Vikan


Vikan - 02.05.2000, Page 30

Vikan - 02.05.2000, Page 30
AIUR DREYMIR OKKUR Lísa er flott og falleg. Hún kynntíst Keuin, glæsilegum, frægum og forríkum poppara, begar hann keyrði aftan á bíl- inn hennar. Keuín er háuaxinn, dökkhærður og kynbokkafull- ur, með ómótstæðilegt bros. Hún bauð honum far, hann bauð henni í mat og fyrr en uarðí uoru bau komin upp í rúm. Hún uar í skýjunum. Hún uar eíns og deig í höndunum á honum og hann tilbað hana. Það er eins gott að Lísa er bara sögu- persóna í bók sem heitir Heaven in His Arms. Imyndið ykkur hvað við yrðum afbrýðisamar ef Lísa væri vinkona okkar. Líf okkar yrði svo hversdagslegt og óspennandi miðað við líf Lísu. Ég og vinkonur mínar kynntust mönnunum okkar fyrir mörgum árum, ýmist í Glaumbæ eða í gegnurn vini okkar. í þeim hópi eru engar poppstjörnur og það verður að segjast eins og er að eng- inn þeirra kæmi til greina sem fyrirsæta í auglýsingu fyrir vaxtarræktarstöð. Við eigum okkar góðu stundir en þær er engan veginn hægt að bera Z saman við rómantískt líf jjj sögupersónanna í ástarsög- £ unum. 2 Ef sagan af Lísu og Kevin ” ætti eitthvað skylt við raun- o veruleikann myndi hún — hljóða eitthvað á þessa leið: ■= Kevin er bankastarfsmaður ■=>• og Lísa er ritari. Þau hittust .t eitt kvöldið á barnum, giftu - sig þremur árum seinna og •S keyptu sér íbúð. Þau hafa c alltof mikið að gera, hafa ekki efni á því að fara í sumarfrí og “ rífast stöðugt. Ástríðurnar eru fyrir löngu slokknaðar en = ennþá elska þau hvort annað. 2 Satt að segja kann ég betur n. við fyrri útgáfuna. Freistandi skyndikynni Stöðugt fleiri taka þá ákvörðun að fara að búa sam- an eða ganga í hjónaband eft- ir stutt kynni. Það endur- speglar hraðskreiðan tíðar- andann. Fyrir nokkrum árum var fólk saman í marga mán- uði, eða jafnvel árum saman, áður en svo mikilvæg ákvörð- un var tekin. Nú stofna marg- ir til hjónabands eftir nokk- urra mánaða, eða jafnvel nokkurra vikna, kynni. Eng- inn virðist sjá neitt athugavert við það. Hvers vegna liggur fólki svona mikið á? Julia Cole, sem starfar sem hjónabands- ráðgjafi, segir að við getum sett þetta upp í einfalt mengi: „ímyndum okkur tvo hringi sem skarast. í öðrum hringn- um er skynsöm, sjálfstæð kona sem getur auðveldlega séð fyrir sér sjálf. í hinum hringnum eru draumar henn- ar og goðsögnin um að allar konur eigi þá ósk heitasta að ganga í hjónaband með manni sem er tilbúinn að sjá fyrir henni. Þarna skarast draumurinn og raunveruleik- inn. Allar konur vilja vera sjálfstæðar og taka sínar eig- in ákvarðanir en bíða engu að síður eftir því að riddarinn á hvíta hestinum komi og taki stjórnina í sínar hendur. Frá blautu barnsbeini höfum við heyrt um þennan riddara og þegar við komum á tánings- aldurinn lesum við um hann í ástarsögunum." Hversu oft heyrum við ekki sagt: „Þegar þú hittir hinn eina sanna ...