Vikan - 01.08.2000, Blaðsíða 40
Upplýsingar um hvar Tinnugarnið fæst í síma 565-
4610.
Stærðir:
(3) 6 (9) 12 mánaða.
Stærðir á flíkinni sjálfrí:
Yfirvídd: (55) 59 (63) 67 sm.
Skálmasídd: (17) 20 (23) 25 sm.
Sídd: (52) 57 (62) 67 sm.
LANETT superwasll (100% ull)
Fjöldi af dokkuni:
Beinhvítt nr. 103/1012: (5) 6 (6) 7
Auk þess afgangar í svörtu og gulu í útsaum.
ADDI prjónar frá Tinnu.
Við mælum með Bambus prjónum.
Hringprjónar og sokkaprjónar nr. 2,5 og 3.
Fylgihlutír:
(6) 6 (7) 7 hnappar.
Gott að eiga:
Merkihringi, prjónanælur, prjónamál, þvottamerki
fyrir LANETT.
Prjónfesta á IANETT
30 lykkjur með sléttu prjóni á prjóna nr. 3 = 10
sm.
Ef of laust er prjónað þarf fínni prjóna.
Ef of fast er prjónað þarf grófari prjóna.
Fitjið upp á sokkaprjóna nr. 2,5 (52) 52 (56) 56 lykkj-
ur. Prjónið 7 prjóna slétt prjón í hring = kantur og
síðan 4 sm stroff, 2 sléttar og 2 brugðnar lykkjur. [
síðustu umferð eru auknar í (35) 39 (39) 43 lykkj-
ur með jöfnu millibili = (87) 91 (95) 99 lykkjur. Skipt-
ið yfir á prjóna nr. 3 og byrjið á munstri. ATH. fyrsta
lykkja í hverri umferð er alltaf prjónuð brugðin =
merkilykkja innanfótar og er hún ekki prjónuð inn
í munstrið. Aukið í 1 lykkju sitt hvorum megin við
merkilykkjuna í (6.) 6. (7.) 7. hverri umferð í allt (9)
11 (13) 13 sinnum = (105) 113 (121) 125 lykkjur.
Þegar stykkið mælist (17) 20 (23) 25 sm (mælið
alltaf lóðrétt upp), eru felldar af 5 lykkjur innanfót-
ar. Setjið afganginn af lykkjunum á hjálparprjón og
merkið 2 lykkjur í hvorri hlið = hliðarlykkjur. Prjón-
ið hina skálmina á sama hátt.
Setjið skálmarnar saman á hringprjón nr. 3 þannig
að lykkjurnar 5, sem felldar voru af, snúi saman.
Prjónið jafnframt 2 lykkjur saman af sitt hvorri
skálm í miðjunni að framan og aftan. Nú eru (198)
214 (230) 238 lykkjur á prjóninum. Prjónið í hring
yfir allar lykkjurnar og athugið að umferðin byrjar
við merkilykkju beint að framan. Önnur merkilykkja
er beint að aftan. Haldið áfram og prjónið munst-
ur en prjónið báðar merkilykkjurnar alltaf sléttar og
eru þær utan við munstrið. Takið úr að aftan og
framan: 2 lykkjum framan við merkilykkju er 1
lykkja tekin óprjónuð af prjóninum, 1 prjónuð slétt,
óprjónuðu lykkjunni steypt yfir. Eftir merkilykkju eru
2 prjónaðar slétt saman, 4 úrtökur í allt í umferð-
inni. Endurtakið þetta 5 sinnum í annarri hverri um-
ferð = ( 178) 194 (210) 218 lykkjur. Prjónið 2 um-
ferðir. í næstu umferð eru merkilykkjurnar prjóna-
ðar með næstu lykkju við hliðina = (176) 192 (208)
216 lykkjur. Munstrið gengur nú upp yfir allan
prjóninn. Fellið af 4 lykkjur í byrjun næsta prjóns,
prjónið hann á enda, snúið við og fellið af 4 lykkj-
ur í byrjun prjónsins = (168) 184 (200) 208 lykkj-
ur. Prjónið nú fram og til baka þar til stykkið mælist
(39) 43 (47) 49 sm.Takið nú úr hliðalykkjurnar 2 í
hvorri hlið = (39) 43 (47) 49 lykkjur á hvoru fram-
stykki og (86) 94 (102) 106 lykkjur á bakstykki.
Vinstra framstykki: Prjóniö munstur fram og til
baka og takið jafnframt úr fyrir ermaopi á öðrum
hverjum prjón 2,2,1 lykkju = (34) 38 (42) 44 lykkj-
ur. Fyrsta og síðasta lykkja eru kantlykkjur og eru
alltaf prjónaðar sléttar. Þegar ermaopið mælist (9)
10 (11) 11 sm er tekið úr við hálsmálið á öðrum
hverjum prjón (6,2,2,1,1) 7,2,2,1,1 (7,3,2,1,1)
7,3,2,1,1 lykkja. Prjónið þartil ermaopið mælist
(13) 14 (15) 16 sm og felliðaf.
