Vikan - 19.12.2000, Blaðsíða 34
Matur
Á gamlárskvöld er gott að vera með sem mest tilbúið fyrir kvöldið. Hér er ég með nokkra fljót-
lega rétti í fati, þá er hægt að búa til fyrir fram og hita síðan um kvöldið. Einnig fylgir ein upp-
skrift að brauði, sem hægt er að baka fyrir fram og geyma í frysti.
SPÍNAT- OG RÆKJUGRATÍN
Ofnfastfat
300 g spínat, frosið eða nýtt
200 g rækjur, þýddar og
pillaðar
300 g rjómaostur
1 dl matreiðslurjómi
1/4 tsk. múskat
1/4 tsk. svartur pipar
1/2 tsk. jurtasalt
nýrifinn parmesan ostur
AÐFERO:
Spínatið er sett frosið í pott
með svolitlu vatni og soðið þar
til það hefur þiðnað. Vatniðsíað
frá og spínatið sett í ofnfast fat
ásamt rækjunum. Rjómaostur,
rjómi og tilheyrandi krydd sett
í matvinnsluvél og hrært þar til
allt er vel blandað saman.
Hrærunni er hellt yfir spínatið
og rækjurnar og parmesanosti
dreift yfir. Bakað í ofni við 180
gráður í 20-25 mínútur.
GRÆNMETIS-MOUSSAKA
1 stórt eggaldin
3 kúrbítar
gróft salt
200 g sveppir í sneiðum
olía
2 laukar
3 hvítlauksgeirar
1 tsk. jurtasalt
1/2 tsk. svartur pipar
1/4 tsk. múskat
1 dós niðursoðnir tómatar
1 dl grænmetissoð
3 egg
2 dl rjómi
2 bollar niðursneidd
steinselja
6 msk. rifinn ostur
AÐFERD:
Skolið eggaldin og kúrbíta og
skerið í sneiðar. Setjið ( sigti,
stráið grófu salti
yfir og látið
standa í 30 mín-
útur. Skoliðsalt-
ið af og þerrið
sneiðarnar með
eldhúspappír.
Snöggsteikið í
olíunni eggald-
in, kúrbít,
sveppi í sneið-
um, lauk og
smátt saxaðan
hvítlauk. Krydd-
ið meðsalti, pip-
ar og múskati.
Setjið grænmet-
ið í vel smurt
ofnfast fat,
hrærið saman
egg, grænmetis-
soð og rjóma og
hellið yfir græn-
metið. Stráið
steinselju og
rifnum osti yfir
grænmetisfatið
og bakið í 180
gráðu heitum ofni í 25-30 mín-
útur. Berið réttinn fram með
hvítlauksbrauði.
RRAUfl OG OSTUR í OFNI
12 brauðsneiðar án skorpu
(t.d. heilhveitibrauð)
100 g mjúkt smjör
100 g gráðostur
2 egg
1/4 tsk. rifið múskat
hnífsoddur af tabaskósósa
1/2 tsk. jurtasalt
hnífsoddur af hvítum pipar
4 tómatar skornir í sneiðar
1 dós þistilhjörtu í kryddlegi
200 g rifinn óðalsostur
AÐFERD:
Smyrjið brauðsneiðarnar og
setjið í ofnfast fat. Þeytið egg-
in ásamt gráðosti ogtilheyrandi
kryddi. Hellið ostablöndunni
yfir brauðið og raðið tómat-
sneiðum og þistiIhjörtum þar
ofan á og stráið osti yfir. Bakið
í 12-15 mínútureða þartil ost-
urinn bráðnar.
HVÍTLAUKSBRAUÐ
200 g heilhveiti
300 g hveiti
50 gger
1 tsk. salt
1 tsk. hunang
2 msk. olfa
2 hvítlauksgeirar, smátt
saxaðir
hnefafylli af smátt saxaðri
steinselju
3 dl volgt vatn
AÐFERD
Setjið heilhveiti og hveiti í
skál eða hrærivélarskál með
hnoðara. Bætiðgeri, salti, hun-
angi, olíu, smátt söxuðum hvít-
lauk, steinselju og að síðustu
volgu vatni saman við og hnoð-
ið þartil deigiðer laust frá skál-
inni. Látið deigið hefast í 30
mínútur. Sláið deigið niður og
hnoðið aftur. Mótið úr því tvö
löng brauð. Setjið á vel smurða
ofnplötu og látið hefast aftur í
20 mínútur. Hitið ofninn í 200
gráður. Penslið brauðið með
volgu vatni áðuren þaðfer í ofn-
inn. Bakið brauðið í 40 mínút-
ur.
Verði ykkur að góðu,
Fríða Sophía
Fljótleg
I
34
Vikan