Vikan


Vikan - 02.05.2000, Side 60

Vikan - 02.05.2000, Side 60
Börn drottningar Ekkert venjulegt im Börn Elísabetar II Eng- landsdrottningar og Fil- ippusar manns hennar, hertogans al Edinborg, eru Karl, Anna, Andrés og Játvarður. Þau virðast fremur ólíkar manngerðir. Karl er talinn viðkvæmur, Anna hörð af sér og í miklu uppáhaldi hjá föður sínum, Andrés hefur bott glaðlyndastur af heim og er uppáhald móður sinn- ar og Játvarður pykir nokkuð feiminn. Erfðaprinsinn Karl Hann fæddist í 14. nóvember árið 1948 og heitir fullu nafni Karl Phillip Arthur Georg. Þegar Karl var 29 ára var búið að sæma hann öllum þeim tign- um og nafnbótum sem þarf til að hann geti orðið konungur. Að öllu óbreyttu sest hann í hásætið að móður sinni látinni. Þegar Karl var kominn á fer- tugsaldurinn lét hann loks undan þrýstingi og fann sér konu. Eins og allur heimur veit kvæntist hann lafði Díönu Spencer árið 1981 og eignaðist með henni tvo drengi. Þeir heita Vilhjálmur ArthurFilippusLouis, f. 21.júní 1982 og Hinrik Charles Albert David, f. 15. september árið 1984. Þeir hafa búið hjá föður sínum eftir að Díana lést fyrir tæpum þremur árum. Díana var aldrei stóra ástin í lífi hans þótt hann reyndi í upphafi að vera henni góður eiginmaður. Taugin milli Karls og vinkonu hans, Camillu Parker Bowles, sem hann kynnt- ist á áttunda áratugnum slitnaði aldrei þrátt fyrir hjónabönd beggja með öðrum einstakling- um. Camilla ákvað að taka bónorði Andrew Parker Bowles því hún gerði sér grein fyrir að Karl myndi aldrei biðja hennar. Á þessum tíma varð tilvonandi drottning að vera saklaus, óspjölluð mær og það var Camilla ekki. Þetta kom þó ekki í veg fyrir að ástin á milli Karls og hennar blómstraði. Rómantískt samband Camillu og Karls hef- ur staðið yfir í 27 ár með hléum. Það kostaði á endanum hjóna- band beggja og olli konungsfjöl- skyldunni skömm. Camilla er 52 ára gömul, sex mánuðum eldri en prinsinn, og ekki er ólíklegt að hún verði önnur eiginkona hans. Tímarnir hafa breyst á þessum nærri þremur áratugum síðan þau kynntust og ekki er loku fyr- ir það skotið að hún geti orðið drottning hans. Hún hæfir Karli betur á allan hátt en Díana. Þeim líður vel saman, eru góðir vinir og hafa sömu áhugamálin. Svo er Camilla þagmælsk og hefur aldrei tjáð sig opinberlega um samband hennar og Karls. Það kann konungsfjölskyldan að meta. Því er haldið fram að frá fyrstu kynnum hafi Karl verið ástfanginn af Camillu en ekki þorað að tjá sig um það. Þau voru aðskilin í sex mánuði og á með- an trúlofaðist Camilla manninum sem síðar varð fyrrverandi eig- inmaður hennar, Andrew Parker Bowles. Sá var um tíma kærasti Önnu systur Karls. Karl er guð- faðir Thomasar sonar Camillu og Andrews. Karli líður best á heimili sínu, Highgrove, þar sem hann rækt- ar garðinn sinn (sem er víst gull- fallegur). Vinsældir Karls hafa aukist til muna á síðustu árum og breska þjóðin er orðin sáttari við samband hans við Camillu. Anna hin uinnusama Anna Elisabeth Alice Louise fæddist 15. ágúst 1950. Hún hef- ur alla tíð forðast sviðsljósið og segist hafa andstyggð á blaða- mönnum og ljósmyndurum. Hún er afar vinnusöm og sinnir skyld- um sínum fyrir konungsfjölskyld- una best systkina sinna. Anna giftist fyrri manni sínum, Mark Phillips kafteini, árið 1973 á afmælisdegi Karls prins þann 14. nóvember. Þau voru gift í 18 ár og eignuðust tvö börn saman. Þau eru Peter Mark Andrés Fil- ippus f. 15. nóvember 1977 og Zara Anna Elísabet f. 15. maí 1981. Börnin bera ekki titla því faðir þeirra hafnaði öllu slíku er hann gekk að eiga Önnu. Hjóna- bandi þeirra lauk formlega í apr- íl 1992. Anna giftist aftur 12. des- ember sama ár Timothy Laurence kapteini í konunglega sjóhernum. Anna þykir hörð af sér og sannaðist það heldur betur árið 1973 þegar gerð var tilraun til að ræna henni. Hún og Mark voru nýgift og voru á leið heim úr

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.