Vikan - 02.05.2000, Blaðsíða 52
Nú fer að
náigast sá tími
þegar ófáar konur
draga fram tuskur,
fötur, skrúbba og sápu-
efni og endasendast upp um
alla veggi og loft við að hreíngera.
Vorhreingeruing heitir fyrirbærið sem barna
um ræðir og er eitthvað sem íslenskar húsmæður sem standa vilja undir nafní
hafa stundað um nokkurra áratuga skeið. Flestar nútímakonur eru latari en for-
mæðurnar og láta sér oftast nægja að sletta málningu yfir úhreinindin á veggj-
unum begar bau eru orðin meiri en góðu hófi gegnir. En til er ákveðin tegund
kvenna sem enn sinnir hreingerningaskyldunum af samuiskusemi tvisvar á ári,
fyrir jól og undir uorið. Þær taka á verkefninu af mismikilli alvöru eins og geng-
ur og gerist. Sumar hafa á kynningum keypt sér ofurtuskur fyrir ríflega mánað-
arlaun verkamanns og frægar ryksugur sem hreinsa bókstaflega allt.
sömu tuskur
svo skipta
verður um með
reglulegu millibili.
góði
gegnir hér ekki stærra hlutverki
en venjuleg ryksuga fyrr en kemur að
bólstruðu húsgögnunum sem okkur er svo
annt um. Djúpt í iðrum þeirra hafa hreiðrað
um sig viðurstyggilegir rykmaurar. Þar fjölga
þeir sér líkt og þeir hafi aldrei heyrt nefnt off-
fjölgunarvandamál heimsins og kæra sig koll-
ótta um hversu andstyggilega ljótir þeir eru.
Gæðingurinn gljáfagri lætur sig ekki muna
um að sjúga upp sem svarar öllu mannfólki
Kínaveldis af þessum smákvikindum í ein-
um andardrætti. Mikil fullnægja hlýtur að
fylgja því að vita að manni hafi tekist að
fremja slíkt fjöldafjöldamorð á svo örskömm-
um tíma. Rúmin, sófarnir, stólar og púðar eru
meðhöndlaðir á þennan hátt og konur sem
banka sín húsgögn eða láta nægja að ryksuga
með venjulegri smáryksugu hljóta að hylja
höfuð sitt í skömm þegar þær sjá hversu
greinilega samanburðurinn er þeim í óhag.
Því auðvitað hljóta konur sem sinna svo vel
um hreinlæti á heimilum sínum að vera sín-
um nánustu betri og meiri stuðningur en hin-
ar.
Nýlega barst út sú frétt að nú væri komið
á markað ofurstrauborð með áföstu
straujárni. Þetta nauðsynlega heimilistæki
bætir og kætir. Auk þess herma fregnir að
skella megi eiginmanninum upp á borðið og
renna straujárninu fína eftir gömlu ferming-
arfötunum hans og myndast þá egghvöss brot
í útvíðu bítlabuxurnar og þær geti því dugað
einn ganginn enn á árshátíð fyrirtækisins.
Þótt herlegheitin kosti á við sumarfrí á Spáni
fyrir einn þarf ekki að sýta það því þessi
sparnaður í fatahreinsunargjöldum og fata-
kaupum mun borga það upp á innan við ári.
Þegar vorið nálgast kætast þessar
konur, ekki við að horfa á gróand-
ann sem stingur litlum grænum
sprotum upp úr moldinni, heldur
við að kíkja á snyrtilega tuskuhrúguna í skúff-
unni og gljáandi stálryksugufákinn í skápn-
um. Hreingerningakonurnar hugumstóru
byrj a í eldhúsinu og velj a vandlega þá ofurtu-
sku sem hæfir eldhúsinu, málið er ekki flók-
_ ið því hver tuska hefur yrjur og litur þeirra
~ gefur til kynna hvaða herbergi hún hæfir og
hvaða verki. Veggir, bekkir borð og tæki eru
“ vandlega þrifin með þessari undratusku og
“ sérframleiddri einstaklega umhverfisvænni
“ sápu. Næst er dregin fram fagurlega yrjótt of-
^ urtuska ætluð á gler og glugginn pússaður þar
_ til hann gljáir. Ryksugufákurinn góði, sem svo
« sannarlega mætti kalla hreinræktaðan veð-
u hlaupagrip fremstan meðal jafningja í dýra-
c tegundinni ryksugur. Ryksugan sú minnir
® ekki á neinn hátt á venjulegar, hógværar smá-
w pöddur frá AEG, Electrolux og öðrum fram-
leiðendum. Þærerujafnlangtþarfráogjarð-
x ýta frá skóflu, þetta er iðnaðartæki fremur en
“ heimilistæki. Ryksugan góða kemur næst í
eldhúsin og hún fær að sjúga ryk upp úr ofn-
um og af gólfum. Skipt er um haus og settur
sérstakur pússhaus sem nuddar ofninn og
eldavélina þangað til allir ljótir blettir hverfa
og gamla „rúffið" verður eins og nýtt.
Baðherbergið er næst og þangað ferðast
dugnaðarforkarnir með tvær gerðir ofurklút-
anna góðu og síðan er rogast með fákinn
stóra á staðinn. Nú eru tengdir við hann
nuddhausar og allir aðrir hausar sem hugsan-
lega kunna að koma að notum.
Sogið er svo sterkt að það getur náð stíflu
úr vaski og svo má snúa því við og fá blástur
úr tækinu og þar með blása jukkinu út á hafs-
auga í einum góðum blæstri. Nuddhausinn
gælir við flísarnar og nær af þeim aldargöml-
um óhreinindum og kísil og þær gljá sem
aldrei fyrr. Tuskurnar vinna sitt verk hér á
postlíninu í hreinlætistækjunum og auka
ljóma þess og lit. Hér má vel dveljast dag-
part áður en hreinlætisþörfinni er fullnægt.
Fjöldamorð án samuiskubits
Stofur og herbergi fá sinn skammt af gæða-
tuskustrokum. Gluggar og húsgögn þola ekki