Vikan - 16.05.2000, Blaðsíða 61
verið vísbending um að
dreymandinn ætti að taka líf-
inu með meiri ró. Fjólublár er
litur heilbrigðs metnaðar og
einlægrar sannleiksleitar.
Rauðfjólublár litur táknar
óheilbrigða græðgi sem á
ekkert skylt við sjálfsbjargar-
viðleitni. Gráblár litur er
merki um veikindi. Einnig að
dreymandinn falli of auðveld-
legafyrir freistingum.
E^33Sakleysi og styrkur.
Stundum táknar hann stund
milli stríða, einnig að dreym-
andinn axli ekki alltaf ábyrgð
því honum finnist hann yfir
allt dægurþras hafinn.
Svartur: Merki um vinamissi,
neikvæð öfl og ólán. Að
dreyma svartklætt fólk getur
verið feigðarboði.
Brúnn: Boðar oft ófarir og
vandræði og er fremur nei-
kvæður litur. Ef draumurinn
fjallar um hreina og þurra
mold er það gott tákn og
merkir að nú sé réttur tími til
að rækta garðinn sinn.
Tölur og litir
í talnaspekinni segir að
hver tala hafi sinn lit. Ef ör-
lagatala þín er 5 þá er lukku-
liturinn þinn sægrænn sam-
kvæmt því. Annars staðar í
þessu blaði er viðtal við Her-
mund Rósinkranz talnaspek-
ing og þar kennir hann að-
ferðina við að reikna út ör-
lagatölur hvers og eins.
rauður 1
blár 6
appelsínugulur 2
fjólublár 7
3
8
grænn 4
gulllltaður 9
sægrænn (túrkís) 5
Litir árunnar
Sumir halda því fram að
umhverfis hverja manneskju
sé ára. Litir hennar breytist
eftir líðan okkar. Eftirfar-
andi listi skýrir tákn lita í til-
finningaáru fólks.
hlýja, samúð, óeigin-
gjörn ást, vinátta.
Rauður: ást, gleði, hrifning,
kátína.
Grænn: samúð, vinátta, vin-
semd.
Blán traust, vinátta.
Hvftur:
Brúnn: græðgi.
óhreinleiki.
Gulbrúnn: sjálfselska, mont,
eigingirni.
Rauðbrúnn: afbrýðisemi,
hroki, frekja, reiði.
Rauðgulur gleði, góðlátleg
stríðni.
Brúnmosagrænn: nöldur,
pirringur, óvingjarnleiki,
óþolinmæði.
Dökkblár: þvermóðska,
innilokun.
Blágrænn: dagdraumalitur,
skilningur.
Dökkblágrænn: vantraust og
tortryggni.
Fjólurauður: hrifning,
rósemi.
FjólUblár: hátíðleiki, rósemi.
Dökkfjólublár: getur merkt
slægð og tortryggni.
Lesendaleikur
Vikunnarog Pfaff
Lesendaleikur Vikunnar hefur alltaf verið
feikílega vinsæll og lesendur okkar hafa
verið duglegir að senda inn lausnir.
Dregið er mánaðarlega í leiknum. Til mik-
ils er að vinna og vinningshafar hafa ver-
ið afar ánægðir enda hafa vinníngarnir
alltaf verið glæsílegir.
Nú höldum við lesendaleiknum áfram
með nýjum samstarfsaðila, Pfaff, og regl-
urnar eru enn sem fyrr hessar:
Vikan
Safnið þrem hornum framan af forsíðu Vikunnar.
Þegar þið hafið safnað þrem merktum forsíðu-
hornum skulið þið senda okkur þau ásamt nafni,
heimilisfangi, kennitölu og símanúmeri.
Dregið er úr innsendum umslögum um hver
mánaðamót, hringt í vinningshafann og honum
sent gjafabréf sem jafnframt er ávísun á vinning-
inn.
Mallorca kamína
Kamína setur rómantískan blæ á stofuna eða
sumarbústaðinn. Mallorca kamínan er fallegur
gripur, hún er mjög vönduð og sterk og sómir sér
því alveg jafn vel inni í stofu og í sumarbústaðn-
um. Hún er ekki mjög fyrirferðarmikil, málin eru
90x49x39 þannig að það ætti að vera auðvelt að
koma henni fyrir á góðum stað þar sem fjölskyld-
an ætlar að hafa það notalegt í framtíðinni.
Mallorca kamínan kostar 69.900 krónur
Taklu Dátt í Lesendaleiknum! Sendu inn þrjú
forsíðuhorn af Vikunní fyrir 3 iúní og þú gæt-
ir eígnast þessa fráhæru kamínu frá Pfaff.
PFA F
cHeimilistœkjaverslun
Grensásvegur 13 -108 Reykjavík - Sími 533 2222
Veffang: www.pfaff.is
Merkið umslagið:
Vikan, Lesendaieikur
Seljavegi 2,
121 Reykjavík
Glæsilegur vinningur í Lesendaleik
Vikunnar og Pfaff í maí: