Vikan


Vikan - 02.05.2000, Blaðsíða 59

Vikan - 02.05.2000, Blaðsíða 59
1. Karllitningar hjálpa til Karlmenn hafa ekki átt í miklum erfiðleikum með að klífa metorðastigann fram til þessa. Ef þú ert karlmaður, þarftu sjálfsagt ekkert á þess- um ráðum að halda en konur ættu að halda áfram að lesa. 2. Byrjaðu neðst Allir þurfa að byrja ein- hvers staðar og af hverju ekki neðst? Reyndu að nota tæki- færið á meðan þú sleikir um- slögin til að læra af umhverf- inu, t.d. hvað ber að varast. Um leið og þér er boðin stöðuhækkun eða betra starf, veistu að þú ert byrjuð að vinna þig upp á við. 3. Notaðu JfllÐ Jákvætt fólk er alltaf metið að verðleikum. Ef þú leggur þig fram við að vera hjálpsöm við samstarfsmenn þína og yf- irmenn, muna samstarfsmenn þínir frekar eftir þér og þú átt betri möguleika á að komast áfram. Ekki vera með upp- gerð, það er fátt eins ömur- legt og að fylgjast með nei- kvæðri manneskju sem er að reyna að þykjast jákvæð og bjartsýn en bölvar um leið og hún getur. Ef þú ert já-mann- eskja, gættu þess að láta ekki vaða yfir þig. Sú manngerð getur líka sett mörk og vill láta virða óskir sínar. 4. Uertu tilbúin að vinna lengur Yfirmenn þínir kunna vel að meta ef þú ert tilbúin að vinna ómælda yfirvinnu. Til að fá ennþá fleiri stjörnur hjá yfirmanni þínum, geturðu boðist til vera lengur af fyrra bragði. Starfsmaður sem er tilbúinn að fórna öllu fyrir vinnuna, á góða möguleika á að færast upp á við. Ef þú færð góðar hugmyndir varð- andi starfið, komdu þeim á framfæri um leið og þú getur og eignaðu sjálfri þér heiður- inn. 5. Uertu stundvís Þetta er grundvallarregla sem þú mátt aldrei gleyma. Starfsmenn sem eru sífellt að- eins of seinir, eða mæta hrein- lega ekki á tilsettum tíma, fá fljótt það orðspor á sig að geta ekki mætt á réttum tíma. Það er góð tilfinning að mæta fyrstur á vinnustaðinn að vera hress og kátur og geta boðið öllum góðan daginn þegar þeir mæta með stírurnar í augunum. 6. Lánu vaða Besta leiðin til að sam- starfs- og yfirmenn taki eftir þér, er að vera ófeimin að koma fram með nýjar hug- myndir og lausnir. Þú þarft ekki að tilkynna allt sem þér dettur í hug á fjölmennum starfsmannafundi en það er um að gera að vera óhrædd- ur við að koma skoðunum sínum á framfæri við hentug tækifæri. 7. Uertu ákveðin Markaðu ákveðin ramma í kringum störf þín og haltu vörð um hann. Skipulagðir starfsmenn, sem hafa gert áætlanir fram í tímann, eru líka mjög vinsælir. Ekki láta aðra samstarfsmenn rugla þig í ríminu og gættu þess líka að gefa þeim ekki of mikið upp um fyrirætlanir þínar. 8. Kynæsandi klæðnaður Það er ástæðulaust að klæð- ast rifnum gallabuxum og upplituðum bol, þótt þú sért ekki ennþá orðin yfirmaður. Vertu klædd snyrtilegum fatnaði og ef þig langar að fara í þrönga bolinn og stutta pilsið, láttu það eftir þér. Ekki láta það hvarfla að þér að þú komist á toppinn, vegna klæðnaðarins eingöngu, en sambland af gáfum og snyrti- legu útliti hefur skilað mörg- um í toppstöðu. 