Vikan - 19.09.2000, Blaðsíða 57
Þessi köttur fekk að ljúka við skinku af morgunverðarborðinu
einn daginn og það varð upphafið að vináttu sem entist meðan
á dvölinni stóð. .....
Draumahús í yndislegu
Dorpi
Húsið var sannkallað draumahús.
Tveggja alda gamalt og hlaðið úr
steini. Veggirnir voru vel á ann-
an metra að þykkt, enda tvöfald-
ir og holrúm á milli. Þessi bygg-
ingaraðferð er algeng á þessum
slóðum því hún tryggir þægilegan
svala á sumrin og að hitinn nái
ekki að sleppa út á veturna sem
sannarlega er kostur þar sem
lengi vel voru ekki önnur úrræði
til húshitunar en að brenna við í
ofnum. Mörg þorpin eru uppi í
fjöllunum og eru byggð upp eftir
hlíðunum sem oft eru svo bratt-
ar að ferðamanninum þykir
undravert að húsin skuli ekki
renna niður. Húsið okkar var eng-
in undantekning þar frá og þess
vegna varð að ganga nokkur þrep
úr stofunni niður í eldhúsið, stigi
lá síðan upp á efri hæðina og úr
miðjum stiganum var gengið inn
í stærsta svefnherbergið. Allt var
þarna einstaklega snyrtilegt og
hlýlegt. Eldhúsið var vel búið
áhöldum og eldunartækjum og í
skápum voru rúmföt til skipt-
anna, handklæði, viskastykki og
afþurrkunarklútar.
Eftir langa og erfiða ferð er
tæplega hægt að hugsa sér nota-
iegri aðkomu og við vorum fljót
að skríða upp í rúmin það kvöld-
ið. Eins og sagt er þá er fall far-
arheill og eftir þetta gekk ferðin
stóráfallalaust. Daginn eftir
skoðuðum við okkur um í ná-
grenninu, fundum þorpsbúðina
og heilsuðum upp á eigendur
eina veitingastaðarins í þorpinu.
Starfsfólk veitingastaðarins, sem
heitir E1 Grillon, var einstaklega
elskulegt og allt af vilja gert að
aðstoða okkur. Maturinn sem er
fram borinn á staðnum er hefð-
bundinn hversdags- og hátíða-
matur héraðsins sem er einstak-
lega góður. Provence er stærsta
matarkista Frakka. Þarna er vín-
rækt rnikil og allar helstu vín-
ekrurnar er að finna á þessum
slóðum. Vínbændur taka gestum
flestir vel og víða er opið hús
þannig að ferðamaðurinn getur
keyrt upp að húsinu og fengið að
skoða brugghúsin og smakka á
afurðinni.
Þarna vaxa sömuleiðis nánast
allar ávaxtategundir sem hægt er
að nefna og víða við veginn og á
mörkuðum í þorpinu er hægt að
kaupa nýtínd ber og ferska ávexti
auk þess sultur sem unnar eru úr
þessum afurðum. Berin eru
einnig gjarnan soðin í víni og eru
þá einn besti eftirréttur sem hægt
er að hugsa sér. Skinka og alls
konar pylsur eru líka einkenn-
andi fyrir matargerðina þarna og
tegundirnar svo margvíslegar að
vonlaust mál er að komast yfir að
smakka allt. Provence er þekkt
fyrir osta sína og ostagerð og það
er gaman að heilsa upp á bænd-
urna á mörkuðunum og fá að
smakka afurðir þeirra áður en
þær eru keyptar.
Listamannahérað
í Provence er rík hefð fyrir fram-
leiðslu alls konar líns. Mynstrin
eru frábærlega falleg og mörg
hefðbundin, ekki síst þau sem
sækja fyrirmyndir í náttúru svæð-
isins. Sólblómin, írisarnir og
lavenderinn eru meðal þeirra
blómamynstra sem eru algengust
og síðan eru miðaldamynstur
sem eiga rætur að rekja til
frönsku liljunnar en hún skreytti
m.a. páfahöllina í Avignon, þar
sem páfinn hafði aðsetur á mið-
öldum. Það er nánast sama hvaða
áhugamál fólk hefur það finnur
eitthvað við sitt hæfi í Provence.
