Vikan - 16.05.2000, Qupperneq 52
Þættirnir um Ally
McBeal sem sýndir
eru á Stöð tvö hafa
notið gífurlega vin-
sælda hérlendis sem og er-
lendis. Þættirnir virðast höfða
bæði til kvenna og karla á
ýmsum aldri og dæmi eru um
ur hin fallega Lucy Alexis Liu
sem leikur viðskiptavininn
Ling Woo, hleypt nýju lífi í
þættina sem andstæða við
hina viðkvæmu og tilfinn-
ingaflæktu Ally.
Það er kannski að bera í
bakkafullan lækinn að rekja
að vinnufélagar og vinir hitt-
ist í heimahúsum í hverri viku
sem þættirnir um Ally
£ McBealerusýndireinsogum
Z stórviðburð í sjónvarpi væri
'■S að ræða. Gífurlegar vinsæld-
.3 ir þáttanna má að miklu leyti
^ þakkaaðalleikkonunni.hinni
“ smágerðu Calistu Flockhart.
Calista hefur verið gagnrýnd
— mikið fyrir holdafar sitt því
~J húnþykirafarmögurenþrátt
5 fyriraðhúnhafihvorkibrjóst
^ né mjaðmir svo heitið geti,
hefur hún sterka útgeislun og
c þokka sem hefur skilað sér af
o sjónvarpsskjánum heim í
.u stofu. Auk Calistu koma
x margir góðir leikarar við sögu
" en að öðrum ólöstuðum hef-
söguþráðinn í Ally McBeal
þáttunum en í stuttu máli má
þó segja að þættirnir fjalli um
Ally sem er lögfræðingur á
þrítugsaldri sem gengur vel í
réttarsalnum en ekki nógu vel
í einkalífinu. Inn í líf hennar
fléttast m.a. æskuástin Billy
Thomas (Gil Bellows) sem nú
er kvæntur Georgiu (Court-
ney Thorne-Smith) en þau
þrjú starfa á sömu lögfræði-
stofu sem veldur nokkrum
flækjum. Aðrar mikilvægar
og merkilegar manneskjur í
lífi Allyar sem allar tengjast
á lögfræðiskrifstofunni eru
m.a. hin kynþokkafulla Nelle
Porter (Portia de Rossi) sem
er snjall lögfræðingur sem
Ally á erfitt með að þola, Ric-
hard Fish (Greg Germann),
annar eigandi lögfræðistof-
unnar og miskunnarlaus pen-
ingamaður sem hrífst af háls-
um eldri kvenna, John Cage,
hinn eigandi lögfræðistofunn-
ar, sem er sálufélagi Allyar
því hann er jafn skrýtinn ef
ekki skrýtnari en hún og síð-
ast en ekki síst hin kærugjarna
Ling Woo, einn aðalvið-
skiptavinur lögfræðiskrifstof-
unnar, sem áðurnefnd Lucy
Alexis Liu leikur. Ling þessi
er eins og áður sagði algjör
andstæða Allyar því Ling er
ísköld framakona sem veit
hvað hún vill og lætur tilfinn-
ingarnar ekki flækjast fyrir
sér. Samleikur Calistu og
Lucyar í hlutverkum Allyar
og Ling er oft ákaflega
skemmtilegur enda er per-
sónum þeirra síður en svo vel
til vina þótt Ling sé einn
stærsti viðskiptavinur lög-
fræðistofunnar sem Ally
vinnur á.
En hverjar eru þessar kon-
ur sem mynda svo skemmti-
legt samband á skjánum, stór-
eygða stúlkan með spóalegg-
ina og asíska ísdrottningin?
Stóreygða stúlkan með
spóaleggina
Calista Flockhart er tals-
vert eldri heldur en hún lítur
út fyrir að vera því hún er
fædd 11. nóvember 1964 og
verður því þrjátíu og sex ára
á þessu ári.
Hún fæddist í bænum
Freeport í Illinois þar sem
móðir hennar, Kay, var
enskukennari og faðir henn-
ar, Ronald, var framkvæmda-
stjóri en ólst upp í New York
og New Jersey. Calista á einn
eldri bróður.
Astarlíf Calistu er nokkuð
á huldu en hún er meðal ann-
ars sögð hafa átt í leynilegu
sambandi við framleiðanda
Ally McBeal þáttanna, Dav-
id Kelley, sem er kvæntur fjöl-
skyldumaður. Eins og er býr
hún ein í Hollywoodhæðum
eins og sannri stjörnu sæmir
en hefur félagsskap af hund-
inum sínum Webster.
Hún var skírð „Calista“
sem er gríska og þýðir „hin
fegursta“ í höfuðið á
langömmu sinni.
Calista virðist hafa verið
ósköp venjuleg amerísk
stúlka og laus við geðflækjur
vinkonu sinnar Allyar
McBeal því hún tók virkan
þátt í félagslífi framhalds-
skóla síns í New Jersey þar
sem hún var meðal annars
klappstýra og félagi í leikfé-
laginu.
Eftir útskrift stundaði hún
nám við Rutgers háskólann í
New Jersey um tíma og tók
þátt í mörgum leiksýningum
innan skólans og fékk góða
dóma fyrir leik sinn. Auk þess
starfaði hún um tíma sem lík-
amsræktarkennari.
Stóra tækifærið kom hins
vegar árið 1995 þegar hún
fékk aðalhlutverkið í leikriti
Tennessee Williams, The
Glass Menagerie. Fyrir leik
sinn í því verki hlaut hún
tvenns konar viðurkenning-
ar gagnrýnenda. Þar með var
boltinn farinn að rúlla og
Calista lék í mörgum góðum
leikritum heimsbókmennt-
anna, bæði á Broadway og
með óháðum leikhópum, eins
og Þremur systrum Tjekovs,
þar sem hún var tilnefnd til
Tony-verðlauna fyrir besta
leik í aukahlutverki.
Eins og sjá má á þessari
upptalningu er Calista metn-
aðarfull leikkona sem nýtur
sín vel á sviði. Auk þessa hef-
ur hún leikið í nokkrum kvik-
myndum sem þó hafa ekki
52
Vikan