Hægra framstykki: Prjónast eins og það vinstra,
nema eins og spegilmynd.
Bakstykki: Fellið af fyrir ermaopi í hvorri hlið eins
og á framstykkjunum = (76) 84 (92) 96 lykkjur.
Þegar bakstykkið er 4 sm styttra en framstykkið
eru (32) 34 (36) 36 lykkjur á miðju stykki settar á
hjálparþráð fyrir hálsmál. Prjónið axlastykkin í fulla
lengd og fellið af.
Fitjið upp á sokkaprjóna nr. 2,5 (40) 40 (44) 44
lykkjur. Prjónið 7 umferðir með sléttu prjóni + 2,5
sm stroff, 2 sléttarog 2 brugðnar. Aukið í með jöfnu
millibili á síðasta prjón í (51) 51 (55) 55 lykkjur.
Skiptið yf ir á prjóna nr. 3 og prjónið munstur. Prjón-
ið alltaf fyrstu lykkjuna í umferðinni brugðna =
merkilykkja undir hendinni, auk þess sem aukið
er í 1 lykkju sitt hvorum megin við merkilykkjuna
í 4. hverri umferð = (75) 81 (87) 91 lykkja. Þegar
ermin mælist (14) 15 (16) 17 sm er merkilykkjan
tekin úr og eftir það er prjónað fram og til baka. Auk
þess eru teknar úr 4 lykkjur í upphafi hvers prjóns
þar til (26) 32 (30) 34 lykkjur eru eftir. Fellið þær
af. Prjónið hina ermina á sama hátt.
Fitjið upp (88) 92 (96) 100 lykkjur á prjóna nr. 3
og prjónið munstur fram og til baka (fyrsta og síð-
asta lykkja prjónaðar sléttar = kantlykkjur). Setj-
ið þráð um 2 lykkjur á miðjum prjón = miðjan að
aftan. Aukið í 1 lykkju sitt hvorum megin við þær
á 12. hverjum prjón 4 sinnum = (104) 108 (112)
116 lykkjur. Þegar stykkið mælist (16) 17 (18) 19
sm eru teknar úr 2 lykkjur sitt hvorum megin við
miðlykkjurnará 4. hverjum prjón 5 sinnum. Skipt-
ið nú lykkjunum á 2 prjóna með jafnmörgum lykkj-
um á hvorum prjón. Leggið hettuna saman, réttu
móti réttu og prjónið 1 lykkju af hvorum prjón sam-
an. Haldið áfram og prjónið alltaf saman 2 lykkjur,
jafnframt því sem fellt er af.
Prjónið upp með prjónum nr. 2,5 u.þ.b. (106) 114
(122) 130 lykkjur, fremst á hettunni. Prjónið 9
prjóna stroff + 7 prjóna með sléttu prjóni. Fellið
af.
Fitjið upp 22 lykkjur á prjóna nr. 3 og prjónið 5 sm
munstur. Skiptið yfir á prjóna nr. 2,5 og prjónið 6
prjóna stroff (ekki of fast) + 7 prjóna slétt prjón.
Fellið af og prjónið annan vasa. Saumið býflugu á
miðja vasana. Búkurinn er saumaður með flat-
saumi sem er stystur til endanna en lengstur áflug-
unni miðri. Saumið 2 gul og 2 svört spor 3. sinn-
um, og endið á einu svörtu spori við þreyfiang-
ana. Saumið þá með einu svörtu spori fyrir hvorn
anga. Saumið vængina með 1 stóru svörtu lykkju-
spori sem er saumað niður með litlum sporum í
hliðunum. Hvor fluga á á vera u.þ.b. 2 x 2 sm.
Saumið saman í skrefið, saumið axlasaumana og
saumið í ermarnar.
Listar: Prjónið upp með prjónum nr. 2,5 u.þ.b. (84)
90 (96) 102 lykkjur eftir öðrum kantinum. Prjónið
9 prjóna stroff og fellið af með sléttum og brugðn-
um lykkjum. Merkið hvar hnapparnir eiga að vera
(5) 5 (6) 6 stk. með jöfnu millibili. Athugið að (6.)
6. (7.) 7. hnappurinn kemur á hálslíninguna. Þeg-
ar listinn er prjónaður hinum megin eru hnappa-
götin prjónuð á samsvarandi stöðum, á 4. prjón
með því að fella af 2 lykkjur og fitja upp 2 á næsta
prjón.
Hálslíning: Prjónið upp með prjónum nr. 2,5 u.þ.b.
(84) 88 (92) 96 lykkjur og prjónið 9 prjóna stroff.
ATH. að síðasta hnappagatið kemur á hálslining-
una.
Saumið hettuna á innan við hálslíninguna, byrjið
við annan listann miðjan og endið eins.
Saumiðvasanaáframstykkin.réttfyrirofan neðsta
hnapp. Saumið hnappana á. Saumið þvottamerki
fyrir LANETT inn í flíkina.
endurtakið
byrjið hér
□ = Slétt á réttunni, brugðið á röngunni
0 = Brugðið á réttunni, slétt á röngunni
40 Vikan