Menntamál - 01.06.1943, Blaðsíða 15

Menntamál - 01.06.1943, Blaðsíða 15
MENNTAMÁL 5 hvað AÖalst. elskaði og virti hið látna skáld, og alla tíð var hann tryggur vinur og ráðgjafi ekkju hans, meðan hún lifði, enda sýndi hún Aðalsteini mikinn sóma með því að gefa honum útgáfuréttinn að verkum manns síns. Eins og fyrr er getið, lagði Aðalsteinn einkum stund á íslenzk fræði og náttúrufr., auk hins venjulega skólanáms. Var hann mjög handgenginn dr. Bjarna Sæmundssyni og lærði margt af honum. 1918—19 sótti hann einnig fyrir- lestra i sálarfræði og heimspeki við háskólann. Þá var hann og prýðilega drátthagur, enda listfengur og listelskur alla tíð. Sumarið 1919 réðist Aðalsteinn að barnaskóla Eyrarbakka og tók við forstöðu hans um haustið. Var það mikið vegna meðmæla sr. Magnúsar Helgasonar. Hann ráðlagöi skóla- nefndinni að velja þennan unga mann og láta hann sjálf- ráðan um stjórn skólans. Þá mundi vel fara. Og hann var framsýnn þá, sem fyrr, sá ágæti maður. Skólastjórnin fór Aöalsteini prýðilega úr hendi og hann reyndist einnig hinn ágætasti kennari. Hann var skyldurækinn og áhuga- samur, svo af bar, stundvís og reglusamur. Lét hann sér mjög annt um að efla hag skólans á allan hátt og að nám barnanna yrði þeim til gagns og gleöi. Þar byrjaði hann á ýmsum nýjungum í skólalífi, er síðan hafa orðið algeng- ar. Má þar nefna sýningar á skólastarfi barna, blaðaút- gáfu, feröalög, skemmtisamkomur til ágóða fyrir skóla- starfið o. fl. Þá lagði hann og mikla rækt við að skóla- setning og uppsögn yröu hátíðisdagar fyrir börnin og að- standendur þeirra. Öllu þessu fylgdi hressandi blær hins nýja tíma og ungmennin löðuðust að hinum nýja skóla- stjóra. Var ekki trútt um að sumum þeim eldri og aftur- haldssamari, fyndist nóg um, og jafnvel ýmsar fram- kvæmdir hins unga manns orka tvímælis. En slíkt er mjög eðlilegt. Meðan Aðalsteinn var skólastjóri á Eyrarbakka, gaf fyrrv. verzlunarstjóri, P. Nielsen, barnaskólanum hið merkilega
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.