Vikan - 19.09.2000, Blaðsíða 50
texti: Gunnhildur Lily Magnúsdóttir
Ertu nýkomin út á uinnumarkaðinn að afloknu námi og veist ekki hvernig hú átt að komast áframP Kannski
barftu ekki að breyta miklu tii hess að yfirmaðurinn sjái big í nýju Ijósi og ueiti hér stöðuhækkun.
1) Leiðinlegu verkin
Flestir verða að láta sig
hafa það að vinna alls kyns
óspennandi og hálf „heila-
laus“ verkefni í byrjun ferils
síns. Þér finnst það kannski
þér ekki samboðið að vélrita
nafnspjöld eða sendast í
hreinsun fyrir yfirmanninn
þegar þú getur slegið um þig
á fjórum tungumálum eða
rætt um stöðu verðbréfa-
markaðsins. Láttu starfið
samt ekki draga þig niður,
gerðu þitt besta og hafðu það
hugfast að það á aðeins að
vera upphafið að langri en
skemmtilegri ferð á toppinn.
2) „Já-manneskjan“
Jafnvel þótt það sé engin
ástæða og hreint og beint
asnalegt að vera algjör gólf-
motta í nýju vinnunni er gott
að vera alltaf til staðar þegar
yfirmaðurinn biður þig að
vinna fram eftir eða taka
verkefni með þér heim. Þú ert
í raun og veru ekki að þessu
fyrir hann heldur fyrir sjálfa
þig. Vertu bara viss um að þú
hljótir viðurkenningu fyrir
þessi aukastörf þín. Ef ekki
ertu bara gólfmotta sem
aldrei kemst áfram.
3) flllir hafa sín takmörk
Það er mikilvægt að þú
þekkir takmörk þín í starfi
þótt þér sé mikið í mun að
koma þér áfram. Ekki bjóð-
ast til að taka að þér verkefni,
sem þú veist innst inni að þú
50 Vikan
ræður ekki við, bara til að
ganga í augun á yfirmannin-
um. Slíkt kemur þér bara í
koll því á endanum kemur í
ljós að þú ræður ekki við
verkið og hefur kannski
klúðrað því.
Þessi regla á auðvitað
einnig við þá sem eru að
sækja um vinnu. Það er ekk-
ert athugavert við það að
nota „sambönd" sín til að
komast í vinnu sem maður er
vel hæfur í en passaðu þig á
því að troða þér aldrei í vinnu
sem þú ræður ekki við eða að
„skreyta" menntun þína eða
starfsferil svo þú fáir ákveð-
ið starf.
4) Stundvísi er mikiluæg
Sennilega er aldrei of oft
hamrað á því, sérstaklega
ekki hér á Islandi, hversu
mikilvæg stundvísi er þegar
fólk er að koma sér áfram.
Mættu alltaf á réttum tíma og
jafnvel örlítið fyrr en ætlast er
til af þér. Þessar aukamínút-
ur skipta þig litlu máli en geta
engu að síður hjálpað þér á
framabrautinni.
5) Ekkert hangs
Ef yfirmaðurinn biður þig
að leysa eitthvert ákveðið
verkefni af hendi skaltu gera
það strax en ekki eftir hálf-
tíma. Þér finnst kannski ekki
mikilvægt að vélrita þessa
skýrslu núna af því að þú veist
að hún á ekki að fara frá þér
fyrr en daginn eftir en
kannski skiptir það yfirmann-
inn máli.
6) Metnaðargirni en ekki
trekja
Það er gott að vera metnað-
argjarn en yfirgangur og
frekja eru allt annar hlutur.
Komdu vel fyrir og leystu
verkefni þín vel af hendi, ekki
í hljóði en heldur ekki þannig
að allir í fyrirtækinu viti ná-
kvæmlega hvað þú ert að gera
hverja einustu mínútu dags-
ins. Ef þér finnst þú eiga
stöðuhækkun skilda skaltu
ræða það einslega við yfir-
manninn þegar tækifæri gefst
en ekki reyna sífellt að láta
ljós þitt skína til þess eins að
hreykja þér af eigin verkum.
7) Réttur klæðaburður
Sumar konur telja rétt að
klæðast lítið áberandi fatnaði,
hlutlausum og fáguðum, sem
nánast gerir þær að hluta af
húsgögnunum, í vinnunni. Ef
þér líður vel í þannig fatnaði
skaltu ganga þannig til fara en
ef ekki skaltu finna þér þinn
persónulega stíl í vinnunni.
Þér þarf nefnilega að líða vel
í „vinnugallanum“ til þess að
þú getir einbeitt þér að krafti
að vinnunni. Mundu bara að
það er mikilvægt að vera
snyrtileg og vel til fara á flest-
um stöðum.
8) Persónuleg vandamál
Ertu að skilja eða geturðu
ekki borgað greiðslukorta-
S
reikninginn? Það er kannski
allt í lagi að segja einum eða
tveimur vinnufélögum frá
vandamálum sínum en það er
afar óráðlegt að gera yfir-
manninn að trúnaðarvini
nema vandamál þín snerti
vinnuna beint. Yfirmaðurinn
er bara hluti af lífi þínu í vinn-
unni og honum ber engin
skylda til að hlusta á persónu-
leg vandamál þín og senni-
lega finnst honum það óþægi-
legt og vandræðalegt. Það er
því ekki vænlegt til árangurs
að gráta á öxl yfirmannsins ef
þú ert í ástarsorg.
9) Allir á uppleið
Þú ættir að hugsa sem svo
að hluti af starfi þínu sé að
láta yfirmanninn líta vel út.
Hann kann örugglega að
meta það og jafnvel þegar
hann fær í raun viðurkenn-
ingu fyrir þitt starf en ekki sitt
eigið. Ef hann kemst áfram
eru svo góðar líkur á því að
hann geti fært þig með sér
upp metaorðastigann eða lagt
inn gott orð hjá sínum yfir-
manni.
10) Rétt símsvörun
í flestum nútímafyrirtækj-
um fer mikill hluti starfsins
fram í gegnum síma. Það er
því mikilvægt að koma vel
fyrir í síma.
3) Spurðu alltaf að því hvort
þú sért að trufla þann
sem þú hringir í. Hann
kann kannski ekki við að