Vikan


Vikan - 02.05.2000, Síða 4

Vikan - 02.05.2000, Síða 4
Kæri lesandi Fermingarfárið g er ekki fermd og tók sjálf þá ákvörðun um það leyti sem jafnaldr- ar mínir fóru að ganga til prests. Foreldrar mínir og aðrir í fjölskyldunni höfðu fermst svo þetta kom þeim nokkuð á óvart en ákvörðun mín var að fullu virt. Sömu sögu var hins vegar ekki hægt að segja um kennara nokkurn í skólanum mínum sem hneykslaðist mjög á þessari ákvörðun minni. Eftir langan fyrirlestur um ágæti og nauðsyn ferminga, skikk- aði hann mig upp að töflu og lét mig gera grein fyrir þess- ari stórundarlegu ákvörðun minni; að fermast ekki. Á viðkvæmu unglingaskeiðinu er erfitt að synda á móti straumnum og víst er að blessaður kennarinn gerði mér það ekki auðveldara. Eg náði þó að koma þeirri skoð- un minni á framfæri að stað- festing skírnar minnar væri einkamál sem ég kysi að gera í einrúmi og þyrfti ekki kirkju, kufl og prjál til þess að eiga samskipti við guð. Ég er enn á sömu skoðun. Ég hef hins vegar fullan skilning á því að börn láti ferma sig enda eru fermingar hefð og hluti af þjóðfélagsmynstrinu. Langflestir berast áfram með straumnum og láta ferma sig því allir aðrir gera það. Og það er ekki svo lítið í húfi fyrir börnin! Horfin er sú tíð er fermingarbörn fengu nyt- samlegar og látlausar gjafir á fermingardaginn eins og góð- ar bækur, fallega penna, úr eða svefnpoka. Slíkt þykir bara hallærislegt í dag. I dag fá börnin sjónvarp með inn- byggðu myndbandstæki, ut- anlandsferðir, húsgögn og háar fjárupphæðir. Gleymum ekki gemsunum en þeir eru víst ákafleg vinsælir til ferm- ingargjafa. Ég spurði vin- konu mína nýlega hvort 13 ára sonur hennar hefði virki- lega eitthvað við gemsa að gera og það stóð ekki á svar- inu: „Veislu ekki hvað GSM stendur fyrir? Gott samband við mömmu!“ sagði hún hlæjandi. Mér þykir það sorglegt ef samskipti mæðra við börnin þeirra byggjast á farsímanotkun og get ekki séð að það sé „öryggisatriði“ eins og sumir vilja meina. Mér finnst það öllu heldur vera ákveðið óöryggi sem er falið í því. GSM sími er aftur á móti þægilegur fyrir barnið sem getur hringt heim, hvar sem það er nú statt, og sagt að allt sé í stakasta lagi hjá sér. Enginn þurfi að hafa áhyggjur. Ég myndi alla vega hafa áhyggjur af símreikn- ingnum ... Vikan er fjölbreytt að vanda. Hildur formaður Krafts er í viðtali hjá okkur og við urð- um þess heiðurs aðnjótandi að fá einkaviðtal við Karin Herzog sem við birtum í þessu tölublaði. Við lítum inn á sýninguna Matur 2000 og skoðum líka vortískuna í ár. Við fáum úr því skorið hvaða íslendingar eru flottastir í tauinu, erum með heilsu- mola, nýja smásögu og kynn- umst börnunum hennar Betu Englandsdrottningar. Ymis- legt annað fróðlegt og skemmtilegt lesefni ber á góma í þessari Viku. Njóttu Vikunnar Hrund Hauksdóttir, Ritstjóri Sæla á Suðurlandi í mars Sigurlaug Sveinsdóttir, Faxabraut 42d, Keflavík, varð sú heppna þegar dregið var úr stórum bunka bréfa sem bárust með svörum í leiknum Sæla á Suður- landi. Hún varð heldur en ekki kát, því þegar við hringdum í hana var hún að halda upp á afmæli eigin- manns síns. Hún sagði þetta frábæra gjöf til hans á afmælinu. Við óskum Sigurlaugu og eiginmanninum til hamingju með vinninginn! Vinnlngshafí í Lesendaleík Vikunnar og Einarl Farestveit: Ólöf Marteinsdóttir, Heiðarbraut 9 a, 230 Keflavik Ólöf hefur þegar fengið sent gjafabréf og getur eins og fyrri vinningshafar sótt vinn- inginn í verslun Einars Farestveit. Ritstjorar: Johanna G. Haröardottir og Hrund Hauksdottir, vikan@frodi.is. Útgefandi: Fróöi hf. Seljavegi 2, sími: 515 5500 fax: 515 5599. Stjórnarformaður: Magnús Hreggviðsson Aöalritstjóri: Steinar J. Lúðvíksson, simi: 515 5515. Framkvæmdastjóri: Halldóra Viktorsdóttir, simi: 515 5512. Blaðamenn: Steingerður Steinarsdóttir, Gunnhildur Lily Magnusdóttir, Guðríður Haraldsdottir og Margrét V. Helgadóttir. Auglysingastjórar: Ingunn B. Sigurjónsdóttir og Sigriður Sigurjonsdóttir vikanaugl@frodi.is. Grafískur hónnuður: Guðmundur Ragnar Steingrímsson Verð í lausasölu 459 kr. Verð i áskrift ef greitt er með greiðslukorti 344 kr. á eintak. Ef greitt er með gíroseðli 390 kr. a eintak. Litgreinmg og myndvinnsla: Froði hf Unmð i Prentsmiðjunni Odda hf. Öll réttmdi áskilin varðandi efm og rnyndir. Áskriftarsími: 515 5555

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.