Menntamál - 01.06.1943, Side 18
8
MENNTAMÁL
hann aftur 1935 og var á skólamóti í Stokkhólmi. Þá ferð-
aðist hann mikið um Svíþjóð, og hlustaði á kennslu í skól-
um þar. Hann var mjög hrifinn af þeim. Einnig kom hann
þá til Noregs. í Svíþjóð kynntist hann hinni nýju stefnu
um frjáls vinnubrögð í skólum. Gerðist hann brautryðjandi
þeirrar stefnu hér á landi, svo sem kunnugt er og náði á-
gætum árangri í drengjadeildum þeim, sem hann kenndi.
Er það alkunnugt hér í Reykjavík og víðar og nægir þar að
benda á hinar stóru og fjölbreyttu sýningar á vinnu nem-
enda hans, sem haldnar hafa verið árlega. Einkum var
handavinna drengjanna fjölskrúðug og falleg, því að auk
þess, sem áður er getið, var Aðalsteinn hagur vel og tré-
skeri góður. Hafði hann notið þar tilsagnar vinar síns,
Ríkarðar Jónssonar myndhöggvara.
Eitt skemmtilegasta átakið í skólastarfi Aðalsteins hér í
Reykjavík er, þegar hann fór til Færeyja 1933, með drengja-
deild (8 A), er hann kendi þá. Ferðin var undirbúin allan
veturinn og allir drengirnir fóru. Það er met, sem enginn
fær yfirstigið. Ferðasjóður drengjanna, sem þeir höfðu
safnað um veturinn, greiddi fargjöld, fæöi o. fl., fyrir allan
hópinn. Drengirnir greiddu ekki annað úr eigin vasa en
persónulegan útbúnað og vasapeninga, er þeir voru sjálf-
ráðir um. Ýmsir góðir menn gáfu ferðasjóði þeirra stór-
gjafir. — En þetta er fyrsta skólaferð til útlanda og sú
lengsta, sem ein deild hefur farið. Förin varð drengjunum,
skólanum og þjóð vorri til sæmdar. Færeyingar tóku
flokknum höfðinglega, enda var Aðalsteinn hinn mesti vin-
ur Færeyinga og ágætur málsvari þeirra.1) Færeyjafarar
gáfu út bók um ferð sína 1934. Þar geta menn kynnt sér
betur þennan merkilega þátt í skólastarfsemi Aðalsteins.
Þar sem löngu er viðurkennt, að Aðalsteinn var meðal
fremstu skólamanna þessa lands og merkur brautryðjandi
um nýjar kennsluaðferðir, þá var hann oft fenginn til að
)) Kom hann nokkrum sinnum til Færeyja og átti þar góða vini.