9. Geymdu vandamálin heima Yfirmaður þinn hefur eng- an áhuga á hversu oft hund- urinn þinn fór að pissa síðast- liðna nótt eða hvað amma þín hefur verið lengi á Reykja- lundi. Það er sjálfsagt að ræða persónulegu vandamálin sín við einn eða tvo nána sam- starfsmenn, en að íþyngja öll- um með vandamálum þínum er einfaldlega of mikið. Yfir- menn hafa í nógu öðru að snúast en að fylgjast með fjöl- skylduharmleikjum hvers einasta starfsmanns. 10. Búðu til góða ímynd af yfirmanninum Ef þú hefur einhver tök á að skapa jákvæða ímynd af yfirmanninum, notaðu endi- lega tækifærið. Hrósaðu hon- um þegar hann heyrir ekki til og reyndu að hlaða hann lofi við öll tækifæri. Leyfðu hon- um að njóta viðurkenningar- innar þótt hann eigi hana kannski ekki einn skilið. Ef þetta er almennilegur yfir- maður, þá nýtur þú þess áður en þú veist af. 11. Símasálfræði Skrifstofustörf eru að miklu leyti unnin í gegnum síma. Hér koma nokkur góð ráð til að auka á vinsældir þín- ar á skrifstofunni. Þó að viðmælandi þinn hafi svarað símanum, byrjaðu alltaf á því að spyrja hvort þú sért að trufla eða eigir að hringja síðar. Vertu hnitmið- uð og komdu því að sem þú þarft að koma á framfæri og endaðu svo símtalið. Það er óþolandi að sitja uppi með blaðrandi fólk sem hefur greinilega ekkert að gera í vinnunni. Þakkaðu fólki fyrir að svara skilaboðum, tölvupósti og símtölum frá þér. Ef þú situr uppi með ein- hverja blaðurskjóðu, segðu að þú sért á leiðinni á fund eða þurfir að snúa þér að öðr- um verkefnum á eins kurteis- an hátt og þú hugsanlega get- ur. 12. Uertu hakkiát Velgengni er ekki sjálfsögð og þeir sem eru á toppnum vita að hún er fallvölt. Sýndu tilfinningar þínar þegar vel gengur en láttu erfiðleikana ekki stöðva þig. Leiðin er ekki alltaf upp á við og því verður að búast við því að stundum gangi illa. Horfðu fram á við á slæmum dögum. 13. Sýndu óbrjótandi um- burðarlyndi Samstarfsmenn þínir eru manneskjur, rétt eins og þú, og því skaltu sýna þeim virð- ingu þótt þú þolir þá ekki. Þú þarft ekki að segja þeim ævi- söguna en það minnsta sem þú getur gert er að sýna þeim tillitssemi og kurteisi. Allir þekkja það frá sínum vinnu- stað að a.m.k. einn samstarfs- maðurinn er hreinlega óþol- andi, hann getur t.d. verið frekur, hávær, dónalegur eða forvitinn. Við því er ekkert að gera nema að leiða það hjá sér. Starfsmenn sem eru sífellt að nöldra yfir öðrum sam- starfsmönnum kunna ekkert fyrir sér í mannlegum sam- skiptum og því er spurning hvort viðkomandi hafi eitt- hvað að gera í stjórnunar- starf. 14. Kynnstu rétta fólkinu Það kemur sér alltaf vel að eiga góða vini, svo ekki sé minnst á áhrifamikla vini. Það virkar vel á yfirmennina að geta sagst hafa farið út að borða með ráðherrum og fræga fólkinu. Að þekkja alla toppana í sínu fagi kemur þér á réttan stað að lokum. 15. Kíktu við i kaffi Þeir sem ætla sér á toppinn, verða að vera duglegir að rækta sambandið við yfir- mennina. Næst þegar þú gengur framhjá skrifstofum þeirra, líttu inn til þeirra með kaffibolla og farðu að spjalla við þá. Þeir hafa eflaust gam- an af því að heyra hvað þú hefur að segja og kunna að meta þessa nálgunaraðferð þína. Kannski hafið þið sam- eiginlegt áhugamál og getið sinnt því að lokinni vinnu. Vikan 59
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.