Vikan - 19.09.2000, Page 63
Mamman
Spá Vikunnar
Hruturinn
21. mars - 20. apríl
Þú finnur fyrir leiðtogahæfileikum þínum í
þessari viku og gætir lent í þeirri aðstöðu að
þurfa að kenna þér eldra og reyndara fólki
eitthvað. Þú ert öruggari með siálfa(n) þig núna en þú
hefur lengi verið.
Nautið
21. apríl - 21. maí
Þú ert öruggur sigurvegari hvar sem þú
kemur núna og gefur öðrum styrk með nær-
veru þinni. Notaðu þessa orku til þess að
búa þér í haginn á þeim vígstöðvum sem þú helst þarft
þess með.
Tvíburinn
22. maí - 21. júní
Þú hugsar mest um skemmtanir og félagslíf
þessa viku og þér finnst þú þurfa að víkka
sjóndeildarhringinn. Leitaðu á ný mið, þar
fiskast best núna.
Vogin
24. september - 23. október
Þetta er vika ástarinnar hjá vogunum.
Reyndar verður það sem eftir er mánaðarins
einn dans á rósum hjá þeim sem þegar eru
ástfangnir en hinir gætu fallið fyrir einhverjum fljótlega.
Sporðdrekinn
24. október - 22. nóvember
Lífið er að færast í eðlilegan farveg aftur eftir
svolítið skrykkjótt tímabil, fullt af árekstrum.
Þú ert enn í hálfgerðri sjálfsvörn gagnvart
vinum og ættingjum en þú getur hætt því. Þetta er allt
komið í lag.
Bogmaðurinn
23. nóvember - 21. desember
Margir bogmenn eru orðnir leiðir í vinnu og
komnir í einhvern uppreisnarhug. Ekki láta
þetta ástand skemma fyrir þér, það er tíma-
bundið og líklegt að það verði að baki eftir 2-3 vikur.
tÆC.
Krabbínn
22. júní - 23. júlí
Hugaðu að heilsunni þessa viku og gættu
að því sem þú lætur ofan í þig. Krabbar
þurfa á því að halda að laga lífsstíl sinn í
vetur og það er upplagður tími til að undirbúa það núna á
haustdögum.
Uónið
24. júlí - 23. ágúst
Þú þarft að losa þig við áhyggjur eða leynd-
armál sem hafa verið að íþyngja þér undan-
farið. Talaðu við þá sem koma til þín að
fyrra bragði, vinir þínir finna á sér að þú þarft að tala.
Meyjan
24. ágúst - 23. september
Þú lifir í hálfgerðum draumaheimi og vilt
ekki láta draga þig niður á sama plan og
þeir sem eru í kringum þig. Það gæti samt
verið að einhver sem þér þykir vænt um hafi það af að
opna augu þín fyrir vandamáli sem bíður lausnar.
Steíngeitin
22. desember - 20. janúar
Tíminn flýgur frá þér en það fer að hægjast
um þegar þessi vika er liðin. Þú ert búin(n)
að vera í kapphlaupi við tímann og stjörnurn-
ar segja að þú náir settu marki um helgina.
Vatnsberinn
21. janúar - 19. febrúar
Þú ert farin(n) að sjá Ijósið og það má mikið
vera ef þú finnur ekki fyrir langþráðri róman-
tík og huggulegheitum í kringum þig. Kyntu
undir þessu og njóttu þess.
Fiskarnir
20. febrúar - 20. mars
Fiskurinn gæti þurft að synda móti straumi í
enda vikunnar því hugmyndir hans gætu
stangast á við þær sem aðrir hafa. Þeir fiskar
sem hafa náð að hvílast undanfarnar vikur eiga auðvelt
með þetta, hinir verða bara að taka á honum stóra sínum
í nokkra daga.
03 591 293