Vikan


Vikan - 19.09.2000, Side 24

Vikan - 19.09.2000, Side 24
Þórunn Stefánsdóttir þýddi Aeldhúsveggnum, á milli teikningar af blárri risaeðlu og sérkennilegs listaverks sem búið er til úr eggjabökkum og bómull og ber titilinn Mamma mín, hangir dagatal. Utan um 16. mars er teiknaður rauður hringur og innan í hann er skrifað með rithönd fimm ára gamals sonar míns: Afmælis- dagur Tomma. I garðinum eru páskalilj- urnar að stinga upp kollinum. Þær minna mig alltaf á fæð- ingu Tomma. Eins og svo margar konur fyrr og síðar hét ég því, milli fæðingarhríð- anna, rembingsins og önd- unaræfinganna, að þetta skyldi ég aldrei gera aftur. En um leið og ég fékk hann í fangið ruku allar minningar um sársauka út í veður og vind. Litli munnurinn var eins og bleikur rósaknappur, nef- ið var pínulítið og bláu, stóru augun voru þau fallegustu sem ég hafði nokkurn tíma séð. Líklega hefur ljósmóðir- in aðra sögu að segja, ég er hrædd um að hún hafi verið mun lengur að gleyma sárs- aukanum í hendinni, sem ég kreisti af öllum lífs og sálar kröftum meðan á verstu hríð- unum stóð. En þetta var fyr- ir sex árum. Líklega er enn þá til fólk sem lítur Tomma sömu aug- um og ég gerði þennan dag fyrir næstum sex árum, til dæmis afgreiðslufólk í versl- unum og strætisvagnabílstjór- ar. Það fólk sér aðeins blá augun, sem eru á stærð við undirskálar, og ómótstæðilegt brosið. Það fólk hefur aldrei séð niðurtroðnar páskalilj- urnar í garðinum og Fluffy, köttinn okkar, sem saknar sárlega veiðiháranna eftir að Tommi horfði á Dýraspítal- ann í sjónvarpinu. Það fólk þekkir heldur ekki nágranna okkar sem fjárfestu í þreföldu gleri í gluggana til þess að þurfa ekki að hlusta á hljóð- in sem Tommi gefur frá sér þegar ég þvæ honum um hár- ið. En afmæli er nú einu sinni afmæli og þrátt fyrir alla sína galla er Tommi líf mitt og yndi. Auðvitað er ég búin að lofa því að bjóða vinum hans í afmælið, en ég bókstaflega finn hvernig blóðþrýstingur- inn hækkar í hvert sinn sem mér verður hugsað til innrás- ar ellefu lítilla Tomma klóna næstkomandi laugardag. Eg reyndi að hafa gestalist- ann eins stuttan og ég mögu- lega gat, en mér er meinilla við að skilja einhvern útund- an. Mig grunar að einn litlu púkanna, sem heitir Pétur en er alltaf kallaður Pési, hafi gert sér fullkomna grein fyr- ir þessum veikleika mínum. Hann kom auga á mig einn daginn þegar ég var að sækja Tomma í skólann. „Tomma mamma, Tomma mamma!“ kallaði hann og hljóp til mín. „Halló Pési,“ sagði ég. Ég hef alltaf verið svolítið veik fyrir Pésa. Hann er einn af þessum börnum sem skera sig svolítið úr hópnum. Ég er sannfærð um að það er einn Pési í hverjum einasta skóla landsins. Pési á ekki mjög gott með að læra, hann kemur úr stórri fjölskyldu, er svolítið búttaður og er alltaf í allt of stórum fötum sem hann hef- ur erft af stóra bróður sínum. Hárið stendur út í loftið og í gegnum lubbann gægjast stór, útstandandi eyru. En súkkulaðibrún augun eru nóg til þess að gera hann ómót- stæðilegan. „Tomma mamma, má ég koma í afmælið hans Tomma á laugardaginn?“ Nú er staðreyndin sú að Pési er ekki fastagestur á af- mælisgestalistum barnanna í hverfinu, aðallega vegna þess að mamma hans, sem senni- lega er ákaflega skynsöm kona, hefur aldrei haft fyrir því að halda upp á afmælið hans. En hann virtist harðá- kveðinn í því að missa ekki af afmælinu hans Tomma. „Auðvitað ertu boðinn í af- mælið,“ sagði ég eins og ekk- ert væri sjálfsagðara. En hug- ur minn var á fullu í flóknum útreikningi. Mér hafði tekist að koma afmælisgestunum niður í ellefu sem þýddi það að með afmælisbarninu með- töldu yrðu gestirnir tólf. Með það í huga hafði ég fest kaup á tólf Fred Flintstone pappa- diskum og glösum. Nú varð ég bara að vona að einn boðs- gestanna fengi væga, ósmit- andi flensu nokkrum dögum fyrir afmælið. Stóri dagurinn rann upp og allt var tilbúið fyrir innrásina. Ég var óhemjustolt af af- mæliskökunni. Hún var í lag- inu eins og kastali með sex turnum og listamaðurinn í mér hafði virkilega fengið að njóta sín. Kakan stóð á miðju borðinu, pylsurnar, pylsu- brauðið og allt sem tilheyrði þeim sívinsæla veislurétti beið gestanna og maðurinn minn hafði varið klukkutíma í að blása upp blöðrurnar. I stað þess að leigja myndband hafði ég ráðið töframann til þess að koma og skemmta gestunum. Klukkan tvö var allt tilbúið, klukkutíma fyrir flugtak. Ég ákvað að verð- launa mig fyrir dugnaðinn með því að fara í heitt, vöðva- slakandi bað. Allt í einu heyrði ég Tomma kalla utan úr garðinum: „Mamma, mamma, Pési er kominn!“ Mér krossbrá. Hafði ég ekki örugglega tekið fram á boðskortunum að afmælið byrjaði klukkan þrjú? Flest- ir vinir Tomma voru vanir að mæta kurteislega fimm mín- útum of seint en Pési lét greinilega ekki slíka smámuni á sig fá. Ég fór upp úr baðinu og gægðist út um gluggann. Pési var klæddur í gamlar gallabuxur og bómullarbol, vopnaður grænni vélbyssu. Tommi hélt á brúnum bréf- poka sem innihélt afmælis- gjöfina frá Pésa, rauðan plast- strætó. Pési sat einn við borðið þegar ég kom niður. „Vá, hvað þetta er flott kaka,“ sagði hann ákafur eins og hann vildi fá mig til þess að taka undir hrifningu hans á þessu sköpunarverki mínu. „Hvar fékkstu hana?“ „Ég bakaði hana,“ svaraði ég og brosti innra með mér. „Getur þú bakað aðra svona köku fyrir afmælið mitt?“ „Ég býst við því að mamma þín vilji nú sjálf baka fyrir af- mælið þitt,“ svaraði ég. „Mamma mín býr ekki til kastala,“ sagði hann ákveð- inn, eins og það væru bara til tvenns konar mömmur; þær sem baka kastalakökur og þær sem ekki baka kastala- kökur. Um það leyti sem hinir gestirnir tóku að tínast á svæðið var Pési kominn upp í herbergið hans Tomma og búinn að tæma úr öllum dóta- kössunum á gólfið. Á meðan opnaði afmælisbarnið fimum fingrum hvern pakkann á fæt- ur öðrum. Þeir voru allir pakkaðir inn í marglitan pappír með slaufum og borð- um í stíl og í flestum þeirra leyndust þroskaleikföng og 24 Vikan

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.