Menntamál - 01.06.1943, Side 29

Menntamál - 01.06.1943, Side 29
MENNTAMÁL 19 Hvernig er nú farið að því að mála? Fyrsta og helzta boðorðið, sem kennarinn þá verður að fylgja, er það, að fcenna börnunum að beita starfstœkj- unum réttilega og fara vel með þau. Þegar barnið málar, á það að hafa hjá sér óvandaöan pappír, sem það blandar litina á. Tekur það nú ögn af lit á pensiloddinn og strýkur af honum á blöndunarpapp- inn. Vætir síðan pensilinn og þynnir litinn, þangað til hann er orðinn ámóta þykkur og rjómi. Þá, en ekki fyr, má bera litinn á myndflötinn. Þess verður að gæta vel, að barnið þynni eða blandi litina á blöndunarpappírnum, en ekki á myndfletinum. Annars nær það aldrei fallegum, hreinum litum eða litablöndu. Mikið veltur á því, að penslinum sé beitt rétt. Það á alltaf að draga hann að skafti! Ef honum er haldið eins og penna- stöng, í hægri hendi, á aö draga hann frá vinstri til hægri, eða ofan frá og niður á við, þannig að hárin liggi slétt, en fari ekki í flækju eða brotni. Aldrei má nudda penslinum um myndflötinn, né beita honum á móti hárunum. Ef of mikið af lit er á einhverjum stað myndarinnar, eða ef lit- urinn er of blautur, á að þerra pensilinn á léreftsrýjunni og taka litinn upp í hálfþurran pensilinn. Það verður einnig að gæta þess vel, að börnin venji sig þegar frá byrjun á það, að skola og hreinsa pensilinn í hvert skipti, er þau taka nýjan lit. Ef þetta er vanrækt verða litirnir fljótt óhreinir og ónothæfir. Vatnkrúsin er því mikilvægt starfstæki, en venjulega er hún höfð of lítil. Krúsin á að rúma %—1 ltr. af vatni, eða álíka mikið og niðursuðudós eða -glas, sem ætlað er undir 1 kg. matar. Mörgum kann að þykja það fyrirhöfn og umstang að láta börnin mála með vatnslitum. En þessi vinnubrögð, sem ég hefi lýst hér að íraman, verða þeim fljótt eölileg og sjálf- sögð og hafa þau bæði ánægju og mikið gagn af því aö mála. En aðalhlutverk kennarans á þó að vera það, að leiöbeina þeim um rétta og skynsamlega notkun starfstækjanna. 2*

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.