Vikan - 16.05.2000, Síða 49
Fjölskyldumanneskja sem
lifir uenjulegu lífi
Þótt glæpir og sálarlíf
glæpamanna sé aðaláhuga-
mál Minette Walter er uppá-
haldsbók hennar alls ekki
beinlínis um það efni en það
er skáldsagan To Kill a Mock-
ingbird eftir Harper Lee það
er dásamleg og hjartnæm
saga um það hvernig tvö ung
systkini verða vitni að því
þegar faðir þeirra tekur að sér
að verja blökkumann sem
sakaður er um nauðgun,
hversu langt kynþáttafor-
dómar geta leitt dagfarsprúða
nágranna.
„Bókin er svo fullkomin að
Harper Lee skrifaði ekkert
uppfrá því enda hefði ekki
verið hægt að gera betur,“
segir Minette um þessa upp-
áhaldsbók sína. Það versta
við að vera rithöfundur segir
hún hins vegar vera það:
„Að þurfa að réttlæta að
ímyndunarafl mitt varð til
þess að ég fór að skrifa. Eg
ráðgeri að myrða þann blaða-
mann sem næstur spyr mig að
því hvers vegna ég sé heltek-
in af dauðanum eða hvers
vegna indæl kona eins og ég
skrifi myrka, sálfræðilega
glæpareyfara. Báðar þessar
spurningar eru vitlausar því
blaðamennirnir byggja þær á
röngum forsendum."
Minette Walters er ákaf-
lega mikil fjölskyldumann-
eskja. Hún lagði starfsfram-
ann á hilluna um stund eftir
að hún átti börnin og hóf ekki
að skrifa aftur fyrr en þau
voru orðin það stálpuð að þau
þurftu ekki jafnmikið á henni
að halda. Frístundum sínum
ver hún að mestu með fjöl-
skyldunni en auk þess sinnir
hún hundunum sínum og
öndunum sem þau fóstra á
sveitasetri sínu í Hampshire.
„Eg ek líka gjarnan um í
Jagúar XK8 bílnum mínum,
ræð krossgátur eða raða
púsluspilum. Eg sigli og syndi,
leik tennis, les, horfi á sjón-
varp og fer í bíó,“ segir hún
til að leggja áherslu á hversu
venjulegu lífi hún lifi.
Hollywood freistar ekki
Bækur Minette eru einstak-
lega vel til þess fallnar að
kvikmynda. Fléttan er spenn-
andi, endirinn óvæntur og
persónurnar svo raunveru-
legar að helst minna þær á
manninn eða konuna í næsta
húsi. Minette er hins vegar
ekki hrifin af Hollywood og
segist ekki tilbúin til að selja
þeim í hendur réttinn til að
búa til kvikmyndir eftir bók-
um sínum.
„Ég hef fengið tilboð frá
Hollywood en læt mig ekki
einu sinni dreyma um að taka
þeim. Ekkert fengi mig til að
skrifa undir
Hollywood-
samning,“ segir
hún hlæjandi.
„Séð meðaugum
þess sem stendur
utan kvikmynda-
iðnaðarins er
hann einna
brotakenndasti
og grimmasti við-
skiptavettangur
sem til er. Rithöf-
undurinn er svo
alltaf sá fyrsti
sem fórnað er á
altari Mammons
og hvers vegna
ætti maður að
ganga sjálfviljug-
ur í gegnum
slíkt?“
BBC hefur unnið flestar
þáttaraðir sem gerðar hafa
verið eftir bókum Minette og
hún er mjög ánægð með út-
komuna.
„Ég skammast mín ekkert
fyrir að viðurkenna að ég vissi
að ef gerðir yrðu sjónvarps-
þættir eftir einhverri bóka
minna væri það auglýsing fyr-
ir hinar sem mjög margt fólk
sæi. Sá er hins vegar hængur-
inn á að ef þeir klúðra sög-
unni getur þú ekki kvartað
því þú vissir að sú var áhætt-
an þegar þú skrifaðir undir
samninginn. Þegar gerð var
sjónvarpsmynd eftir The
Sculptress krosslagði ég fing-
ur og bað um góðan byr. Síð-
an þá hef ég verið yfir mig
hrifin af öllu sem BBC hefur
gert eftir bókum mínum. The
Sculptress var frábær og The
Icehouse enn betri. Ég hef
lært það af þessari reynslu að
maður verður að vera viss um
að maður sé að skrifa undir
samninga við fólk sem mað-
ur hefur trú og traust á.“
Bækur Minette Walters eru
ekki léttar og í þeim er lítið
um gleltni. Hún segist samt
hafa mjög gaman af kímni og
skemmtileg orðheppni sé það
sem helst komi henni til að
hlæja. Sennilega er fátt sem
gefur tilefni til að hlæja þeg-
ar kafað er djúpt í dekkstu
hliðar mannlegs eðlis og illsk-
an könnuð í kjölinn en víst er
að þótt Minette veki ekki
hlátur eru áreiðanlega fáir
sem geta lesið bækur hennar
án þess að finna fyrir
hrollköldum spenningi.
IMirunda Kichardsson í
Nornagríinunni.
Vikan
49