þessum tegundum (setjið
t.d. eina grein af hverju) og
leggið á misvíxl á hring-
inn.Vefjið síðan 2-3 hringi
með vírrúllunni til að festa
hvert búnt fyrir sig. Þegar
búið er að setja greinar og
vefja þær allan hringinn er
útbúin frekar lítil lykkja úr
tvöföldum vír sem síðan er
notuð til að hengja krans-
inn.
Slaufan er gerð úr 3
metrum af mjúkum borða
með vír í. Byrjið á að finna
miðjuna á borðanum og
festið hann saman undir
þumalfingri, vísifingri og
löngutöng. Þetta er nauð-
synlegt til að borðinn renni
ekki úr höndunum. Notið
síðan vinstri hönd (ef rétt-
hent, annars öfugt) til að
búa til lykkjur á borðann og
gerið þær til skiptis vinstra
og hægra megin. Munið að
festa borðann alltaf inn á
milli fingranna. Gerið u.þ.b.
3-4 lykkjur hvoru megin og
passið að endarnir verði
ekki of stuttir. Síðan þegar
slaufan er tilbúin er fínn vír
tekinn og lagður utan um
miðjuna á slaufunni (þar
sem haldið var við) og snú-
ið upp á hann að aftan.
Þegar slaufan hefur verið
fest saman er næsta skref
að stinga henni í kransinn
og til þess notast vírinn á
slaufunni.
Að lokum er könglunum
þremur stungið í kransinn,
tveimur eplum og coryllos-
greinarnar festar þar sem
þær koma best út. Vírlykkj-
ur eru notaðar til þess.
Það er líka vert að benda
á það að nobilisgrenið er
ekki það eina sem hægt er
að nota í slíkan krans, það
getur verið mjög fallegt að
blanda saman Nobilis- og
Normannsgreni. Einnig get-
ur verið fallegt að nota
hvers kyns grænar greinar
eins og t.d. Taxus o.fl.
Gróðurvörur/Garðheimar
munu koma til með að
standa fyrir námskeiðum
allan ársins hring og verða
þau auglýst í versluninni að
Stekkjarbakka 6 og einnig
er hægt að fá nánari upp-
lýsingar í gegnum síma
540-3300. Leiðbeinendur á
námskeiðunum eru þær Jó-
hanna Margrét Hilmarsdóttir
(Ninna) og Ragnheiður
Hrönn Björnsdóttir (Heiða).