Vikan - 19.09.2000, Blaðsíða 49
1. Ástargoðsögnín
Astfangin og hamingjusöm
pör lifa alltaf frábœru kynlífi
og geta ekki látið hvort annað
ífriði.
Raunveruleikinn: Jafnvel þau
pör sem eru yfir sig ástfang-
in, afar ástríðufull og lifa
mjög fullnægjandi kynlífi fá
stundum nóg af kynlífi. Eðli-
leg sambönd ganga í bylgjum
þar sem kynlífið er stundum
í aðalhlutverki en þó senni-
lega oftar, vinnan, fjármálin
og annað slíkt. Það er ekkert
óeðlilegt og í raun mjög
„heilsusamlegt" fyrir sam-
bandið að vilja stundum bara
kúra undir teppi fyrir fram-
ansjónvarpið. Þúertkannski
ekki alveg tilbúin í kröftugt
kynlíf fram á morgun þegar
þú ert nýstigin upp úr
gubbupest eða hann er að
lesa fyrir próf. Það er líka
eðlilegt að tíðahringur kon-
unnar hafi talsverð áhrif á
kynlíf para því löngun kon-
unnar er í flestum tilvikum
mismikil eftir því hvar hún er
stödd í tíðahringnum.
Stuttar kynlífspásur geta
auk þess verið góðar fyrir
sambandið því þær auka
löngunina og lengja á vissan
hátt forleikinn. Þið getið
nefnilega átt í „andlegum“
forleik allan daginn eða
marga daga í röð áður en
kemur að kynlífinu sjálfu.
Hvernig væri að skilja eftir
skilaboð í skónum hans,
senda honum tölvupóst eða
sms-skilaboð um hversu gott
er að kyssa hann eða eitthvað
í þeim dúr. Þá getur þú verið
viss um að hann hugsar um
þig allan daginn á meðan
hann er í vinnunni.
2. Ástargoðsögnin
Hamingjusöm pör sakita
alltaf hvors annars þegar þau
eru ekki saman.
Raunveruleikinti: Ljúfir og
vemmilegir ástarsöngvar
fjalla kannski um pör sem
geta ekki slitið sig hvort frá
öðru og vilja vera saman öll-
um stundum. Slíkt á kannski
við á fyrstu stigum sambands-
ins en þegar fólk kemur nið-
ur af rósrauða skýinu þarf
það yfirleitt dálítinn tíma fyr-
ir sjálft sig. Þótt þið séuð par
eruð þið nefnilega líka tveir
einstaklingar og ef þið getið
alls ekki án hvors annars ver-
ið eruð þið sennilega mjög
ósjálfstæð og of háð hvort
öðru. Slíkt endar yfirleitt bara
á einn hátt; með skilnaði.
Það er mikilvægt að ykkur
líði vel saman og eigið margt
sameiginlegt en það er líka
mikilvægt að þið eigið ykkar
eigin áhugamál og ykkar eig-
in vini því annars fáið þið
sennilega bara leið hvort á
öðru með tímanum.
Ef þið eruð mjög mikið
saman og viljið krydda sam-
bandið er kannski sniðugt að
fara á alvöru stefnumót þar
sem þið farið út að borða
saman eða í bíó en farið svo
hvort um sig til síns heima á
eftir í stað þess að fara heim
saman eins og venjulega.
Löngunin getur nefnilega
orðið ansi mikil þegar þið
eruð ekki saman en liggið ein
í hvort í sínu rúminu og hugs-
ið um hvað þið gætuð verið að
gera.
3. Ástargoðsögnin
Hamingjusöm og heiðarleg
pör geta sagt hvort öðru allt.
