Vikan


Vikan - 30.04.1969, Blaðsíða 36

Vikan - 30.04.1969, Blaðsíða 36
Ronson HÁRÞURRKA HEIMILANNA TILVALIN FERMINGARGJÖF EINKAUMBOÐ: I. GUÐMUNDSSON & CO. HF., REYKJAVlK Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Reyndu ekki mikið á þig þessa vikuna. Haltu sem mest kyrru fyrir og taktu engar veigamiklar ákvarð- anir. Reyndu að gefa þig sem mest að heimafólkinu og þínum nánustu. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Nú er rétti tíminn tO að drífa það af sem lengi hef- ur staðið til að gera. Ýmiss verkefni þessa árstíma þola ekki öllu lengri bið, en verða þér hagstæð er þú lætur nú til skarar skríða og tekur til hendinni. Liónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Um þetta leyti er rétti tíminn til að velta af sér okinu og lyfta sér örlítið upp. Búðu þig í bezta skart um helgina og bjóddu nánum vinum út til skemmt- unar. Láttu gamlar væringjar liggja milli hluta. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september); Allt er með bjartasta móti. Gættu þess að leggja ekki of mikla vinnu á þig, nú væri miklu réttara að taka lifinu með ró og gera eitthvað til að létta sér upp. Útivera gæti haft góð áhrif. Vogarmerkið (24. september — 23. október) Karl, sem þú hefur lengi goldið varhuga við, reynist þér nú betur en þig uggði. Þiggðu það sem hann réttir að þér en gakktu um leið úr skugga um, að ekki fylgi böggull skammrifinu. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Ferðalag, sem þú hefur lengi haft í hyggju, virðist nú mjög nærri. Gættu þess samt, að fara ekki í það, því það myndi hafa óheppileg áhrif fyrir þig. Sláðu þvf á frest í eitt ár, því ferðalög henta þér ekki nú. Bogamarinsmerkið (23. nóv. — 21. desember): Það sem þú hefur lengi haft í hyggju fyrir þennan árstíma, ættir þú að gera þegar í stað, því ekki er til bóta að fresta því lengur. Margt af því, sem þú leggur grundvöllinn að nú, á eftir að bera ávöxt. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Vakandi auga á öllu sem fram fer í kringum þig er nauðsynlegt þessa dagana ef þú vilt ekki verða hlunnfarinn. Gættu þín á vissum persónum, sem þú hefur lengi haft illan bifur á; þær virðast nálægar. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlO: Viss kvenpersóna verður þér hagstæð núna, og þér er óhætt að treysta einlægni hennar. Farir þú að ráðum hennar, verður ýmislegt miklu ljósara eftir en áður og þú veizt betur hvar þú stendur. Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Skyndilegur og óvæntur atburður verður til þess, að rætist úr þeirri fjármálakreppu, sem þú hefur verið í undanfarið. Um leið verður allt bjartara fyrir þér, en gættu þess að flana ekki að neinu. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Bréf, sem þú hefur legni átt von á, berst um þessar mundir, en ekki með þeim fréttum, sem þú hafðir hugsað þér. Þó eru þær fréttir, sem þú færð, fullt eins góðar og þær, þegar allt kemur til alls. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Það leikur allt í lyndi. Það er óþarfi að hafa sam- vizkubit út af því, sem þú ættir að vera búinn að fyrir löngu, allt leggst þér út á bezta veg af þeim, sem þú heldur að hugsi kalt tii þín. 30 VIKAN 18-tw-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.