Héraðið á sér merka sögu og þar
eru margir sögustaðir sem ekki
einungis koma við sögu Frakka
heldur allrar Evrópu. List er
þarna stunduð nánast í hverjum
krók og kima og Provence hefur
oft verið athvarf listamanna. Van
Gogh og Gauguin dvöldu þar,
nánar tiltekið í borginni Arles,
þegar Van Gogh skar af sér eyrað
og sendi það vændiskonu. Hann
lenti síðan á geðveikrahæli en
fékk síðar inni hjá presti
nokkrum í Provence og þar mál-
aði hann sólblómamyndina
frægu.
Næsta þorp við Murs heitir
Gordes og þar eru fjölbreyttar
listsýningar f ótal sölum og gall-
eríum allt sumarið. Listamenn
sækja um að fá að halda sýning-
ar í héraðinu og sérstök dóm-
nefnd velur verk til sýninga. Þeg-
ar við vorum í Gordes stóð yfir
sýning á alveg sérlega skemmti-
legum skúlptúrum listamanns frá
Austur-Evrópu Mizslav Brozek.
Við rákumst einnig á Margaret
Eccleston sem er breskur vatns-
litamálari. Hún býr í Wales en
svo skemmtilega vildi til að árið
áður hafði hún dvalið í íbúð sem
Van Gogh sjóðurinn átti í Murs
og myndirnar sem hún sýndi voru
afrakstur af vinnu hennar þetta
hálfa ár sem hún dvaldi þar.
Myndirnar voru ákaflega falleg-
ar og náðu vel þeim anda sem rík-
ir í héraðinu. Þarna er mikil ró,
kyrrð og náttúrufegurð. Við
sáum sjaldan nokkurn mann við
vinnu og aldrei sáum við neinn
flýta sér en samt eru framleiðslu-
vörur héraðsins svo fjölbreyttar
að margar vinnustundir hljóta að
liggja að baki.
Vandaður bómullarfatnaður,
fléttaðar strákörfur og hattar eru
einnig framleidd á svæðinu og
seld á mörkuðum. Frábærlega
fallega unnar trédúkkur eru í öll-
um minjagripaverslunum og þær
eiga sér skemmtilega sögu. I
hverri einustu kirkju í Provence
hefur tíðkast að stilla upp fyrir
jólin skreytingu sem sýndi Mar-
íu með Jesú-barnið, Jósep og
vitringana. Tréskurðarmenn í
þorpunum bættu gjarnan við
skreytinguna húsum eða persón-
um á hverju ári og þá var ekki
verið að binda sig við að reyna að
líkja eftir Betlehem. Fæðingar-
staður frelsarans varð þorpið
þeirra og brátt voru franskir
bændur með sigðir sínar, bænda-
konur með hrísknippi á bakinu,
ostagerðarmenn og slátrarar orð-
in hluti af íbúum Betlehem. Stytt-
urnar eru listavel gerðar, út-
skornar í tré, málaðar og íklædd-
ar búningum héraðsins. Þegar
ferðamenn fóru að heimsækja
Provence heilluðust þeir af stytt-
unum en þær elstu eru ómetan-
legir forngripir sem eru eingöngu
til sýnis á söfnum núorðið. En
eftirgerðir þeirra má fá keyptar
og þeir eru ófáir sem safna heilu
þorpunum.
I raun er endalaust hægt að
telja upp áhugaverða hluti sem
sjá má í Provence. Þar eru dropa-
steinshellar og í Roussillon er
gömul okkurnáma, sem nú hef-
ur verið friðuð. Að ganga þar um
er eins og að hverfa ofan í ævin-
týraland, með háar klettastrýtur
á báðar hendur og gróðurinn allt
um kring niður í botninum.
Kyrrðin er algjör og af og til svífa
hjá risastór, litrík fiðrildi. Á
hverju ári er listahátíð í Avignon
og þá eru sett upp leikrit, haldn-
ar danssýningar og margt fleira.
Eftir hraðbrautinni er ekki nema
tveggja tíma akstur til Marseil-
les og þar í kring eru mörg fal-
leg, lítil þorp þar sem hægt er að
leggjast á ströndina og svamla
Miðjarðarhafinu til að svala sér
þegar hitinn fer yfir 40°. Fjöl-
breyttari og skemmtilegri stað til
að ferðast um er vart hægt að
finna í víðri veröld.
Vikan
57