Vikan


Vikan - 19.09.2000, Page 46

Vikan - 19.09.2000, Page 46
að nota tækifærið og flytja starf- semina til London?" Margaret hristi höfuðið. „Nei, það myndi Daniel aldrei gera,“ svaraði hún rólega. Hún sagði það svo sannfærandi og af svo mikilli væntumþykju að Charlotte fann vanþóknunina og reiðina blossa upp á nýjan leik. Lánið hafði aldeilis leikið við Daniel. Hann hafði fengið allt upp í hendurnar. Hann hafði bara þurft að koma sér í gegnum nám- ið og síðan beið hans þægilegt líf sem kona hafði erfiðað fyrir ... Kona sem hafði ráðið við allt það sem henni sjálfri hafði mis- tekist og orðið að berjast við mörg ljón á veginum. hugsaði Charlotte með sjálfri sér. Þær voru komnar upp á efstu hæðina og Margaret Lewis opnaði dyr inn í stórt og bjart herbergi þar sem átta manns sátu að störfum. Úr hverju horni mátti heyra í tölvum og tólum. Meðfram ein- um veggnum voru hillur, hlaðn- ar möppum, fullum af pappírum og skjölum. Allir voru önnum kafnir en samt var andrúmsloft- ið afslappað og þægilegt. Það var greinilegt að allir við- staddir nutu starfsins og Charlotte grunaði að unga fólk- ið sem þarna var að störfum væri fremst meðal jafningja. Hún vissi að þetta var gáfað og metnaðar- gjarnt fólk sem var reiðubúið að vinna hörðum höndum. Þetta unga fólk var nákvæmlega eins og hún hafði verið sjálf. Með einni undantekningu. Þau voru laus við áhyggjurnar sem höfðu þjakað hana frá því augnabliki sem hún opnaði eigin skrifstofu. Margaret kynnti Charlotte fyr- ir þeim og þau heilsuðu henni hlýlega. Ef þau vissu sannleikann um hana létu þau það ekki í ljós. Einn eða tveir karlmannanna litu stutt pilsið aðdáunaraugum. „Þau eru fín,“ sagði Margaret eftir að þær kvöddu og lokuðu dyrunum á eftir sér. „Þau vinna eins og skepnur en eru stundum fulllífleg fyrir minn smekk. Dani- el hefur trú á því að láta þau bera eins mikla ábyrgð og þau ráða við og ég verð að viðurkenna að sú uppskrift virkar vel. Hann lætur hvern og einn taka að sér undir- búning ákveðins verkefnis og þannig fá þau yfirsýn yfir allt málið en ekki bara einhvern hluta þess. Þegar þú ferð að kynna þér skjölin muntu sjá inni í hverru möppu nafn lögmanns- ins sem vann undirbúningsvinn- una og þú getur leitað til hans ef þú vilt láta kanna eitthvað frek- ar. Annað hvort biður þú hann sjálf eða þú kemur beiðninni til skila í gegnum mig. Eg geri mér grein fyrir því að þú verður bund- in við skrifborðið næstu dagana, en það væri gaman ef við gætum borðað saman einhvern daginn þegar þú ert búin að koma þér al- mennilega fyrir.“ „Það væri gaman,“ sagði Charlotte og meinti það. „Það er eitt sem þú gætir hjálpað mér með,“ bætti hún við. „Hvar eru skjölin geymd?“ Margaret brosti til hennar. „Komdu með mér.“ Á leiðinni niður sagði hún frá því að Lydia Jefferson hefði ákveðið að kaupa húsið undir skrifstofuna fyrir peninga sem hún hefði fengið að arfi. Það væri Daniel að þakka að húsið væri enn þá í upprunalegu ástandi. „En það verður að viðurkennast að það er orðið ansi þröngt um okkur og skjölin, eða réttara sagt skjölin sem tilheyra Daniel. Þau eru geymd í litlu herbergi sem upphaflega var þurrkherbergi." „Hér erum við komnar," sagði hún þegar þær komu niður á næsta stigapall. Hún opnaði dyr inn í lítið, aflangt herbergi. Á veggjunum voru hillur hlaðnar skjalamöppum. „Möppunum er raðað eftir einföldu kerfi. Þær eru í stafrófs- röð og ef þú finnur ekki möpp- una, sem þú leitar að, er hún sennilega inni hjá Daniel. Ef ekki, þá er einn ungu lögmann- anna sökudólgurinn. Ég hef ver- ið að reyna að koma á þeirri reglu að hver og einn skrái niður ef þeir fjarlægja möppu úr geymslunni en verð að viðurkenna að það hefur gjörsamlega mistekist. Ef það er eitthvað sem þú þarft að spyrja um þá skaltu bara hringja eða líta til mín á skrifstofuna. Innanhússnúmerið mitt er 241,“ sagði hún að skilnaði. Charlotte þakkaði henm fyrir og fór aftur inn á skrifstofuna sína. Margaret var alla vega ekki mótfallin ráðningu hennar en það gat verið að hún vissi ekki sannleikann um hana. Um leið og hún gekk inn í skrifstofuna heyrði hún Daniel kalla: „Gætir þú aðeins komið inn til mín?“ Treglega hlýddi hún kallinu. Hann sat við skrifborðið og hún stóð fyrir framan hann, reið og vansæl, og sér meðvitandi um ólíka aðstöðu þeirra. Hann leit upp og brosti til hennar. Þetta bros tekur sig ef- laust vel út á sjónvarpsskjánum, hugsaði hún reiðilega. Tennur hans voru of fullkomnar ... of hvítar ... en svo kom hún auga á að það var brotið upp úr annarri framtönninni. Það kom henni í aðeins betra skap. Svo „herra fullkominn" var þá ekki alfull- kominn eftir allt saman. „Hérna er viðbótarlisti yfir skjölin sem ég vil að þú kynnir þér,“ sagði hann. Hún teygði sig yfir borðið til þess að taka við list- anum. Hún komst ekki hjá því að finna lyktina af honum. Hann angaði af góðri sápulykt, þessi ilmur var örugglega ekki af rakspíra. Hún yggldi sig. Eitt af því sem hún hafði orðið að þola var ofnotkun Bevan á rakspíra. Hún hafði aldrei getað komið honum í skilning um hvað henni fannst það fráhrindandi. „Fáðu þér kaffi,“ sagði Dani- el. „Náðu þér svo í stól og sestu hjá mér. Ég ætla að fara yfir mál- in og segja þér frá þeim í stuttu máli. Síðan langar mig að biðja þig að lesa í gegnum skjölin og gefa mér faglegt álit á hverju máli fyrir sig.“ Sem betur fer var hún að hella í kaffibollann og sneri í hann bak- inu. Hún stífnaði upp. Hvað hélt hann eiginlega að hann væri? hugsaði hún reiðilega meðan hún hellti í bollann. Hvað þóttist hann vera að gera? Var hann að prófa hana? Og á hæla þessara hugsana komu aðrar og óþægi- legri hugsanir. H vað ef þetta væri í rauninni nokkurs konar próf? Hvað gerðist ef hún næði því ekki? Hvað ef skoðanir hennar færu ekki saman við skoðanir hans? Mundi hann nota tækifær- ið, úrskurða hana vanhæfa og fara fram á að hún yrði rekin? Það fór hrollur um hana með- 2 fyrir 11 bio a Áskrifendur að tímarítum Fróða geta nú framvísað Fróðakortinu í miðasölu Borgarbíós á flkureyri og fengið tvo miða á verði eins. Munið bara að fyrstir koma, fyrstu 46 vikan fimmtíu fá. Tilboðíð gildir á allar sýningar.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.