Raunveruleikinn: Þótt sann-
leikurinn sé yfirleitt sagna
bestur má satt stundum kyrrt
liggja. Hreinskilni á nefnilega
ekki alltaf rétt á sér því stund-
um er hún bara til þess fallin
að særa viðkomandi. Viltu
ekki frekar að kærastinn segi
að þú sért falleg og kynæsandi
heldur en hann segi að þú haf-
ir nú fitnað pínulítið jafnvel
þótt þú vitir það sjálf? Eins
er það með fortíðina. Flestir
sem komnir eru til vits og ára
eiga sér einhverja fortíð, fyrri
elskhuga og sambönd, og þar
má satt kyrrt liggja. Það er allt
í lagi að segja frá helstu atrið-
um í lífi þínu en ekki fara út í
smáatriði um hvernig þú og
fyrrverandi kærastinn þinn
höguðuð ykkur og ekki bera
nýja kærastann saman við
þann gamla. Það særir hann
þótt hann vilji ekki viður-
kenna það fyrir þér.
4. Ástargoðsögnin
Fyrirsjáanleiki og vani gera
út af við gott kynlíf.
Raunueruleikinn: Enginn vill
stunda kynlíf sem er vélrænt
og algjörlega fyrirsjáanlegt en
ákveðinn vani og þekking á
elskhuganum getur gert gott
kynlíf betra. Þegar þið farið
að þekkja inn á hvort annað
slappið þið nefnilega betur af
og njótið kynlífsins betur. Þið
vitið hvað þið viljið og þú
veist hvað elskhuginn vill og
þarft ekki að hafa áhyggjur
af því að hann njóti ekki kyn-
lífsins. Munið bara að þegar
þið hafið fundið út hvað ykk-
ur þykir gott er um að gera
að betrumbæta það því æfing-
in skapar meistarann!
5. Ástargoðsögnin
Efhann virkilega elskar þig
mun hann breytast fyrir þig.
Raunueruleikinn: Efþérfinnst
hann þurfa að breytast stór-
kostlega núna, eignast nýja
vini, skipta um stjórnmála-
flokk eða breyta klæðaburði
sínum ertu á villigötum. Það
er ágætt ráð að skrifa niður
lista yfir þá tíu kosti sem þér
finnst að eigi að prýða
draumamanninn þinn og
ástalífið
skoða svo hversu marga af
þessum kostum kærastinn býr
yfir. Hann ætti að minnsta
kosti að hafa fimm þeirra. Þú
vilt nú ekki að hann falli á
þessu einfalda prófi? Hins
vegar verður þú að vega og
meta hversu mikilvægir kost-
irnir sem hann býr ekki yfir
eru þér. Er hann öfgafullur,
hægrisinnaður stuttbuxna-
drengur en þú vinstrisinnað
blómabarn? Þá er munurinn
á milli ykkar sennilega of
mikill til að hann breytist.
En ef einn af kostunum sem
hann skortir er sá að hann
kann ekki að dansa ættir þú
kannski að slá af kröfunum
og leyfa honum bara að horfa
aðdáunaraugum á þig þegar
þú tekur nokkur spor á dans-
gólfinu.
6. Ástargoðsögnin
Hann sér enga iterna þig.
Raunveruleikinn: Þið eruð ást-
fangin en ekki strandaglópar
á eyðieyju! Það er eðli-
legt að fólk í samböndum geti
hrifist af öðrum en elskhuga
sínum eða fundist einhver
annar ákaflega aðlaðandi. En
jafnvel þótt þú finnir fyrir
léttum fiðringi þegar myndar-
legi maðurinn á næsta borði í
vinnunni talar við þig er ekki
þar með sagt að þú hafir hugs-
að þér að gera eitthvað af þér
með honum. Þetta er allt
spurning um að vera trausts-
ins verður og falla ekki í
freistni ef þú ert í föstu sam-
bandi.
Ef kærastanum finnst of
margir karlmenn horfa á þig
eða reyna við þig, þegar þið
farið út að skemmta ykkur,
ættir þú kannski að minna
hann á að betra sé að vera
með fallegri konu, sem hefur
mikið aðdráttarafl, heldur en
einhverri sem enginn vill
nema hann. Hann ætti því
bara að vera stoltur
af því að vera með
svona aðlaðandi
konu.
Vikan
49