“ Ennþá álíta margir sem svo að við kon- urnar séum lítils virði ef við höfum ekki karlmann okkur við hlið. Helst eigum við all- ar að upplifa ást við fyrstu sýn. En í flestum tilfellum er það alls ekki þannig. Öskubuskuáráttan er svo rótgróin að það tekur sumar konur mörg ár að losna und- an henni. Birna, sem er tutt- ugu og níu ára, orðar það þannig: „Þegar ég hitti mann- inn minn fyrst fannst mér frekar lítið til hans koma. Vissulega var hann aðlaðandi en það var langt frá því að ég kiknaði í hnjáliðunum og mig svimaði ekki hætis hót. Ég hafði lesið svo margar ástar- sögur í gegnum tíðina að ég var alveg viss um að ég ætti eftir að kynnast og giftast valdamiklum, ríkum manni. Kynþokkafullum hrotta sem ég bæði hataði og elskaði út af lífinu. Ég var með mörgum mönnum sem stóðu fyllilega undir þeim kröfum og skyldi ekkert í því hvers vegna ég var svona óhamingjusöm! Það tók mig mörg ár að skilja að sönn ást snýst um vináttu ekki síður en ástríður. Reynsl- an hefur kennt mér að vinátta er meira virði en ástin, eins og henni er lýst í ástarsögunum." Auðuitað er betta brjál- æði, en samt... Auðvitað er skynsamlegra að gefa sér góðan tíma til þess að kynnast hinum tilvonandi vel og rækilega áður en stóra skrefið er stigið. Það er nefni- lega allt of auðvelt að ruglast á ástríðum og raunverulegri ást. Sálfræðingurinn Mary Hersfield segir: „Þegar þú ert í ástarbríma finnst þér ekk- ert geta farið úrskeiðis. Ástríður eru eins og eiturlyf. Þú lifir fyrir daginn í dag og lokar augunum fyrir vanda- málunum. Þau hverfa eins og dögg fyrir sólu.“ Auðvitað langar okkur all- ar að upplifa þannig ástríður. Gréta er þrjátíu og tveggja ára og hún lifði í drauma- heimi - í smá tíma. „Okkur þyrstir í ást vegna þess að hún lyftir okkur upp úr tilbreyt- ingarleysi daglegs lífs. Ást- fangin kona er eins og ball- erína í spiladós. Ástin er draumsýn og flótti frá raun- veruleikanum. Það held ég að sé ástæða þess að ég féll kylli- flöt fyrir ímyndinni af ástinni ári eftir að ég skildi við mann- inn minn. Eftir skilnaðinn ákvað ég að fara í háskóla og læra listasögu. Þar hitti ég Palla. Hann bauð mér út að borða, við fórum saman í bíó og til Parísar. Hann vildi halda sambandi okkar leyndu fyrir bekkjarfélögum okkar og það var í lagi mín vegna. Mér fannst feluleikurinn gera sambandið jafnvel enn meira spennandi. Fjórum mánuð- um eftir að við byrjuðum að vera saman hrundi heimurinn í kringum mig þegar ein bekkjarsystir mín trúði mér fyrir því að hún ætti leynileg- an elskhuga. Palla.“ Margar konur geta sett sig í spor Grétu. Þær kannast við bj artsýnina og ekki síður von- brigðin. Dr. Cole segir drauminn um sterkan og traustan karlmann blunda í okkur öllum. Við viljum karl- mann til þess að annast okk- ur eins og foreldrar okkar gerðu þegar við vorum litlar. En það getur verið hættuleg draumsýn. Margar konur gera sér grein fyrir því að ástarævin- týri þurfa ekki endilega að enda með hjónabandi. I þeirra augum eru þessi ævin- týri aðeins skemmtileg dægrastytting. Lára er tutt- ugu og fimm ára spennufíkill sem veit nákvæmlega hvað hún vill. „Ég leita markvisst eftir ástarævintýrum eins og við lesum um í bókunum, þar sem ástin jafngildir því að vera ríkur og fallegur. Hvers- dagsleg ást sem fer fram inn- an veggja lítillar blokkaríbúð- ar finnst mér ákaflega óspennandi tilhugsun." Sú tegund ástar sem Lára sækist eftir er sú sem við les- um um í tímaritum sem fjalla um fræga og ríka fólkið. Sú ást fyllir okkur öfund. Við erum svo vissar um að þetta fólk lifi miklu betra kynlífi og sé hamingjusamara en aðrar 30 Vikan

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.