Vikan


Vikan - 02.05.2000, Síða 23

Vikan - 02.05.2000, Síða 23
athygli þína. Þeim gæti einnig flogið í hug að þú sért að not- færa þér aðstöðu þína og haf- ir engan áhuga á þeim, aðeins drykkjunum. Þú skalt bjóðast lil að borga næsta umgang enda mun það örugglega kæta hann. Með því móti sendir þú frá þér tvenn skilaboð. Skilaboð númer eitt: Þú ert nægilega hrifin af honum til að þurfa ekki að láta múta þér með frí- um drykkjum til þess að spjalla við hann. Skilaboð númer tvö: Þú ert frjálslynd og sjálfstæð kona. ... fikta í fötunum hans! Þig langar til að brjóta ísinn og sýna honum að þú sért ekkert smeyk við náin sam- skipti við hann. Þig langar til þess að komast í snertingu við hann án þess að það sé of aug- ljóst. Svo í stað þess að gera hið rétta í málinu, eins og að snerta hnéð á honum eða höndina, þá teygir þú þig í átt- ina að honum og tínir nokk- ur hár af jakkanum hans. Svo herðir þú aðeins bindishnút- inn, burstar ósýnilegt ryk af öxlunum á honum ... I stuttu máli þá ertu að fikta við hann. Þér finnst þetta kannski vera daður af þinni hálfu en þú minnir hann á móður hans að snyrta hann til fyrir barnaaf- mæli. Með því að vera að fikta svona í honum fær hann það á tilfinninguna að hann sé illa til hafður eða kunni ekki að klæða sig, en að þér finnist það allt í lagi því þú ætlir að sjá um þetta og stjórna öllu lífi hans um leið. Örugglega ekki sniðugt. Hann á mjög líklega móður og þarf ekki á annarri að halda. ... segja frá kynlífs- reynsm binni! Foreldrar, ráðherrar og gamlir landafræðikennarar hafa allir stundað kynlíf en satt best að segja þá er ekk- ert eftirsóknarvert að vita um það í smáatriðum. Það gildir það sama um þig. Maður sem þú ert að kynnast hefur eng- an áhuga á að heyra um fyrri bólfarir þínar. Það er ekkert athugavert við að gefa í skyn að þú eigir nú spennandi reynslu að baki en slepptu nöfnum, stöðum og sérstak- lega einkunnagjöf. Annars mun nýi maðurinn í lífi þínu vera hræddur um að standast ekki samanburð við fyrrver- andi elskhuga þína. ... planleggja lífykk- ar samanl Það eru alls ekki allir karl- menn hræddir við skuldbind- ingu og við það að vera í föstu sambandi eða hræddir við þá ábyrgð að vera fullorðnir. Þeir eru heldur ekki endilega smeykir um að þú sért að leggja fyrir þá gildru. Þú þarft hins vegar að velja vandlega stað og stund til þess að ræða framtíðina og passa upp á að það sé ekki gert of snemma í upphafi sambands. Daður snýst um að gleyma sér í augnablikinu og taka áhættu. Ef þú ferð að tala um fallegan lit á svefnherbergið og í hvernig kjól þú myndir vilja gifta þig þá gerir maður- inn ráð fyrir að þú sért of upp- tekin við að hugsa um fram- tíðina til þess að geta notið nútíðarinnar og þar með til- hugalífsins. Þú gætir allt eins verið að tala um hvað sé erfitt að hreinsa óhreinindi af flís- unum inni á baði, það er svona álíka spennandi fyrir hann. ... hafa áhyggjur! Mundu að þú ert að fást við karlmann og þeir eru nú oft- ast til í tuskið, hvað svo sem er í gangi! Þegar upp er stað- ið er hann svo upp með sér yfir athyglinni frá þér að hann verður eins og slefandi hvolp- ur þótt þú gerir eitthvað af mistökunum sem nefnd voru hér að ofan. Ef þú ferð rétt að ættir þú ekki að vera í neinum vand- ræðum með allt tilstandið í til- hugalífinu. Árbæjarapótek Borgar Apótek Garðs Apótek Hringbrautar Apótek Laugarnesapótek Rima Apótek Snyrtihöllin Garðatorgi Apótekið Iðufelli Apótekið Mosfellsbæ Apótekið Nýkaupi, Kringlunni Apótekið Smáratorgi Apótekið Smiðjuvegi Apótekið Spðnginni Apótekið Suðurströnd Apótekið Firði - Hafnarfirði Lyf og heilsa Hveragerði Lyf og heilsa Þorlákshöfn Lyf og heilsa Selfossi Apótek Keflavíkur Lyfja Grindavík Akranessapótek Borgarnessapótek Apótek Ólafsvíkur Apótek Vestmannaeyja Stúdíó Dan (safirði Apótek Blönduóss Hagkaup Kringlunni Hagkaup Skeifunni Hagkaup Smáratorgi Lyf og heilsa Austurveri Lyf og heilsa Domus Medica Lyf og heilsa Fjarðarkaupum Lyf og heilsa Glæsibæ Lyf og heilsa Háteigsvegi Lyf og heilsa Hraunbergi Lyf og heilsa Kringlunni Lyf og heilsa Melhaga Lyf og heilsa Mjóddinni Sól og sæla Hafnarfirði World Class Reykjavík Sauðárkróksapótek Hagkaup Akureyri Lyf og heilsa Akureyri Apótekið Akureyri Húsavíkur Apótek Nesapótek Neskaupstað Egilsstaðaapótek Apótekið Eskifirði Hafnarapótek Hótel Tangi Vopnafirði Snyrtistofur sem vinna með Karin Herzog snyrtistofuvörur, þar sem enn virkari efni eru notuð. Fínar linur - Skúlagötu 10, Rvk.Heilsudrekinn Ármúla 17a, Myrra Austurvegi 4, Selfossi Fegurð Brekkugötu 9, Akureyri Hjá Eygló .Fáskrúðsfirði Landsbyggðin: ICa.rin Herzog S WITZERL A ND

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.