Vikan - 19.12.2000, Qupperneq 36
texti: Gunnhildur Lily Magnúsdóttir.
Matur
Of salt
• f súpur , sósur og pottrétti
er best að setja nokkrar
sneiðar af hráum kartöflum
sem hent er að matreiðslu
lokinni því þá hafa þær sog-
ið saltið í sig.
• Annað ráð á sömu rétti er að
setja sína hvora skeiðina af
eplaediki og sykri út í.
Of sætt
• Þúgeturprófaðaðsaltarétt-
inn til að vega upp á móti
sæta bragðinu.
• Ef um aðalrétt eða grænmeti
er að ræða er ráð að setja 1
tsk. af eplaediki saman við.
Of Ijós sósa
• Einfaldast er auðvitaðað lita
sósuna með tilbúnum sósu-
lit og er þá best að setja
sósulitinn út í hveitið sem
notað er í sósuna áður en
vökvanum er bætt út í. Það
kemur líka í veg fyrir kekki.
• Önnur aðferð við að brúna
hveitið er að setja það í hita-
þolið ílát og setja það með
kjötinu í ofninn. Þegar kjöt-
ið er fullsteikt er hveitið orð-
ið brúnt og tilbúið í fína sósu.
Þunn sósa
• Hræriðsamanvatnioghveiti
í þunnan jafning. Bætið
hægt út í soðið og hrærið þar
til sýður.
Of feitur matur
• Ef maturinn er alltof feitur,
t.d. sósan, súpan, pottrétt-
urinn eða eitthvað annað,
má notast við eitthvert af eft-
irfarandi ráðum:
• Ef tíminn leyfir er best að
kæla réttinn þartil fitan hef-
ur harðnað á yfirborðinu og
hægt er að veiða hana upp úr
réttinum.
• Einnig er hægt að minnka
fituna með því að setja
ísmola í pottinn því fitan sest
utan á ísmolana. Ráðlegt er
að fjarlægja þá áður en þeir
bráðna. Einnigerráðaðsetja
ísmola í grisju eða tusku og
draga eftir yfirborðinu.
• Kálblöð draga ísigfitu. Setj-
ið nokkur blöð í pottinn og
sjáið fituna glitra á þeim.
• Ef sósan er of feit er líka gott
ráð að strá smávegis matar-
sóda út í hana til að vega upp
á móti fitunni.
Rjóminn uill ekki Deytast
• Ef rjóminn þeytist illa má
reyna eitthvert eftirfarandi
ráða:
• Kældu rjómann, skálina og
þeytarana vel eða settu skál-
ina með rjómanum í aðra
skál fulla af ísmolum á með-
an þú þeytir.
• Settu eggjahvítu í rjómann,
kældu og þeyttu svo.
• Ef rjóminn þeytist ekki þrátt
fyrir að þú hafir prófað of-
angreind ráð skaltu setja 3-
4 dropa af sítrónusafa var-
lega saman við hann á með-
an þeytt er.
• Ef geyma á þeyttan rjóma er
gott að setja hreint gelatín,
(1/4 tsk í hvern bolla af
rjóma), til að
koma í veg fyrir
að hann skilji
sig.
• Eftirfarandi má
reynatil aðkoma
í veg fyrir slettur
og gusugang
þegar rjómi er
þeyttur með raf-
magnsþeytara:
Takið smjör-
pappír sem nær
yfir þeytiskálina,
gerið tvö göt þar
sem þeytararnir
eru, takið þeyt-
arana úr vélinni,
setjið pappír
með götunum að vélinni og
stingið þeyturunum aftur í og
þeytið.
Sait
• Þar sem mjög margar upp-
skriftir innihalda salt og pip-
ar er gott að eiga stóra stauk
með blöndu af salti og pip-
ar í hlutföllunum 3/4 salt á
móti 1/4 pipar.
• Besteraðsaltasúpurogkjöt
í ofni fljótlega eftir að
matseld hefst. Hinsvegarer
best að strá salti á kjöt sem
steikt er á pönnu rétt áður en
kjötið er tekið af pönnunni.
Til að grænmetið fá saltan
keim er best að sjóða það I
söltu vatni.
Frosið grænmeti
• Til að frosna grænmetið
bragðist eins og ferskt er gott
að hella sjóðandi vatni yfir
það og skola þannig í burt
allt frosna vatnið. Einnig má
sjóða frosna grænmetið í
kjötseyði til að fá gott bragð.
Of margar skrældar
kartöflur
• Setjið þær í kalt vatn og bæt-
ið nokkrum dropum af ediki
út í. Þannig má geyma
skrældar kartöflur í ísskáp í
3-4 daga.
36 Vikan