Vikan - 19.09.2000, Blaðsíða 16
Gullkremin góðu
Notkun gulls í fæðubót-
arefnum er ekki
óþekkt. Má þar nefna
Yucca gull vítamínið sem
þykir flestra meina bót. Nú
eru hins vegar komnar á
markað snyrtivörur sem inni-
halda 24 karata gullflögur.
Vörurnar eru án ilmefna og
eru því ekki ofnæmisvaldar,
engin kemísk efni eru heldur
notuð í þær. Gullið skiptir
afar miklu máli, það jafnar og
skýrir húðlitinn, það sér um
að binda raka í húðinni og
flýtir fyrir endurnýjun
frumna. Anna Bára Ólafs-
dóttir og Rósa Björk Hall-
dórsdóttir snyrtifræðingur
standa á bak við de CHINE
snyrtivörurnar hér á landi.
„Rósa Björk var á alþjóð-
legri snyrtivörusýningu á ítal-
íu þegar hún fann de CHINE
vörurnar,“ segir Anna Bára.
„Hún hafði leitað að góðri
vöru í 11 ár og varð því held-
ur kát að finna hana loksins.
Rósa fékk umboðið fyrir de
CHINE vörurnar og í sam-
einingu stofnuðum við fyrir-
tækið íslandssólir utan um
það.“
„Það er annað efni í de
CHINE snyrtivörunum sem
er ekki síðra en gullið,“ held-
ur Anna Bára áfram. „Það
heitir hyaluronic og er dýr-
ara en sjálft gullið. Eg var að
tala um þessar snyrtivörur við
Guðmund Má Stefánsson
lýtalækni og hann segir að
uppbygging hyaluronic sé sú
sama og hann notar til að
sprauta undir húð sjúklinga
sinna í fegrunarskyni. Þetta
efni hefur þau áhrif að það
sléttir úr dýpri hrukkum og
því er t.d. varakremið frá de
CHINE mjög virkt í að vinna
á hrukkunum fyrir ofan var-
irnar. Margar konur stríða við
það að geta ekki varalitað sig
án þess að liturinn fari eftir
hrukkunum og langt upp fyr-
ir varirnar," segir Anna Bára.
16 Vikan
Rósa Björk og Anna Bóra með hluta af
de CHINE snyrtivörulínunni.
Gulltlögurnar sjást vel á þess-
ari niynd en þær leysast auö-
veldlega upp þcgar kreniin
eru horin á húðina. Kreinin
frá de CHINE eru bæði nær-
andi og kælandi fyrir húöina
en yfirleitt húa kreni ekki yffir
háðnni þeini eiginleikiun.
Rósa Björk og Anna Bára
eru þessa dagana að mark-
aðssetja de CHINE vörurn-
ar á íslandi en þær fást nú
þegar í Fríhöfninni og á
nokkrum snyrtistofum og í
sérverslunum.
Þrátt fyrir að aðeins bestu
fáanlegu efni séu notuð í þess-
ar snyrtivörur eru þær í sama
verðflokki og margar merkja-
vörur sem seldar eru hérlend-
is. Steinefni og sjaldgæfar
jurtir sem vaxa í 11 þúsund
feta hæð í hreinu og ómeng-
uðu umhverfi eru leyndar-
málið á bak við gæði vörunn-
ar, að sögn Önnu Báru. Alda-
gömul þekking kínverskra
vísindamanna liggur einnig
að baki þar sem 24 karata
gullið er í aðalhlutverki. í
haust kemur silfurlínan frá de
CHINE en hún hentar fólki
með mjög feita húð. Einnig
kemur bað- og líkamslína á
næstunni. Fyrir áhugasama er
símanúmer Önnu Báru 861-
4186.